Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Burt með fituna

í Heilsa fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég sé ekki af hverju þú ættir að brenna meira með að hlaupa úti en inni. Ef þú ert í mjög lélegu formi þá geturðu byrjað á að skokka milli ljósastaura og ganga milli næstu og setja stefnuna á að skokka svo milli 3 staura, svo 4 o.s.frv. Ef þú ætlar að byrja of rösklega þá er alltaf hættan að þú springir á limminu. Ef þér finnst of erfitt að skokka geturðu líka byrjað á að ganga rösklega.

Re: Lelegur úliður

í Heilsa fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ef þetta er vegna óhóflegrar músarnotkunar, þá geturðu prófað að músvenja hina hendina (ég prófaði það sjálfur með góðum árangri), halda þig frá tölvuleikjum og forritum sem krefjast mjög mikillar músanotkunar, kynna þér flýtitakka sem þú getur notað í staðinn fyrir músina og ef í harðbakkann slær geturðu fengið þér sérstaka mús fyrir úlnliðsveika en hún lítur út eins og stýripinni og fæst að ég held hjá EJS. Annað sem þú ættir að gera er að fá þér ól utan um úlnliðinn til að halda við hann...

Re: Eitt í viðbót um skó...

í Heilsa fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Á ég að segja þér fréttir. Lappirnar á þér þurfa að endast þér ævilangt. Miðað við það eru flottir skór hjóm eitt. Vertu nú góð við lappirnar á þér og kauptu bara almennilega skó sem meiða þig ekki :)

Re: Offita, misskilið vandamál

í Heilsa fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég held að fólkið hérna í gamla daga, áður en offita fór að aukast, hafi ekkert verið étandi allan daginn. Það bara hafði ekki jafn mikinn aðgang að orkuríkum mat og við höfum í dag. Foreldrar mínir segja mér að um 1960 þegar þau voru að ala upp eldri systkini mín þá var soðin ýsa, saltfiskur eða grjónagrautur í alla mata nema á miðvikudögum var súpukjöt og á sunnudögum lambalæri. Engar kökur nema á jólunum og í afmælum og gos sömuleiðis. Ef krakkarnir komu svangir inn og vildu fá eitthvað...

Re: Rottweiler á Íslandi

í Hundar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Þeir tóku út html og innleiddu bbcode. Til að gera url gerirðu (url)slóð(/url) nema notar hornklofa en ekki sviga. <a href="http://www.iso.is/drusla">http://www.iso.is/drusla</a

Re: Ofvirkir kettir

í Kettir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Kisan mín gerir þetta líka stundum og aðallega á nóttunni ca. um 2 leytið.

Re: Samræmd próf í framhaldskólum eru kjaftæði!!!

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ef nýbúi á málabraut getur ekki ráðið við þetta samræmda próf, hvernig getur hann þá komist í gegnum grilljón íslenskuáfanga sem hann þarf að taka?

Re: Rasismi hjá almenningsvagnsstjóra

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Þú hefðir átt að taka niður hvaða vagn þetta var og kl. hvað svo þeir gætu haft uppá þessum bílstjóra. Svona á náttúrulega ekki að líðast. Hvað sem fólki finnst um að innfluttir eigi að læra íslensku eða ekki þá hefði hún líka alveg getað verið túristi.

Re: Framboð Félags íslenskra þjóðernissinna

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
thortho: Það má vel vera að flestir vildu frekar vinna við skúringar eða í fiski en að vera atvinnulausir en hitt þekkist nú líka og þekki ég fólk sem er svoleiðis að það myndi aldrei taka vinnu sem því finndist fyrir neðan sína virðingu, ekki kannski nema það sæi fram á að svelta. Innflytjendareglurnar eru líka þannig að það á að vera búið að auglýsa störf og sýna fram á að ekki fáist innlent fólk áður en útlendingar eru fluttir inn. Hins vegar ef atvinnuástand versnar snögglega þá er...

Re: Gifting eða endalaus trúlofun?

í Sorp fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég efast nú um að þetta sé vegna skattanna. Á meðan hún er með annan fótinn í Bretlandi þá hlýtur hún að telja fram til skatts þar og við erum með tvísköttunarsamning við Breta sem þýðir að hún borgar ekki skatt af því hér sem hún borgar skatt af í Bretlandi. Þar að auki held ég að svona ríkt fólk fari létt með að ráða einhverja bókhaldsgæja til að fela eigur þeirra hér og þar svo þau þurfi aldrei að borga skatt.

Re: Hvað er arðbært nám?

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Stjórnmálafræði, sagnfræði, mannfræði. Kannski markaður fyrir eitthvað af þessu fólki en ekki alla sem fara í þetta. Ég hef sjálfur unnið með stjórnmálafræðingi með mastersgráðu og sá var þá að vinna í sölumennsku. Seinna hitti ég hann niðrí bæ og þá var hann eitthvað að aðstoða við gerð heimildamyndar (ekki um stjórnmál). Einn þekki ég sem tók sagnfræði og fór síðan að vinna við lánaútreikninga hjá lífeyrissjóði. Allt í lagi samt meðan þeir borga námslánin sjálfir. Ef þeir hefðu hins vegar...

Re: Tvær mömmur

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Mamma2 átti upphaflega að vera með hann í 2 vikur en þegar lengdist í því sagði mamma1 að hún hafi skrifað upp á tímabundið forræði og fundist allt í lagi að hann væri hjá henni út skólaárið (hann fór til hennar í febrúarmánuði) meðan hún væri sjálf að koma undir sig fótunum. Svo var hún alltaf að skrifa undir framlengt tímabundið forræði en ári eftir að mamma2 fékk strákinn var hún komin með uppáskrifað varanlegt forræði sem mamma1 kannaðist ekki við að hafa skrifað undir. Hvort sem mamma1...

Re: eBay

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég var einmitt að tékka á þessu vegna þess að ég ætlaði að selja dót þar. Þú borgar fyrst og færð svo sent. Þú hefur svo sem enga tryggingu fyrir að fá vöruna en þú getur séð upplýsingar um þann sem er að selja og ef hann hefur mörg jákvæð ummæli og engin neikvæð ættirðu að geta treyst honum.

Re: Bíltegundir

í Bílar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég á engan þessa stundina en langar mest í gamla Lödu Sport. Hins vegar þar sem ég bý í Kanada þá er frekar ólíklegt að það rætist þ.a. líklega enda ég bara með gamlan jeppa þegar ég hef efni á því.

Re: Vetrar(r)akstur!!

í Bílar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Sama hér. Ekkert verra að standa skjálfandi úti á stoppistöð heldur en að standa skjálfandi við að skafa af rúðum. Samt býst ég nú ekki við að það gangi strætó yfir hellisheiðina þannig að þetta er ekki beint möguleiki fyrir þá sem þurfa að fara mikið þar á milli.

Re: Húsakaup

í Heimilið fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Linkurinn vildi ekki virka fyrir mig þrátt fyrir að ég fjarlægði bilið. Ertu kannski búin að kaupa húsið? :) Annars myndi ég bara fara rólega í þessar endurbætur. Byrja á einu herbergi. Þetta virðist stundum svo mikið þegar þú ert með heilt hús. Þú getur notað tækifærið með eldhúsið og endurskipulagt.

Re: Sími

í Farsímar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Eins og fleiri, þá mæli ég með lithium batteríi vegna þess að þau endast lengur. Hin missa minnið of fljótt og fara þá að endast styttra og styttra. Smá ráð í sambandi við gömul batterí: Þegar þú setur símann í hleðslu, þá hleður hann sig að fullu og byrjar svo að eyða af batteríinu sínu en heldur ekki áfram að hlaða sig nema þú takir hann úr sambandi fyrst. Ef þú slekkur á honum áður en þú lætur hann í hleðslu á kvöldin, þá eyðir hann ekki af batteríinu alla nóttina þegar hann er búinn að...

Re: Hvað kostar Papillon???

í Hundar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
HRFÍ segir á sinni síðu að tengiliðir fyrir Papillon séu: Kristín Halla Sveinbjarnardóttir, sími: 587-9330 / 695-7830 og Jóna Karlotta Herbertsdóttir, sími: 897 2315 / 554 4233 Prófaðu bara að hringja í aðra þeirra og þú hlýtur þá að fá svör við þessum spurningum.

Re: Samræmd próf í framhaldskólum eru kjaftæði!!!

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Önnin er nú bara nýbyrjuð þannig að það getur varla verið of seint fyrir þig að taka íslensku 303 núna og sleppa einhverju öðru í staðinn. Þá geturðu tekið 403 næsta haust og ef þú fellur á prófinu getur þú verið búinn með 503 áður en þú tekur það aftur. Fyrir utan það hvað þetta er gert með stuttum fyrirvara og kannski líka að það sé bara prófað einu sinni á ári, þá finnst mér það bara ágætt mál að hafa samræmd próf í framhaldsskólum. Fólk getur þá áttað sig á því hvaða skólar eru bestir og...

Re: Aumingjaskapur og rugl er þetta elskan. Rífðu þig nú upp úr þessu! :)

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Fólki er rétt svo nýbyrjað að fækka hér á Íslandi. Meðaltalið var lengi 2,1 barn á konu en er nýkomið niður í 1,99. Hins vegar er það ekkert vandamál því það er offjölgun á fólki ef maður tekur heiminn allan og við getum bara fengið slatta af því lánað :)

Re: Hvernig sannfærir maður fólk um ágæti hesta?

í Hestar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ef hann hefur virkilega ekki áhuga, þá getur vel verið að hann fái ekki áhuga og þá verður þú bara að hafa þetta áhugamál fyrir þig meðan hann gerir eitthvað annað. Ég þekkti fólk sem byrjaði í hestamennsku og þau voru alltaf að reyna að fá mig með og mér fannst það allt í lagi, kíkja í hesthúsið af og til, hjálpa smá til, jafnvel skreppa á bak einstöku sinnum en ég hafði engan veginn nógan áhuga til að eiga hest og þurfa alltaf að hugsa um hann. Þetta fólk sem ég þekki, þeirra reynsla var...

Re: Hestar og motocross

í Hestar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Auðvitað ættu krossarar að fá svæði þar sem þeir mega vera en hins vegar er ég ekkert svo viss um að það myndi leiða til þess að hestamenn fengju að vera í friði á hinum svæðunum. Það yrðu ábyggilega alltaf einhverjir meðal krossara sem yrðu leiðir á sínu svæði og finndist hestamenn alveg geta séð af smá meira.

Re: enn og aftur

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Í notendaupplýsingum þínum núna stendur 1.028.448.282 stig :) Ég hef heyrt eitthvað um þetta bögg. Hefur komið fyrir áður.

Re: Lánasjóðurinn!!!!!!

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég var ekki að svara þér í síðasta pósti heldur hinum sem sagði að það væri svo meiriháttar í Danaveldi að fá bara borgað fyrir að vera í skóla og þurfa ekki að borga neitt til baka. Mér finnst það ekki góð notkun á skattpeningum manna að borga undir fólk að hanga í námi árum saman í eins og ég segi mis-arðbæru námi, þ.e. fólk sem kemur mjög ólíklega til með að fá vinnu við það sem það er að læra eða kemur til með að fá það lág laun að það mun aldrei greiða kerfinu til baka í gegnum skatta....

Re: Jæja,

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég hafði bara ekki hugmynd um að þeir hétu Pat og Mat. Á mínu heimili gengu þeir alltaf undir nafninu “tékknesku trékallarnir”. Ferlega duglegir að smíða og svoleiðis ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok