Ég hef heyrt þetta með sjúkrasamlagið. Ef þú ert í burtu meira en 6 mánuði er litið svo á sem þú sért ekki lengur með lögheimili á landinu og þú missir réttindi. Hins vegar er líka spurning af hverju fólk sem býr erlendis ætti að vera með einhver réttindi í íslenska heilbrigðiskerfinu? Ég á bróður sem er búinn að búa í Bandaríkjunum í tæp 20 ár og borgar sína skatta þar. Á hann bara að geta skroppið heim og fengið alla læknisþjónustu frítt á kostnað íslenskra skattborgara? Ég bý sjálfur í...
Hvort sem hann er sekur eða saklaus þá segja Bandarísk lög að maður eigi að vera saklaus þar til sekt hans er sönnuð “beyond a reasonable doubt” eins og þeir segja. Mér finnst ólíklegt að þeir hefðu sleppt honum út nema vegna þess að sannanir voru ekki nægar. Það er líka meingallað þetta kviðdómskerfi þar sem fólk með enga reynslu af réttarhöldum á að ákveða hvort viðkomandi er sekur eða saklaus meðan sækjandi og verjandi ljúga sig hver um annan þveran til að fegra sinn málstað. Það er...
Flestir sem voru dæmdir í Nurnberg voru held ég hengdir eða settir í lífstíðarfangelsi. Getur samt vel verið með börnin og barnabörnin. Annars hef ég líka heyrt að Þjóðverjar eftir stríð hafi tekið sig mikið á að kenna um helförina í skólum til að þetta endurtæki sig aldrei. Það sagði mér kona fædd 1969 að þau hefðu gert skólaverkefni um helförina á hverju einasta ári og sumar bækurnar sem þau áttu að lesa var henni neitað um á bókasafninu því bókaverðinum þóttu þær ekki við barna hæfi með...
Mér finnst ég vera að heyra það frá fullt af fólki að það sé þessi regla í skólanum að öllum bekknum eða öllum af sama kyni sé boðið. Ég veit að það er einhver skóli í Mosó sem er með þessa reglu og held ábyggilega að það hafi líka verið í skóla sem frænka mín var í þegar hún bjó í Grafarvogi og önnur frænka mín sem bjó í Garðabæ. Enda er fólk farið að þurfa að hafa 3 afmæli, eitt fyrir bekkinn, eitt fyrir vinina sem eru ekki í bekknum og eitt fyrir ættingja :) Hins vegar þurfa kennarar líka...
Þegar ég var með frelsi, þá hringdi ég alltaf í þjónustusímann og lét taka taka það af vísakortinu mínu. Virkaði alltaf. Annars bý ég í Kanada núna og þar sem maður borgar fyrir að það sé hringt í mann, þá er ekki heldur hægt að hringja í fólk sem á ekki inneign :)
Ég hef heyrt að þú verðir að láta hundana finna það greinilega hver er nr. 1 og alltaf klappa nr. 1 fyrst, gefa nr. 1 að éta fyrst o.s.frv. Það er í eðli þeirra að það sé goggunarröð og sá sem er nr. 2 sættir sig alveg við það en þeir þurfa samt að hafa það á hreinu hver er 1 og hver er 2 til að þeir fari ekki að slást um 1. sætið. Fyrst sá yngri er bara hvolpur, þá er eðlilegt að tíkin sé nr. 1 þar sem hún ræður hvort sem er alveg við hann ef hann fer eitthvað að ybba sig.
Ég hef þurft að taka þessa ákvörðun þegar hundurinn minn var orðinn gamall og veikur og ég ákvað að leyfa honum að fara. Hins vegar verðið þið að taka þessa ákvörðun fyrir ykkur. Ég myndi líklega bara láta þetta hafa sinn gang, fara með hana eins og prinsessu á meðan hún er ennþá við heilsu og svo leyfa henni að fara þegar hún fer að veikjast.
Ég veit um miðaldra mann sem fékk númer 1 fyrir mistök frá einhverri stelpu sem hann þekkti ekki neitt en það var aðeins önnur útgáfa því hún var ekki úr Hafnarfirði :) Mamma hefur fengið stærðfræðidæmið líka fyrir mistök. Ég held henni hafi bara þótt það fyndið :)
FÁ, FB, FG, Flensborg, Fjölbrautaskóli Vesturlands, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Menntaskólinn á Laugarvatni, Framhaldsskólinn að Laugum, ME og VMA.
Fyrst þú ert að splæsa í nýja innréttingu, viltu þá ekki fá almennileg tæki í hana? Það er oft enginn sparnaður í því að kaupa það ódýrasta þegar upp er staðið.
Þú getur líka hringt á bæjarskrifstofuna þar sem þú átt heima og spurt hvort það sé borgað fyrir hundaleyfi og hvað það kostar. Annars held ég að það sé engin sekt við að hafa ekki leyfi. Bara að ef það kemst upp um þig, þá verður þú að fá þér leyfi. Gæti verið að það væri hærri sekt líka ef hann sleppur út.
Írakar hér í vesturheimi eru alla vega himinlifandi yfir að það eigi að koma Saddam frá völdum en þeir hafa líka áhyggjur af að Bandaríkjamenn munu koma upp leppstjórn þar eins og þeir gerðu í Afganistan. Það var verið að tala við nokkra fulltrúa þeirra í fréttaþætti hér um daginn og þeir sögðu að Írakar væru uppreisnargjarnt fólk og ef Bandaríkjamenn ætluðu eitthvað að setjast þar að of lengi, þá myndi þjóðin rísa gegn þeim. Þeir mæltu með því að það yrði herstjórn í nokkrar vikur og þá kosið.
Mér finnst að það mætti alveg vera eitthvað GED en það má ekki vera svo létt að stúdentinn verði einskis virði. Stúdentinn á að undirbúa fólk undir háskólanám og það er eiginlega tvíþætt. Í fyrsta lagi þarf stúdentinn að kunna ýmislegt en það er ekki nóg heldur þarf hann líka að læra vinnubrögð. Gamaldags menntaskólar með bekkjakerfi þar sem fólk tók stúdentspróf úr öllu námsefninu í restina stóðu sig mjög vel í þessu. Hins vegar núna þegar fólk kemur úr áfangaskólum þar sem það hefur...
En ef sérhæfingin byrjaði fyrr, þá væri bara nákvæmlega sama, þú velur eitthvað skemmtilegt til að sérhæfa þig í og fattar svo að þig langar í háskólanám í einhverju öðru. Krökkunum í Bandaríkjunum finnst svona gaman í college vegna þess að þá fá þau flest að flytja að heiman, 18 ára gömul, og foreldrarnir borga yfirleitt brúsann. Þetta er því miklu meiri spenningur en fyrir krakka á Íslandi. Samt eru líka mjög margir sem detta út úr college í Bandaríkjunum.
Tefst þá greiðlumatið bara meðan hún er í fríi? Það finnst mér nú frekar lélegt. Þeir eiga að hafa einhvern sem kann starfið hennar og getur gengið í það þegar hún fer í frí eða veikist.
Þetta er hið versta mál. Mér gæti ekki verið meira sama þó litlu stigahórurnar gerðu ekki annað en að skrá sig inn allan daginn, þær gera þá ekki annað verra á meðan. Núna hins vegar fara þær að skrifa rusl greinar á hin og þessi áhugamál og þar með ýta niður greinum sem eru einhvers virði auk þess að eyða mínum tíma í að kíkja á þessar greinar sem þær skrifa.
Og er þetta vísindalega staðfest eða bara “einhver saga”? Það er til ótrúlega mikið af alls konar huglæknum og í rauninni eru þeir ekki ósvipaðir lækningapredikurum. Það er margt fólk sem telur sig hafa fengið einhverja bót (kannski sálrænt) en frekar lítið um vísindalegar sannanir.
Ég er ekki svo viss um það. Alla vega það sem ég upplifði með mig og mína félaga var algjör hentistefna. Það eru jú einhverjir sem bíta sig fasta í einn flokk og halda sig við hann en ótrúlega margir sem láta það bara fara eftir hver býður best. Meðan maður er í námi, þá vill maður flokkinn sem lofar að hækka námslánin og koma upp öflugra velferðarkerfi og þegar maður er farinn að vinna, þá er maður svo til strax farinn að kjósa flokkinn sem lofar að lækka skatta, jafnvel þó hann ætli að...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..