Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Sjúgandi köttur!!!

í Kettir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Kisa mín gerir þetta en í mjög litlum mæli. Hún vill helst kúra í handakrika og ef henni líður voða vel, þá klórar hún í bolinn minn með framlöppunum og svo kemur fyrir að hún sýgur bolinn smá. Hún er hins vegar engin kettlingur því ég hirti hana upp af götunni og dýralæknirinn sagði að hún væri a.m.k. 5 ára.

Re: köttur í blokk?????

í Kettir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Þú þarft að fá leyfi hjá öllum sem eru með sameiginlegan inngang og þú, jafnvel þó þetta sé inniköttur. Ég myndi síðan láta þinglýsa leyfinu þannig að hvert skipti sem einhver selur íbúð þá gengur kaupandinn að því að það sé köttur þarna. Þú getur náttúrulega líka bara fengið þér kött og látið engan vita en verður þá að passa að hann sé geldur og verði ekki breima og fari að syngja fyrir nágrannana og sleppi ekki fram á gang eða út á svalir. Ef einhver frétti af því og kærði, þá gætir þú...

Re: Sí ælandi!!!

í Kettir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Dýralæknirinn sem ég fer með köttinn minn til. Ég efast um að þú þekkir hana þar sem ég bý í Kanada.

Re: Sí ælandi!!!

í Kettir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Dýri er alla vega mjög ánægður með að ég gef kettinum mínum IAMS.

Re: Hvað myndir þú gera ???

í Skóli fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ef þig langar til að vinna við tölvur, þá geturðu örugglega fundið sérhæfð tölvunámskeið með engum öðrum greinum í staðinn fyrir að fara í almennt nám.

Re: Leiðst ykkur í skólanum?

í Skóli fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Mér finnst ágætt í skólanum þó ég hafi verið rosalega latur eftir jólafríið og ætlaði varla að nenna að mæta. Mér finnst skemmtilegast í verklegu fögunum en stundum alveg að sofna í þeim bóklegu.

Re: þá er það byrjað

í Skóli fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég bý erlendis og hef búið í fleiri en einu landi og það er ekkert endilega minna tilbreytingarleysi þar. Þar sem maður situr í sófanum og horfir á imbann á heimili sínu í einhverri stórborginni, þá er líklega fleira sem maður hefði getað farið og gert það kvöldið en þarf ekki að þýða að maður nenni því eitthvað frekar. Kannski vandamálið hjá þér frekar að þú saknar vinanna og fjölskyldunnar en að það sé ekkert að gera. Samt ef þér leiðist, þá er bara þitt að rífa þig upp og gera það sem er...

Re: Sí ælandi!!!

í Kettir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Kisan mín var veik fyrir nokkru og vildi ekki éta nema bleyttan þurrmat. Eftir að henni var batnað og ég hætti að bleyta matinn ældi hún alltaf öllu og ég þurfti að gefa henni mjög lítið í einu í nokkra daga þangað til hún vandist þurra þurrmatnum aftur. Hún er í fínu lagi núna. Prufaðu alla vega að gefa kettinum bara hágæða mat eins og IAMS eða svipað og ef hann er að æla hárum, passaðu þá að það standi “hairball control” á matnum. Þá er eitthvað í matnum sem leysir upp hárin. Þú verður...

Re: hjálp

í Kettir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Þú getur náttúrulega fengið þér annan svo hann fái leikfélaga. Kisan mín mjálmaði alveg geðveikt þegar hún var breima en annars er hún frekar þæg.

Re: Samræmd próf

í Skóli fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég held að það sé ekki kúrvudæmi í læknanáminu, bara þeir hæstu komast inn án tillits til þess hversu margir ná eða falla. Kúrvudæmið er þegar einkunnir eru lagaðar til svo þær falli að kúrvu, t.d. hafði ég einu sinni kennara sem vildi að meðaltalið á kúrvunni væri 8 og hækkaði upp eftir því. Ég man ekki hvort hann lækkaði einhvern tímann niður eða hvort það kom aldrei upp að meðaltalið væri yfir 8 en það er svo sem rökrétt að gera það vegna þess að þá hefði prófið líklega verið of létt....

Re: Reykingar, hugleiðing

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég er þeirrar skoðunar að sígarettur séu bara eitt af því sem ekki er hægt að banna. Ef verðið fer yfir eitthvað ákveðið eða sígarettur bannaðar verður bara smyglað. Áfengi er annað af því sem ekki væri hægt að banna. Sömuleiðis hundahald sem var lengi reynt að hafa bannað í Reykjavík og gekk lítið. Það væri náttúrulega best ef enginn gerði neitt sem er óhollt og allir lifðu við hestaheilsu vel og lengi en það bara virkar ekki á mannskepnuna að reyna að ná slíku fram með bönnum.

Re: smá hugsun í gangi

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það notar að sjálfsögðu <a href="http://easylinkuk.co.uk/page15.html">vekjaraklukku fyrir heyrnarlausa</a>.

Re: KYNLÍFSSVALL OG SKÓLABÆKUR!

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
1. skiptibókamarkaðir í bókabúðum 2. skiptibókamarkaðir í skólum 3. fara í skóla og tékka á miðum uppi á töflu frá fólki sem er að selja bækur prívat 4. fara í skóla og hengja upp miða um að þú viljir kaupa þessar bækur 5. tala við fólk sem þú þekkir sem er komið lengra í skóla og gæti átt þessar bækur 6. <a href="http://www.kassi.is/">http://www.kassi.is/</a

Re: Hmm... hreiður

í Gæludýr fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hún heldur nú ekkert í sér endalaust þó það sé ekki hreiður. Frændi minn átti páfagauka og ætlaði að prófa að láta þau verpa einu sinni. Svo tóku þau varpkassann en þá héldu þau bara áfram. Kellingin verpti í botninn á búrinu og þegar þau voru laus þá bara hvar sem henni datt í hug. Þau voru að finna egg uppi á skápum og hvar sem var. Hins vegar geta fuglar kúgað hvorn annan. Ég átti páfagauka þegar ég var krakki. Ég átti kellinguna fyrst en ekkert sérlega gaman að henni. Svo fékk ég handa...

Re: Sjónvarp!!

í Hundar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hundurinn minn gamli horfði oft á sjónvarpið og sérstaklega af það voru dýr, þá hljóp hann stundum að því og gelti. Kötturinn sem ég á núna hefur hins vegar engan áhuga á sjónvarpinu en þegar hún sá <a href="http://www.broenink-art.nl/maukie.swf">þennan kött</a> á tölvunni, á reyndi hún að bíta hann í gegnum skjáinn. Ég held að hún sé ekkert rosalega klár :)

Re: Ekki hræddur við bíla

í Hundar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Flautaði kallinn á hann og varð hann þá hræddur? Þú gætir prófað að fá einhvern vin þinn til að koma keyrandi þegar hann er laus og flauta hátt á hann, þá kannski bregður honum eða eitthvað. Annars er bara að tala við hundaþjálfara um nokkra einkatíma. Kannski ættirðu líka að athuga að sleppa honum ekki úr sjónfæri ef þú treystir honum ekki að þessu leyti. Leyfa honum bara að hlaupa frá þér á opnum svæðum þar þú sérð til hans og þar sem eru engir bílar og láta hann annars ganga við hæl þó...

Re: Skólinn byrjar aftur...

í Skóli fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Stærðfræðiprófið hlýtur að vera miðað við það að fólk á mála- og félagsfræðibrautum geti líka náð því. Það er spurning hvort það ætti ekki að vera möguleiki fyrir fólk sem er í áfangakerfi að taka samræmda stærðfræðiprófið strax eftir að það klára stærðfræðiáfangana meðan það er ennþá ferskt en þurfi ekki að rifja upp. Annars þótti mér gaman að heyra þetta “lúser að vinna í fiski” dæmi. Mér var nefnilega alltaf sagt þetta þegar ég var lítill og trúði því alveg, ætlaði sko ekki að láta þetta...

Re: VOFF,VOFF MIG VANNTAR HÓTEL ???

í Hundar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Fyrir nokkrum árum þegar ég átti hund prófaði ég fleiri en eitt hundahótel og fannst best á Leirum og hundinum mínum líka.

Re: Bangsi kynvillingur.

í Kettir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ef hann er nýorðinn bomm, þá er hægt að taka hann úr sambandi samt. Það átti að gera við kisuna mína en hún var komin of langt og átti áður en dýri gat látið hana fá tíma.

Re: Réttindi sem móðir

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Mér finnst það ekkert minni skammsýni eða bráðlyndi að halda að það sé barninu fyrir bestu að vera saman í ónýtu hjónabandi þar sem bæði hata hvort annað bara vegna þess að þau vilja ekki að börnin alist upp hjá einstæðu. Þá held ég að það sé betra fyrir börnin ef fólk getur skilið sem vinir og haft vinsamleg samskipti um uppeldi barnsins og umgengni og slíkt er nokkuð algengt þó við heyrum meira af málunum þar sem allt er í hakki. Þessir möguleikar sem þú settir upp létu líta svo út fyrir...

Re: húsnæðiskaup

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Farðu fyrst í greiðslumat, þeir segja þér hvað þú mátt kaupa dýra íbúð miðað við tekjur, hvað þú átt fyrir útborgun o.s.frv. Þá geturðu farið að leita að íbúð. Þú getur fundið allar upplýsingar á <a href="http://www.ibudalanasjodur.is/">http://www.ibudalanasjodur.is/</a

Re: vinna erlendis, vera á klakanum

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég er nokkuð viss um að það er reitur á skattskýrslunni fyrir tekjur erlendis. Annars skaltu bara hringja upp á skatt og spyrja að þessu. Þetta ætti að vera í leiðbeiningum sem koma með skattskýrslunni. Swift greiðslur er eins og þú segir þegar bankar senda peninga sín á milli, t.d. ef ég bið einhvern heima á Fróni að víra mér peninga til Kanada þar sem ég bý, þá er það gert með swift. Ef einhver úti vill borga þér með swift, þá þarftu að fara í bankann þinn og fá swift númerið hjá þeim og...

Re: Skák

í Sorp fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Jú, keila er íþrótt. Alla vega er keppt í henni. Svo er það heldur ekki kallað að spila skák heldur að tefla :)

Re: Fæðingarorlof og barnabætur

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Til hamingju með það :) Það er slatti af linkum um fæðingarorlof og hvernig því er háttað á <a href="http://fjarmalaraduneyti.is/interpro/fjr/fjr.nsf/pages/f.orlof">http://fjarmalaraduneyti.is/interpro/fjr/fjr.nsf/pages/f.orlof</a> Hins vegar veit ég ekki hvort þú getur eitthvað frekar nýtt skattkortið konunnar meðan hún er í orlofi því hún heldur áfram að fá 80% af launum. Ef það þýðir að hún geti ekki fullnýtt skattkortið, þá getið þið náttúrulega skipt því. Nú ef hún er lengur og fær...

Re: Þreyta

í Heilsa fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég prófaði einu sinni að taka ginseng og varð alveg hýper. Hausinn á fullu, gat ekki sofnað fyrr en 1-2 á nóttunni og var kominn á fætur eldhress um 5-6 á morgnana. Hins vegar vantaði mig ekki fleiri tíma í sólarhringinn og fannst þetta hálf óeðlilegt ástand eitthvað þannig að ég hætti að taka þetta en þú gætir kannski prófað og sjá hvort það virkar fyrir þig. Þú gætir líka prófað að leggja þig á daginn. Það er bara mjög mismunandi hvaða svefnvenjur virka fyrir fólk.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok