Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Hver er...

í Hip hop fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Af hverju ertu ekki með link á Bubba myndina (bera myndin a la Bubbi á Fingaför)? Mér finnst þú ættir endilega að halda áfram að taka myndir.

Re: Bangsi kynvillingur.

í Kettir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Þú ættir að láta taka hana úr sambandi til að losna við breimið og fressin. Annars sé ég ekkert að því að kalla hana Bangsa og hann áfram. Frænka mín á 2 gelda högna og kallar þá læðunöfnum og þær. Hún segir að þeir séu endurbættir högnar ;)

Re: útibúr fyrir ketti

í Kettir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Þú getur fundið eitthvað á þessari síðu: http://forum.cathobbyist.com/indoor/ og eru þar nokkrir að segja frá að þeir séu að búa sér til búr eða að spyrja hvernig. Þú gætir alla vega búið til búr úr hænsnaneti eða svipuðu (músaneti?) sem fæst í MR búðinni og annað hvort steypt það niður eða haft spýtur neðst sem þá nógu langt niður til að hann geti ekki farið undir eða grafa netið eða eitthvað. Fer eftir því hvað hann er mikill grafari og hvort hann reynir eitthvað að sleppa. Þú getur líka...

Re: mIRC!!

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég var að vinna með strák sem fór úr vinnunni á ircið og fann vin sinn þar, þóttist vera stelpa og fór að reyna við hann. Það var ferlega fyndið.

Re: Afnotagjöld af skólatölvum

í Skóli fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það er nú bara eins og með allt annað að annað hvort borga þeir sem nota eða allir. Ef þeir borga sem nota, þá kvarta þeir yfir að það séu ekki allir látnir borga. Ef allir borga, þá kvarta þeir yfir að þeir séu látnir borga fyrir eitthvað sem þeir nota ekki.

Re: Réttindi sem móðir

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það er nú aldrei nein trygging fyrir því að fólk lafi saman áfram þó það sé saman og ánægt þegar það eignast barn. Endar ekki annað hvert hjónaband með skilnaði? Sambúðir endast ábyggilega ekki betur þannig að ég myndi ekki segja að það væri eitthvað skilyrði að vera saman til að eignast barn. Annars finnst mér þú setja alla þessa valmöguleika upp á frekar óréttlátan hátt fyrir stelpurnar. Þær hafa ekkert frekar möguleika nr. 3 til 6 nema strákurinn gangi að því. Möguleiki nr. 1 fyrir þær...

Re: Jákvæð mismunun

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
En þú getur líka neitað arfi. Hins vegar er oft í svokallaðri jákvæðri mismunun ekki einu sinni verið að hygla barni einhvers sem varð fyrir misrétti heldur gæti þitt barn alveg eins verið rukkað sjálft um 10 þús. kallinn sem var stolið af þér. Þetta væri t.d. þar sem brotið er á ungum manni til að hygla ungri konu en hugsanlega hefur móðir þessa manns orðið fyrir kynjamisrétti í hina áttina á sínum tíma og jafnvel að faðir ungu konunnar hafi notið góðs af því.

Re: Jákvæð mismunun

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ef ég stel af þér 10 þús kr. þá áttu að rukka það af mér, ekki barn þitt af barni mínu eftir að við erum báðir komnir á elliheimili eða dauðir.

Re: Réttindi sem móðir

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Gjafasæði ef það er notað framhjá í heimahúsum getur orðið til þess að gefandinn sé krafinn um meðlag ef hinn pabbinn ættleiðir ekki barnið. Ég heyrði um svoleiðis dæmi erlendis frá þar sem vinur parsins hafði gefið sæði. Parið hætti svo saman og mamman krafði þá vininn um að borga meðlag þar sem hann væri faðirinn og hann var skikkaður til þess. Ef karlmaður gæti síðan afsalað sér barni innan 12 vikna frá getnaði, þá er nú reyndar ekki alltaf sem stelpur fatta að þær séu óléttar fyrr en það...

Re: 3. “Protection” eða vörn.

í Dulspeki fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Nornin sem ég þekki spyr fólk áður en hún galdrar fyrir það. Það var t.d. einn sem leið eitthvað illa og hún spurði hvort hún ætti að galdra hann og hann neitaði og hún gerði það þá ekki. Hins vegar bað ég hana að galdra fyrir mig eftir aðgerð sem ég fór í og jafnaði mig á mettíma.

Re: Ársspá 2003 - er eitthvað að marka þetta?

í Dulspeki fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Flestar svona almennar stjörnuspár eru bara fengnar úr gagnabönkum og róterað frá ári til árs nokkur ár í röð. Þær eru bara hafðar almennar til að flestum geti fundist þær eiga við sig. Samt þegar þú ferð að hugsa út í það að það eru 12 merki og þess vegna 1/12 mannkyns í sama merkinu, getur sama spáin þá átt við þá alla? Munu allir fiskar, hálfur milljarður manna, hljóta viðskiptalegan ávinning í haust? Hverjir tapa þá, allar steingeiturnar? :)

Re: Fátækt á Íslandi.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég hef heyrt að þetta nafnleysi komi stundum sérstaklega ef maður skrifar eitthvað langt eða er með gluggann opinn lengi t.d. vegna þess að maður er að gera eitthvað annað líka milli þess sem maður skrifar.

Re: Fátækt á Íslandi ætti ekki að þurfa að vera til.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Venjulegir innflytjendur fá ekkert niðurgreitt húsnæði nema þeim semjist um það við vinnuveitanda sinn. Margir þeirra þurfa líka að skilja börn og maka eftir í heimalandinu til að geta komið hingað að vinna. Ég er nokkuð viss um að einstæða móðirin gæti líka fengið leigt húsnæði úti á landi fyrir minni pening en í Reykjavík eða búið á verbúð. Hins vegar fá flóttamenn niðurgreitt húsnæði og þeir eru nú frekar fáir miðað við innflytjendur alla.

Re: ofvirk börn og jólin

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ætli það séu líka til lyf við því? :)

Re: Jákvæð mismunun

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Mér finnst nú ekkert mjög langt síðan þetta var rætt hérna. Hins vegar finnst mér aldrei geta verið neitt jákvætt við mismunun. Ef þú færir einum minnihlutahópi allt uppí hendurnar vegna þess að þeir voru órétti beittir einhvern tímann þá gerir þú þennan hóp að aumingjum. Þetta er hægt að sjá hjá indíánum í Kanada þar sem ég á heima. Þeir geta farið frítt í alla skóla en mjög fáir þeirra nota sér það heldur bíða frekar eftir að fá tékkann sinn frá féló. Alla vega.. þrátt fyrir að óréttlætið...

Re: Klikkaður hundur !

í Hundar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hundar bíta nú yfirleitt af einhverri ástæðu, kannski aðallega að hann telur sér ógnað. Hundurinn veit ekki hvað drukkinn maður er að hugsa þegar hann kemur með höndina að honum, hvort hann ætlar að klappa honum eða berja hann. Þar að auki er ekkert víst að hundurinn vilji neitt láta klappa sér. Mér heyrist á þessari sögu að þetta sé algjörlega þeim frænda þínum að kenna sem var bitinn. Gat bara sjálfum sér um kennt. Hin tilvikin þekki ég náttúrulega ekki en líklega er þessi hundur eitthvað...

Re: Hvað myndir þú gera ???

í Skóli fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Farðu bara í iðnnám. Þú getur orðið smiður, bifvélavirki, pípari, málari, prentari eða whatever. Þú ættir að tékka á grunndeild málmiðna eða tréiðna eftir því hvað hentar þér betur, prófa það í eitt ár og sjá hvernig gengur. Ef þú ert búinn með grunndeild, þá hjálpar það líka til að fá vinnu/komast á samning. Þú getur farið í fornám í stærðfræði og þú þarft bara að taka einn algebruáfanga fyrir flest iðnnám, hitt er tölfræði og rúmfræði sem er frekar létt. Jafnvel þó það gangi ekki, þá...

Re: Lúður og Gróðurhús

í Sorp fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Gróðurhús ættu að vera notuð fyrir íbúðarhús. Þá gæti maður strax séð hvort fólk væri heima og hvað það væri að gera. Það var t.d. slíkt íbúðarhús í dýragarðinum í Kaupmannahöfn árið 1996 og bjó þar eitt par. Þegar ég kom í dýragarðinn voru þau með gesti og voru að drekka kaffi.

Re: Nammigóður ís

í Matargerð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Þú ættir að prófa nammi ostasamlokuna mína. Taktu 2 samlokubrauð, settu ost og suðusúkkulaði á milli (bara ca. 4 bita, alveg nóg) og hitaðu í samlokugrilli. Ég prófaði þetta bara uppúr fíflaskap einu sinni og komst að því að þetta er þvílíkt nammi. Hins vegar hefur mér gengið illa að fá aðra til að prófa en þegar mér hefur tekist það hefur fólk orðið háð þessu :)

Re: Einstæð móðir og öryrki (greiðslur frá tryggingarstofnun)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það er náttúrulega líka skylda foreldra að framfæra börn sín til 18 ára aldurs og 20 ef þau eru í skóla en þrátt fyrir það vorum við bróðir minn látnir borga heim þar sem við hættum í skóla og fórum að vinna. Það er ekki heldur neitt réttlæti í því að 17 ára unglingurinn sem er kannski með hærri tekjur en foreldrið segi að hann eigi öll launin sjálfur því foreldrum hans sé skylt að framfæra hann. Hvort sem peningurinn til framfærslu barnsins kemur úr vasa beggja foreldra sem vinna fulla...

Re: Hundabók á netinu

í Hundar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hér er síða um hundaheilsu og sjúkdóma: <a href="http://www.peteducation.com/index.cfm?cls=2">http://www.peteducation.com/index.cfm?cls=2</a> Hér er svo síða um hundategundir: <a href="http://www.dogbreedinfo.com/">http://www.dogbreedinfo.com/</a

Re: Hundaofnæmi

í Hundar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það sem ég hef heyrt um sprautumeðferðina er allt frá fólki sem hefur farið í hana við frjókornaofnæmi. Einn strákur kominn rétt yfir tvítugt hafði farið í meðferðina 11 ára gamall og var ennþá ofnæmislaus. Ein stelpa hafði farið í hana 14 ára og hafði dugað henni til að vera ofnæmislaus í nokkur ár (3-4 ár). Hún sagði að árangur væri betri þegar börn færu í meðferðina, sæmilegur hjá unglingum, lítill hjá fullorðnum. Tveir strákar sem ég var að vinna með höfðu farið í meðferðina og ég heyrði...

Re: Hundaofnæmi

í Hundar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Kírópraktor? Meinarðu ekki hómópata? Síðast þegar ég vissi þá hnykkja kírópraktorar bara til liðum, sérstaklega í hryggnum en gefa ekki lyf.

Re: hjálp

í Kettir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Tékkaðu á þessari síðu: http://www.peteducation.com/article.cfm?cls=1&cat=1388&articleid=923

Re: Leoncie aftur

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það er alveg satt að ef enginn nennti að pirra sig á henni, þá gæti hún bara farið aftur að kvarta yfir því að hún sé hunsuð á Íslandi af því hún er ekki hvít. Ef fólk er að senda henni hate-mail, þá fær hún meira eldsneyti til að kvarta yfir.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok