Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Leoncie aftur

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég held að manneskjan sé ekki alveg heil á geðsmunum en hvaða rifrildi var þetta við Sigurjón Kjartansson? Ég hef alveg misst af þessu.

Re: Um Ritalin (Methylphenidate)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég þekki ameríska stelpu sem er ennþá á þessu eftir tvítugt vegna þess að hún er hrædd við að hætta. Gæti verið tilfinnalega háð lyfinu og finnst ekkert ganga rétt ef hún reynir að hætta. Annars hef ég ekki spurt hana hvort hún hafi reynt. Það var líka svoleiðis dæmi í ER fyrir nokkrum árum með læknanema sem gat ekki hætt á ritalíni vegna þess að allt fór í handaskolum hjá henni.

Re: Einstæð móðir og öryrki (greiðslur frá tryggingarstofnun)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það er náttúrulega gott uppeldislegt atriði að kenna börnum að taka þátt í útgjöldum heimilisins ef þau eru aflögufær. 10 þús. kall á mánuði er nú ekki mikið miðað við ef hann þyrfti að leigja sér herbergi útí bæ og borga fæði sjálfur. Hins vegar ef þú vilt sleppa honum við að borga heim af og til ef hann er blankur, þá er það bara þitt mál. Mér finnst ekki að þessi peningur frá Tryggingastofnun sé neitt frekar hans framlag til heimilisins þar sem hann er ekki að greiða það sjálfur úr eigin vasa.

Re: SOS!! HJÁLP!! ALLIR LESA!!

í Kettir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Kettir geta jú nefnilega fjölgað sér alveg hrikalega. Læður geta eignast kettlinga þrisvar á ári og oft 4-6 í hverju goti. Svo eignast allir þeir kettlinga o.s.frv. Hins vegar er ekkert sem mælir gegn því að endurnýta ketti sem aðrir hafa ekki viljað. Ég hirti mína kisu upp af götunni, ekki reyndar úr ruslagámi en alveg við hann. Hún er hin besta kisa. Ég lét taka hana úr sambandi þannig að ef hún strýkur einhvern tímann að heiman og fer aftur á vergang, þá fjölgar hún kattakyninu alla vega...

Re: Réttindi sem móðir

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það er hægt að gefa börn til ættleiðingar held ég hvenær sem er þó það sé kannski erfiðara að koma þeim út og kannski kallað eitthvað annað eins og fóstur eftir ákveðinn aldur.

Re: Réttindi sem móðir

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ef verðandi feður ættu að hafa rétt á því að velja fóstureyðingu (á pappírunum) til að afsala sér ábyrgð, þá er nú svo líka að mæður geta hvenær sem er gefið börn sín til ættleiðingar. Finnst þér þá að það ætti líka að vera svo að feður gætu hvenær sem er gefið börn sín til ættleiðingar (á pappírunum) til að afsala sér ábyrgð?

Re: Öll von um rómantík fokin út um gluggann?

í Rómantík fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Safna? 50 stelpur? Ef þú vilt ekki lenda í safninu þá held ég að þú ættir bara að gleyma honum. Samt, gæti orðið mikill heiður fyrir þig að vera nr. 51 :)

Re: Barátta

í Heilsa fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég notaði Head & Shoulders og það virkaði alveg fyrir mig. Hins vegar eftir að ég flutti til Kanada hefur þetta ekki verið vandamál. Kannski loftslagið eða eitthvað.

Re: Flogaveiki

í Heilsa fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Þú ættir að tala við félag flogaveikra en þú getur fundið allt um það og mikið af upplýsingum um flogaveiki á http://www.lauf.is/vefur/ Eftir því sem ég hef heyrt um flogaveiki, þá eru það köstin sem skemma heilann og ef þú ert á lyfjum sem koma í veg fyrir köstin, þá ætti þetta tómarúm ekki að stækka meira.

Re: Réttindi sem móðir

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það hallar alltaf á annan aðilann. Ef karlmanni væri leyft að “eyða” fóstri á pappírunum þá væri það aldrei sambærilegt við fóstureyðingu hjá konu. Hann þarf ekki að taka ákvörðun um það að deyða líf því hann er ekki að því. Sú ákvörðun er áfram hjá konunni. Hann þarf ekki heldur að ganga í gegnum neina líkamlega aðgerð sem gæti leitt til ófrjósemi síðar eða þola líkamlegan sársauka. Svo ef hann sér eftir öllu saman en konan hefur ákveðið að eignast barnið, þá getur hann alltaf komið inn og...

Re: Réttindi sem móðir

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég er alveg sammála þessu. Það getur vel verið að hálfsystkinin vilji hafa samband og jafnvel afi og amma líka ef þau eru til staðar. Ég þekki dæmi þar sem maður afrækti son sinn vegna konu sinnar en mamma hans og systkini höfðu samband við strákinn og buðu honum í heimsókn til sín. Auðvitað er þetta höfnun fyrir strákinn ef pabbi hans vill ekki sjá hann en sumir verða bara að læra það fyrr en aðrir að lífið er ekki réttlátt. Jafnvel þó það væru lög sem kvæðu á um að pabbinn yrði að taka...

Re: Réttindi sem móðir

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hugsaðu málið út frá því hvað er heppilegast fyrir strákinn. Væri það gott fyrir strákinn ef þér tækist að neyða pabba hans til að taka hann aðra hverja helgi, hvort sem hann vill eða ekki? Væri hann ánægðari að vera hjá pabba sínum sem vill ekki hafa hann og hann kannski finnur að hefur engan áhuga á honum heldur en að sjá hann hreinlega ekki? Ég held að það sé mikilvægara í þessu máli að þú reynir að halda vinsamlegum samskiptum við pabbann frekar en eitthvað nöldur og rifrildi. Ef hann er...

Re: svefnleysi

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Kannski þarf hann bara ekkert að sofa meira :-/

Re: jæja:)

í Skóli fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég fékk 10 í stærðfræði og 9,6 í teikningu en veit ekki í rauninni með hin fögin. Þau eru búin að vera með marga kennara og ég veit ekkert hvernig einkunnin skiptist á milli þeirra. Ég er samt líklega með milli 8 og 9 þar. Svo er spurning hvort maður tekur vegið meðaltal eftir þeim fögum sem hafa mest vægi eða bara hreint meðaltal milli einkunna.

Re: VANTAR BÓK

í Skóli fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það eru markaðir í sumum skólum. Þú verður eiginlega bara að leita. Líka fara í skóla sem þú veist að nota bókina og setja miða uppá töflu hjá þeim. Tékkaðu líka á kassi.is

Re: Jólapróf í janúar!

í Skóli fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Þetta var svona í Háskólanum, alla vega sumum deildum fram til 1990 eða eitthvað svoleiðis. Auðvitað bætir það árangur á prófunum ef þú lest eitthvað í jólafríinu frekar en gerir ekki neitt. Hinsvegar má maður ekki lesa of mikið. Það er einhver fín lína milli lesturs og afslöppunar sem gefur bestan árangur.

Re: Hugi.is

í Sorp fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hugi var með póst en hann var tekinn út fyrir einhverjum mánuðum. Ég er ekki alveg viss hvers vegna. Ég held að það hafi verið eitthvað vesen með póstþjóninn og þeir ákváðu bara að hætta með hann.

Re: Ég er ólétt!! :D

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Gangi þér allt í haginn! :)

Re: ofvirk börn og jólin

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
GunniS: Í þessum texta sem þú kóperaðir stendur nákvæmlega ekki neitt um það að þetta sé róandi lyf. Bara að það “slævir viðbragðsflýti og eftirtekt”. Ef þú tekur örvandi lyf, þá held ég að það geti nú haft ýmisleg slævandi áhrif á viðbragðsflýti þinn og eftirtekt, ekki vegna þess að lyfið sé svo róandi heldur vegna þess að hausinn á þér er of mikilli ferð til að halda sér við efnið. Þetta er í Lyfjubókinni á www.lyfja.is: — Metýlfenídat er virka efnið í eftirtöldum lyfjum: Ritalin, örvandi...

Re: hvaða hvaða hvað

í Farsímar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég held að kauptorg sé hætt, annars var það hægt þar. Ég myndi setja auglýsingu á kassi.is og segja að hæsta boði næstu 1-2 vikur verði tekið. Þú getur sett eitthvað lágmark til að hindra að hann fari á slikk.

Re: Hanndfrjáls búnaður.....

í Farsímar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hann ætti að setja búnaðinn í símann áður en hann leggur af stað, tækið í eyrað og símann í brjóstvasann. Ég hef ekki lent í því að þetta drasl sé að detta úr eyranu á mér. Líklega gerist það vegna þess að hann er ekki með snúruna klemmda á skyrtuna og þyngdin á snúrunni eða símanum togar í dótið sem hangir í eyranu. Annars getur hann náttúrulega bara fengið sér almennilegan handfrjálsan búnað til að nota í bíl, þá er það bara innbyggt þannig að hann ýtir bara á einn takka til að svara og...

Re: Leoncie heldur áfram að rífa sig

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hún byrjaði nú sinn feril með því að vera fatafella í partýjum en mér fannst langbest þegar hún sagði einhvern tímann í viðtali að hún hefði aldrei komið fram nakin heldur í rándýrum búningum sem létu líta út fyrir að hún væri nakin… eða þannig :)

Re: Leoncie heldur áfram að rífa sig

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég held að það séu engin lög sem banna að einkabréf séu birt opinberlega en það hefur almennt þó svona frekar lélegt að gera það samt.

Re: Riddarakross Íslands

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Flest þetta fólk hefur líklegast gert eitthvað til að fá orðuna þó ég sé ekki af hverju Bubbi ætti að fá hana. Hann er bara skallapoppari. Hulda Jensdóttir veit ég a.m.k. hver er. Hún stofnaði Fæðingarheimilið í Reykjavík og var frumkvöðull að breyttum aðferðum í þeim efnum, hvort sem hún á orðu skilið fyrir það eða ekki. Annars finnst mér kallinn með bátana ekkert eiga það minna skilið að fá þess orðu frekar en aðrir. Ef hann hefur eytt sínum frítíma um áratuga skeið í að safna saman...

Re: Jólagleði og gjafirnar?

í Hátíðir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Pabba fjölskylda gaf okkur aldrei jólagjafir en stundum afmælisgjafir ef þau voru boðin. Mömmu fjölskylda hefur hins vegar þessa reglu með engar gjafir eftir fermingu. Ég fermdist ekki en fékk samt “fermingargjafir” frá þeim og engar jólagjafir eftir það. Mér finnst þetta ekkert óréttlátt kerfi. Maður sér það þegar maður verður eldri að það er enginn smá peningur að kaupa gjafir handa öllu þessu fólki. Ég á t.d. 4 systkini og þau eiga samtals 12 börn sem ég þyrfti að gefa. Reyndar eru núna...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok