Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Tölvuþjófnaður

í Netið fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það væri t.d. hægt að selja hana á kassi.is Annars held ég að þetta sé oft svona maður til manns dæmi. Sá sem stelur lætur kannski handrukkarann sinn hafa tölvuna uppí skuld. Hann geymir hana kannski í smátíma en þar sem fólk sem hann umgengst og veit hvað hann gerir kemur til hans og biður hann að redda þessu eða hinu, þá er hún kannski seld til manns sem þekkir mann o.s.frv. og veit að hún er stolin eða alla vega ætti að vita það. Það getur samt vel verið að hún birtist í DV þannig að þú...

Re: Fjölskyldur í dag

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég er þvílíkt sammála því að mér finnst að fólk mætti vera ábyrgara. Smokkar eru reyndar ekki 100% en fólk verður bara að taka ábyrgð á því líka þegar þeir klikka.

Re: Saga Íraks í hnotskurn!

í Ferðalög fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ágæt grein svo sem en ætti hún ekki frekar að vera á sagnfræði? Ég held ekki að það séu margir að skipuleggja ferðalög til Íraks þessa dagana :)

Re: Frelsun Íraks er runnin upp! Baghdad er fallin!!!!

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Já, ég sá einmitt í imbanum 12 ára strák á spítala eftir að Bandaríkjamenn höfðu varpað sprengju á húsið hans. Öll fjölskyldan hans dó en hann var svo heppinn að sleppa með að missa bara báða handleggina. Örugglega rosalega glaður núna að vera frelsaður.

Re: hvað finnst þér um lögleiðingu...

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég þekki fólk sem hefur reykt kannabis og hefur hætt þannig það er ekkert ómögulegt að hætta. Það eru heldur ekki allir sem reykja kannabis sem fara í eitthvað rugl og reykja allan daginn. Ekkert fleiri heldur en fara illa útúr áfengi. Ég bý í Kanada og bæði hér og í Bandaríkjunum reykir annar hver maður gras um helgar og er ekkert verri fyrir það heldur en ef hann fengi sér bjór.

Re: Álit

í Rómantík fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þú verður eiginlega að spyrja hann en það gæti verið að hann væri bara óöruggur að vera með börnunum. Hann býr ekki þarna þannig að hann hefur væntanlega ekki þurft að umgangast þau neitt nema þú sért á staðnum og það gæti verið að hann kunni bara ekkert á börn eða líka að hann sé hræddur um að þau verði erfið við hann. Það er oft erfitt fyrir menn að vera í sambandi með konu sem á börn. Börnin eru alltaf númer 1 og þau geta verið afbrýðisöm og reynt á sambandið með því að láta hann vita að...

Re: Prenari

í Hugi fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hringdu í fyrirtækið þar sem þú keyptir hann og láttu þá segja þér hvað þú átt að gera. Líklega bara driver. Þú getur líka sótt driverinn á <a href="http://h20015.www2.hp.com/en/softwareCategory.jhtml?reg=&cc=za&pagetype=software&prodId=dj400&lc=en&docparent=19901025&sw_lang=en">http://h20015.www2.hp.com/en/softwareCategory.jhtml?reg=&cc=za&pagetype=software&prodId=dj400&lc=en&docparent=19901025&sw_lang=en</a

Re: Listabrautir

í Skóli fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Borgarholtsskóli, Flensborg, Kvennó, MK, FB, FG, IH, IR, FVA (Akranesi), FSu (Selfossi), ME (Egilsstöðum), MA, VMA

Re: leiðinni til Orlando

í Ferðalög fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Tékkaðu á <a href="http://www.google.com/search?q=Orlando+bed+and+breakfast">http://www.google.com/search?q=Orlando+bed+and+breakfast</a

Re: að þæfa=víma katta?

í Kettir fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Kisan mín gerir þetta við mig þegar hún kemur og leggst í handakrikann en hún gerir þetta bara ef ég er í bol, ekki ef ég er ber að ofan þannig að hún klórar yfirleitt ekkert mikið í gegn.

Re: Fídus: fylgjast með user

í Hugi fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þú verður bara að kíkja að Ítarleg leit reglulega og henda inn notandanafninu hans. Annars hugsa ég að hann sé þurs því hann hefur ekkert skrifað nema svör á þessa einu grein.

Re: Kellingar í óvissuferð!

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Keilu? Ratleik/kanínuveiðar í Öskjuhlíðinni? Loftleiðalaugina á eftir og sauna? Ég held nefnilega að það sé ekki orðið nógu hlýtt fyrir ströndina ennþá ;) Annars gætuð þið líka skroppið í lasertag. Hesta og kanóferðir heilla ykkur varla fyrst þið eruð svona sveitalegar en það er vinsælt hjá okkur borgarbúum þegar við skreppum í óvissu. Líka sjóstangaveiði og svoleiðis. Annars ekkert fleira sem mér dettur í hug.

Re: hvað finnst þér um lögleiðingu...

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Mér finnst að það mætti leyfa kannabis vegna þess að það er ekkert skaðlegra en áfengi. Ef það ætti að leyfa sölu áfengis í búðum, þá þyrfti það að vera mjög strangt með skilríki og þeir sem yrðu uppvísir að brotum myndu missa leyfi til að selja það. Sama ætti að vera með tóbak. Annars er það ekki vandamálið fyrir 16 ára krakka í dag að redda sér áfengi. Margir foreldrar kaupa fyrir krakkana, frændur, frænkur, eldri vinir og svo er náttúrulega landasali hverfisins með heimsendingarþjónustu.

Re: Anarkismi

í Sorp fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hvernig á almenningur að taka ákvarðanir um allt mögulegt ef það er engin yfirstjórn til að skipuleggja atkvæðagreiðslu?

Re: vændi íslenskra ungmenna.....

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ef ungmenni stunda vændi, þá er það annað hvort vegna þess að þau vantar massa pening fyrir dópi eða vegna þess að þeim finnst það skárri kostur en að vinna í fiski eða verksmiðju. Sumum finnst nefnilega ekkert að því að stunda vændi, ábyggilega fín laun miðað við vinnutíma. Hins vegar eru aðrir sem myndu ekki gera þetta þó þeir fengju 100 millur á nóttina.

Re: sovétríkin fyrrverandi og meira

í Ferðalög fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég giska á að þetta sé copy/paste úr landafræðibók djkisu og greinin eingöngu til þess fallin að næla sér í stig þar sem Hugi er búinn að taka fyrir flestar aðrar leiðir en greinaskrif. Skil samt ekki af hverju djkisa henti ekki inn mynd með greininni, það eru víst 8 auka stig fyrir það :) Annars held ég að það væri langbest að afnema þessi blessuð stig.

Re: Loksins eitthvað að gerast !!

í Farsímar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég var hjá Símanum meðan ég bjó á landinu en man ekki af hverju ég valdi hann frekar en Tal. Líklega hef ég bara verið að spá í þjónustusvæði ef ég færi út á land en Tal var þá ekki með samning við Símann ef ég man rétt.

Re: Filmur í glugga...

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hvað er að gardínum? :) Annars er hægt að fá þessar filmur. Ég var að vinna hjá fyrirtæki sem lét setja svona fyrir nokkrum árum. Þær spegla útá við þannig að það sést verr inn en reyndar ef það er ljós inni og myrkur úti sést samt inn. Það er hægt að fá þær mis dökkar og þær eru mikið settar í fyrirtæki sem eru með suðurglugga til að minnka hitann frá sólinni. Sólin skín samt inn en hitar ekki eins mikið. Hér eru þau fyrirtæki sem eru undir Sólarfilmur hjá Gulu línunni: <a...

Re: ÓTRÚLEGT!!!!FÁRÁNLEGT!!!

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Miðað við hvað Star Wars er dautt áhugamál, þá held ég bara að betri séu stuttar greinar en engar. Allar nýjar greinar koma á forsíðu og ýta hver annarri út eftir þvi sem þær eldast. Það er enginn að skylda þig til að lesa greinar á forsíðu af áhugamálum sem þú hefur ekki áhuga á. Ég býst fastlega við að ef þú hefðir áhuga á Star Wars, þá myndir þú skrifa greinar þangað eða alla vega svara þeim fáu sem birtast með einhverju gáfulegra en “ERTU AÐ DJÓKA? ÞETTA SEM GREIN???!!???”

Re: Bandaríkin - Ameríka

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég hef meira að segja heyrt fólk fullyrða það að strætó gangi ekki heim til þess en svo hef ég ætlað að heimsækja það og þá hringi ég í strætó og annað kemur í ljós. Það er nefnilega hægt að hringja og fá upplýsingar um hvaða strætó maður á að taka hvar og hvenær og hvenær skipta til að komast frá A til B kl. eitthvað ákveðið. Reyndar þarf maður stundum að labba í 5 mín. til að komast á réttan stað og það er víst alveg óyfirstíganlegt vandamál fyrir sumt bílafólkið. Miðað við núverandi gengi...

Re: Bandaríkin - Ameríka

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Jú, það er reyndar ágætur strætó sem ég hef notað mér hingað til en þeir sem eru á bíl segja að strætókerfið sé handónýtt o.s.frv. Svo eru líka margir sem búa fyrir utan bæinn og eiga því ekki kost á strætó.

Re: Verðskrá...?

í Farsímar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þú getur séð hana á <a href="http://www.islandssimi.is/web/GSM/Heimili/Verdskra">http://www.islandssimi.is/web/GSM/Heimili/Verdskra</a

Re: Skortur á sýningum á Íslandi ??

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Alltaf gaman þegar gengur vel :) Hvaða tegund ertu annars að rækta?

Re: Hjálp....

í Kettir fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hah, hleyptu henni bara út. Þá koma þeir ábyggilega í röðum. Eru þeir ekki annars þarna beint fyrir utan hjá þér?

Re: NNNNNNNNNEEEEEEEEEEIIIIIIIIIIIII !!!!!!!!!!!

í Skóli fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þú verður þá bara að fara með teikniblokk og teikna það sem þig vantar :) Annars finnst mér þá frekar að þau ættu að senda þig í enskuskóla. Enskan er mun mikilvægari en danskan.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok