Getur einhver hjálpað mér?!
Tarzan er ekkert hræddur við bíla og hikar ekki við að hlaupa fyrir framan þá. Núna rétt áðan var ég með hann inní skógrækt að leyfa honum að hlaupa og á meðan var ég bara að þrífa bílinn (og það er yfirleitt engin umferð þarna). Við vorum búin að vera þarna í klukkutíma þegar ég sá bíl koma og fór þá að litast um eftir Tarzan og sá hann langt í burtu en um leið og hann sá bílinn hjóp hann að honum og beint fyrir framan hann og fólkið í bílnum var ekkert búið að taka eftir honum fyrr en hann stóð allt í einu fyrir framan bílinn og kallinn þurfti að negla niður. Hvað á ég að gera þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hann gerir þetta?