Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Flug til Kanada

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
HMY Airways og átti að byrja 16. des. Nánari upplýsingar á http://www.vf.is/?Object=101&ID=9292

Re: Ömurlegar jólagjafir?!

í Hátíðir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég hef oft skipt gjöfum og stundum meira að segja skilað þeim til baka til gefanda. Þetta á aðallega við um mömmu sem er fræg fyrir að gefa bara gjafir eftir eigin smekk en ekki annarra. Samt kom það einu sinni fyrir þegar ég var unglingur að systir mín sem bjó þá erlendis, gaf mér forljóta peysu og fór ég í hana nákvæmlega einu sinni svo hægt væri að taka mynd. Þegar systir mín sá myndina fattaði hún hvað peysan var ljót og bauðst til að taka hana til baka og skila. Einn bróðir minn lagði...

Re: Fyrsta klónaða barnið!

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Fólkið sem er á móti þessu hlýtur bara að vera í startholunum. Annars er ég ekkert á móti þessu svo framarlega sem það á ekki að búta grey börnin niður í varahluti eða ætlast til að þau feti nákvæmlega í fótspor fyrirmyndarinnar. Hins vegar þekkist bæði með börn sem eru ekki klónuð, þ.e. sumt fólk eignast börn í þeim eina tilgangi að bjarga eldra systkini með því að gefa beinmerg og margir ætlast til þess að börnin þeirra feti í þeirra fótspor.

Re: Líkindareikningur

í Borðaspil fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Smá mistök hjá þér. 1/6*1/6 er 1/36 en ekki 2/36 vegna þess að 1*1 er bara 1 og 2/6 má ekki stytta niður í 1/2 heldur 1/3 (deilir bæði fyrir ofan og neðan strik með 2).

Re: Paranóju gamla fólk

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Kannski hefur hún lent í einhverju.

Re: Við erum öll gyðinga-hatarar!

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ef á þig væri ráðist og þér gert eitthvað illvirki og einhver tæki að sér að reka málið fyrir þína hönd og fá fyrir þig skaðabætur, myndir þú þá ekki vilja fá bæturnar frekar en að sá sem rekur málið ákveður að það sé betra mál að setja þær í baráttu gegn illvirkjum? Það sem Finkelstein hafði við þetta að athuga var að skaðabæturnar voru fengnar undir því yfirskyni að þær færu til fórnarlambanna. T.d. þegar svissnesku bankarnir voru krafðir um bætur þá voru þeir til í að fara í saumana á...

Re: Jæja kæru hugarar!

í Hugi fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það að vera kvefaður er ekki sama og að vera veikur og það er engin ástæða til að þú þurfir að liggja í viku út af því. Hristu þetta bara af þér og gerðu það sem þig langar til. Kvef er nú bara þannig að það verður að hafa sinn gang og það lagast hvorki eða versnar sama hvað þú gerir. Hins vegar ef þú einbeitir þér að því að vera veikur, þá hugsarðu bara um kvefið og þá virkar það verra en ef þú gerir eitthvað skemmtilegt í staðinn, þá gleymirðu því frekar. Ég var einmitt alltaf svona að...

Re: Mælieiningar?????

í Hugi fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Auk þess sem 12 tommur = 1 fet og 3 fet = 1 yard Stórskemmtilegt mælieiningakerfi sem þessir kanar hafa :) Annars fer ég alltaf á http://www.onlineconversion.com/ þegar ég þarf að breyta einhverju milli eininga.

Re: alit mitt á nokkrum tegundum síma

í Farsímar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Mín reynsla og minnar fjölskyldu á símum er að bróðir minn einn átti Nokia 5110 og hann var mjög góður þangað til hann keyrði óvart yfir hann. Þá hætti skjárinn að virka en það var samt hægt að hringja. Annar bróðir minn á Nokia 6110 og hefur virkað vel. Mamma á Nokia bananasímann, man ekki hvaða númer hann er en hann er orðinn alla vega 4-5 ára gamall og virkar vel. Pabbi átti ódýran Bosch síma sem var í lagi fyrir utan það að battaríið fór mjög fljótt í honum. Ég átti Panasonic G600 og kom...

Re: Bolarnir ?

í Heilsa fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Já, og þér munu líka vaxa brjóst. Nei, annars, þá hef ég ekki hugmynd. Samt ekkert sniðugt að vera að taka eitthvað sem þú ert ekki alveg með á hreinu hvað er.

Re: Mynd... ógeðsleg???

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hárið dökknar oft með aldrinum. Einn bróðir minn var með næstum hvítt hár þegar hann var lítill og núna er það svona sólarstrandasandlitt einhvern veginn. Ég var með ljósskolleit hár fram að sex ára og þá breyttist það í dökkbrúnt eiginlega bara á einu ári. Það lýsist samt alltaf ef ég er í sól.

Re: Við erum öll gyðinga-hatarar!

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Samtök gyðinga (ekki allir gyðingar) hafa beinlínis blóðmjólkað þýska ríkið, svissneska banka og alla aðra sem þeir hafa getað undir því yfirskyni að um skaðabætur væri að ræða fyrir helförina. Hins vegar hafa fórnarlömb helfararinnar lítið sem ekkert séð af þessum peningum heldur hafa þeir farið í að greiða undir rassgatið á köllunum sem sitja í þessum samtökum. Prófaðu að kíkja á greinarnar hans Finkelstein á netinu. Hann er gyðingur og báðir foreldrar hans lentu í helförinni. Hann...

Re: Ólafur Ragnar Grímsson

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ætli hann sé með nema svona 950 þús. eftir skatta :) Annars myndi ég ekki nenna að vera forseti. Alltaf að þurfa að vera kammó, tala við alls konar pakk þegar þú nennir því ekki, alltaf með blaðamenn og myndavélar í fésinu. Ekki séns að fara á hverfispöbbinn og rasa út. Ég held að hann eigi þetta bara alveg skilið. Annars fær hann ekki heldur öll þessi laun áfram þegar hann hættir eins og einhver sagði. Hann er búinn að vera 1 og hálft kjörtímabil núna og á því rétt á 70% af þessum pening í...

Re: gjaldþrot á einstaklingi

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Þú hlýtur að eiga eitthvað í íbúðinni og þeir geta fengið það. Hins vegar kostar það eitthvað líka fyrir þá að gera þig gjaldþrota þannig að árangurslaus fjárnám eða að gera fólk gjaldþrota bara uppá sport hefur minnkað mikið á síðustu árum. Þú hefur eiginlega 2 valkosti: 1. semja við þá um að borga þetta með lágum greiðslum á löngum tíma 2. koma öllum þínum eigum undan til að sleppa við að þeir geti gengið að þér, t.d. “selja” íbúðina þína einhverjum sem þú þekkir og treystir og þola það...

Re: Flækingar

í Kettir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Talaðu bara við þau í Kattholti. Ef þessir kettir eru ekki þar lengur, þá eru ábyggilega einhverjir aðrir kettir sem vantar heimili. Kattholt, Stangarhyl 2, 110 Reykjavík sími: 567-2909 fax: 567-2964 email: kattholt@li.is http://www.vortex.is/kattholt

Re: ég hata...

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hvernig makka á hann? Er það annars líka nokkuð makkanum að kenna, bara lélegt módem?

Re: Réttindi faðirs

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Þetta með nýja og nýja stjúpfeður, það er alveg satt að það getur enginn sagt til um hvort svo verður eða ekki. Hún gæti lent á einum sem hún á svo eftir að vera með næstu 20 árin en kannski gæti pabbinn eitthvað flakkað milli sambanda á meðan. Engin leið að spá um það og ætti ekki að vera ástæða fyrir hver fer með forræði.

Re: Jólagjafir

í Hátíðir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég fékk skyrtu frá mömmu og pabba, 2 handklæði og hálsbindi sem spilar jólalög frá systur minni og sjálfum mér gaf ég 2 DVD diska. Eitthvað lítið um pakka þetta árið en kannski týndi pósturinn einhverju á leiðinni. Sjáum til hvort það berst eitthvað milli jóla og nýárs. Einn bróðir minn er líka alltaf ógurlega seinn að senda jólagjafir, stundum ekki fyrr en í apríl. Ég held að þau sendi það á kameldýri. Segðu mér annars, hver gefur 15 ára strák syngjandi bangsa? Mér hefði alla vega fundist...

Re: Réttindi faðirs

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það er reyndar ekki föðurs heldur. Rétt beyging er faðir, um föður, frá föður, til föður. Sjá http://www2.rz.hu-berlin.de/bragi/b4/b4_221_no_flokkun_ nb_fs.htm#sb_r_fjolskylduheiti

Re: Réttindi faðirs

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það er til félag feðra sem eru í þessari aðstöðu og mér þykir líklegt að þeir geti best sagt þér hvaða rétt þú hefur og hvað þú getur gert. Þeir eru með vef á http://www.abyrgirfedur.is/ Hins vegar myndi ég ráðleggja þér að láta þetta ekki fara í illt. Ef hún ákveður að vera leiðinleg og láta þig ekki sjá barnið, þá getur þú að vísu leitað réttar þíns en það er mjög erfitt. Þess vegna gæti verið best fyrir þig að vera alltaf boðinn og búinn að “passa” þegar hún þarf og taka barnið allar...

Re: Réttindi faðirs

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Barn er lifandi vera, ekki dauður hlutur. Það er ekkert bara hægt að taka það og láta til eins eða láta til annars eftir hentisemi. Yfirleitt er farið eftir því hvar barnið er vant að vera. Nú ef stelpan er búin að vera ein með barnið í einhvern tíma, foreldrahúsum or not, þá þarf eitthvað mikið að vera að til að það sé tekið af henni. Eins ef það hefði verið öfugt, hann hefði labbað út með barnið, þá hefði það ekki verið tekið af honum ef hann hefði verið búinn að vera með barnið með hennar...

Re: Hvaða vitleysingur hellir malti á undan appelsíni?

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hver hefur sína uppskrift. Á mínu heimili er blandan 3 hlutar appelsín á móti 2 af malt. Sumir blanda 50/50. Sumir setja kók líka.

Re: Skammdegisþunglyndi... :(

í Gæludýr fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Þú getur fengið þér fjólublátt ljós (við barinn.. trallala) og sett timer á það. Þú getur fengið timer t.d. í Íhlutir í Skipholti og þeir eru ekkert sérlega dýrir. Þá geturðu stillt ljósið á að kveikja og slökkva alltaf á fyrirfram ákveðnum tímum.

Re: Dressmann

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég held að þetta sé bara undir þeim komið sem eiga búðina hvort þeir borga til baka eða ekki og hvað þarf að vera mikill/lítill afgangur til að þú getir fengið það í peningum. Ég veit ekki til þess að það séu nein lög um það. Vantar þig ekki annars sokka eða nærbuxur? Eða gætir keypt þér aðra skyrtu og borgað 980 í peningum. Eða hefðir getað hætt við að kaupa í Dressmann þegar þú fréttir af þessu með nótuna og farið í staðinn í Hagkaup en væntanlega of seint núna.

Re: Flækingar

í Kettir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Gott hjá þér að gera eitthvað í málinu. Ég hirti einmitt mína kisu upp af götunni og hún hefur ábyggilega líka verið heimilisköttur því hún er mjög vinaleg. Kannski sættist kötturinn á nýju kisuna fyrir rest. Annars þarftu líklega að láta hana en ég held að það sé aldrei erfitt að koma kettlingum út. Það er frekar að þau sitji uppi með eldri kettina sem eru ekki nógu sætir lengur og enginn vill.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok