Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: sinaskeiðarbólga

í Heilsa fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Fáðu þér ólar utan um úlnliðina til að styðja við. Það hjálpar alveg slatta.

Re: Skipti um skóla

í Skóli fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þegar ég var í framhaldsskóla þá var ég nú ekki einu sinni með umsjónarkennara. Það er bara litið svo á sem þú berir ábyrgð á þínum málum og þú verður að velja saman þá áfanga sem þig vantar til að geta útskrifast þegar þú vilt. Engin barnapía. Þegar ég var metinn inní skólann sem ég var í, þá fékk ég aðstoð frá bæði deildarstjóra og námsráðgjafa við að velja inn áfanga og svo voru dyr námsráðgjafa alltaf opnar eftir það, alla vega á viðtalstímum ef mann vantaði meiri aðstoð. Annars þarf...

Re: Fyrir Hundanna okkar

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Dýraathvarfið hjá mér er með heimasíðu þar sem er hægt að skoða dýr sem eru heimilislaus og maður getur fengið.

Re: Borgaralegar fermingar???

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hverjum er ekki sama hvað þetta fyrirbæri heitir? Þetta er bara valkostur fyrir krakka sem eru ekki kristin en vilja samt ekki missa af að fermast, halda veislu, fá gjafir og komast í fullorðinna tölu. Ég fermdist ekki en fékk samt gjafir :P

Re: Spurning aldarinnar

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Synina kallar hann George jr., George III, George IV, George V og George VI. Það er mynd af þeim á http://www.biggeorge.com/familyman/familyman.htm Dæturnar eru Michi, Freeda George, Georgetta, Natalie og Leola en hann segir að hann hafi verið nálægt því að skíra þær allar George líka. Svo heitir konan hans Mary en hann kallar hana Joan. Frekar sérvitur náungi eða þannig :)

Re: Umdeildar myndir- fyrri hluti

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Mér fannst NBK góð þegar ég sá hana fyrst en svo keypti ég hana á DVD og hálf sá eftir því. Man bites dog er líka svona kvikmynd sem gerir alveg út á ofbeldi og mér fannst hún miklu betri því hún er líka fyndin á köflum. Ég er líka sammála þeim sem talaði um Bad Boy Bubby, meiriháttar mynd. Svo finnst mér líka Shawshank Redemption mjög góð, hefur alltaf setið í mér einhvern veginn. Sömuleiðis Shipping News.

Re: Írak og farsímastaðlastríðið

í Farsímar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það er bara erfitt að láta þá ráða því sjálfa þar sem þeir munu ekki hafa neina ríkisstjórn eftir stríðið nema Bandaríska herstjórn. Mér finndist náttúrulega langbest að þeir fengju að kjósa sér stjórn sem fyrst en mér finnst líklegt að kanarnir komi til með að sitja sem lengst meðan þeir eru að finna sér góðan lepp sem verður næsti einræðisherrann þarna úti.

Re: Ojj, hundaskítur !

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Garðurinn er sameign og hann má strangt til tekið ekki vera með hundana í garðinum nema þú gefir leyfi. Svo ættir þú endilega að tala við bæjaryfirvöld þar sem þú átt heima og spyrja hvort hann sé með leyfi fyrir öllum þessum hundum.

Re: Fyrir Hundanna okkar

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þið þurfið bara að þrýsta meira á matvörubúðir að vera með þessar vörur. Ég man hvernig þetta var meðan ég bjó á Íslandi og átti hund. Það var hending hvort það var til hundamatur og þá hvaða tegund. Bara happa og glappa hvað var keypt inn. Það getur líka verið að heildsalarnir séu ekki nógu duglegir að fá búðirnar til að panta. Núna er ég í Kanada og er með kött og í matvörubúðinni þar sem ég versla er hálfur gangur lagður undir dýravörur, margar tegundir af kattamat og sandi, kattakössum...

Re: Prentarar

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég þekki ekki þennan prentara en miðað við önnur Samsung tæki sem ég og aðrir í minni fjölskyldu hafa átt, þá eru það ekki hágæða tæki, samt svona allt í lagi.

Re: Spurning um skeggrót

í Heilsa fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það þekktist líka í gamla daga að nota hænsnaskít og þótti gefa góða raun.

Re: Dýrasta hobbí á landinu.

í Flug fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Og hvað með sjúkraflugið? Ég bý í Kanada og það er flugvöllur í miðbænum hjá mér. Eflaust væri hægt að byggja slatta af blokkum á honum en það dettur engum í hug. Hann er einmitt notaður fyrir sjúkraflug, einkaflug og eitthvað smá fyrir leiguflug og herinn.

Re: ringu

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Mér brá nú ekkert yfir The Ring og eiginlega leiddist bara.

Re: Heilsa landsmanna

í Heilsa fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það er nú þegar lægri skattur á “hollum mat” eða 14% en 24,5% á óhollustumat eins og gosi og snakki. Mér finnst svo sem ekkert að því að breyta þessu meira. Kókómjólk er með helling af sykri en það er alla vega mjólk í henni með kalki og einhverju þannig að hún hefur a.m.k. smá næringargildi. Svali er líklega með C-vítamín og kannski smá af hreinum ávaxtasafa í frekar litlu hlutfalli.

Re: Flutningabílar

í Heimilið fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hringdu bara í einhverjar sendibílaþjónustur.

Re: Þjóðverjar,....afskiptalausir, ....huglausir???

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Iss, hann hefði verið ennþá meiri hetja ef þjófurinn hefði verið að ræna veski gamallar konu. Fólki er meira sama um fyrirtæki þar sem þau eru líka yfirleitt tryggð fyrir svona löguðu.

Re: Krabbamein í kisum

í Kettir fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þær geta fengið krabbamein í spenana, sérstaklega ef þær hafa ekki verið teknar úr sambandi. Þú ættir bara að láta tékka á þessu. Gæti líka verið eitthvað saklaust.

Re: kennitöluþjófar !!!

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hann hefur líklega ekki sagt nógu skýrt frá þessu og ætti bara að kvarta aftur og heimta að sá notandi sem er á kennitölunni hans verði bannaður med det samme svo hann geti stofnað nýjan notanda á sinni kennitölu.

Re: Þjóðverjar,....afskiptalausir, ....huglausir???

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ef honum hefði tekist að stoppa þjófinn, þá hefði hann verið hetja en vegna þess að það misheppnaðist, er hann þá ekki misheppnuð hetja? Ef maður sem leggur sig í hættu við að bjarga fólki eða verðmætum er ekki hetja, hver er þá hetja? Annars minnir mig að þjófurinn sem hann reyndi að stoppa hafi verið að koma úr innbroti í fyrirtæki.

Re: Einelti - helvíti á jörð

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það er grein um einelti á Börnin okkar og þar var einhver að segja frá því að einhver stelpa bauð öllum í afmælið sitt yfir allan bekkinn nema 2 sem hún tiltók sérstaklega að væru ekki boðnar og önnur þeirra væri “ógeð”. Kennarinn sagði ekki orð. Ég held að hvað líðst í tímum fari bara mikið eftir kennaranum. Ef kennarinn lætur eins og hann heyri ekki, þá getur það alveg viðgengist.

Re: Lífið og tilveran

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Tilveran er heimili stigahóra þessa dagana :( Afnemum stigin!

Re: Grein úr DV . Var nær dauða en lífi.

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hún mátti það alveg en það sem fólk er að segja að það er kannski ekki sérlega ábyrgt að skilja hundinn eftir bundinn úti þegar maður er ekki heima. Rétt eins og fólk setur barnið sitt sofandi út í vagn en það skilur það ekki eftir þar á meðan það er ekki heima. Auðvitað hefur enginn rétt til að fara inní garðinn og sparka í hundinn og það hefur heldur enginn rétt til að stela hjólinu þínu sem þú skilur ólæst eftir í garðinum en þýðir samt ekki að það muni ekki gerast. Annars vona ég bara að...

Re: Bandaríkin - Ameríka

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég bý einmitt í Edmonton. Ágætis bær. Fólk hérna frekar þægilegt og kannski ekki eins mikið að flýta sér eins og í stórborgunum. Bílamenningin minnir á Ísland. Fólk keyrir allt og þarf helst að vera á jeppa og reyndar eru pallbílar mjög vinsælir líka.

Re: Lífið

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þú getur orðið stjarneðlisfræðingur. Að vísu gera þeir yfirleitt engar markverðar uppgötvanir nema á svona 30 ára fresti þannig að það er ekki fyrir alla :) Þar að auki fylgir því yfirleitt að vera kennari líka, allavega þeir sem eru á Íslandi. Þeir kenna við HÍ og rannsaka þegar þeir geta, líklega mest á sumrin.

Re: Bandaríkin - Ameríka

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég bý í Alberta fylki. Þar eru beljur og olía. Í BC eru hippar. Í Saskatchewan er allt að fara í eyði en þar eru aðallega bændur. Í Manitoba eru bændur og mýflugur og Vestur-Íslendingar. Í Ontario eru skógar og vötn og mýflugur og borgarbúar (Toronto og Ottawa). Í Quebec eru frakkar; borgarbúar í Montreal, bændur annars staðar. Í fylkjunum þar fyrir austan eru fiskimenn sem eru líka á hausnum því þeir eru búnir að veiða allan fiskinn. Í fylkjunum fyrir norðan er ís, ísbirnir og indíánar :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok