Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Bandaríkin - Ameríka

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Já. T.d. fór Bretland í stríð með Könum í Írak en Kanadamenn sitja heima. Þeirra ákvörðun. Þó eru skiptar skoðanir um það og í því fylki sem ég bý í sem er mikill olíuiðnaður og landbúnaður er fólk aðeins Bandarískara í hugsun og byssuglaðara en borgarbúar í Toronto, Ottawa og Montreal þarna fyrir austan. Þeim finnst hér mörgum sjálfsagt að fara með Könum í stríðið til að “hjálpa vinum sínum” og hefur fylkisstjórinn meira að segja sagt það opinberlega og fékk skammir fyrir frá ráðamönnum í...

Re: Lífið

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég á nú reyndar einn frænda sem týndist í tölvunni. Hann getur ekki unnið eða verið í skóla eða neitt. Ég held ég hafi heyrt að mamma hans hafi endað með að senda hann á geðdeild því hann vill ekki gera neitt annað en að hanga í tölvuleikjum. Annars hefur menntasnobb lengi þekkst. Ég átti tvö skólasystkin í HÍ sem hafði langað að fara í iðnnám en foreldrar þeirra fengu áfall og töldu þau af því. Það er líka margt menntað fólk sem heldur sig vera eitthvað betra en aðra en hvað ætli það myndi...

Re: Prentarar

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég þarf ekki lit og segi það líka í greininni. Yfirleitt tími ég ekki að endurnýja litahylkin þegar þau fara. Það var þannig með gamla prentarann minn og verður þannig með þennan líka. Litahylkið er farið að strika fyrir löngu en ég sé það ekki nema þegar ég stilli hylkin saman. Þegar það fer endanlega þá ætla ég ekki að skipta um það. Alla vega tók ég þá ákvörðun að ég hefði ekki efni á nýjum prentara að sinni og fékk mér því eitt hylki í viðbót en sé til hvað ég geri þegar það fer :) Næsti...

Re: Smá umhugsun!

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Mér finnst alla vega skárra að fólk láti svæfa þá eða gefi þá til einhvers góðs fólks heldur en að hafa þá áfram hálfvanrækta ef það hefur ekki tíma fyrir þá. Fólk ætti náttúrulega helst að hugsa út í það fyrirfram hvað það er mikil vinna að hafa hund en það gera það ekki allir og bara spurning að gera það besta úr því ástandi sem er komið upp. Svo er náttúrulega til líka að aðstæður hjá fólki breytast. Annars veit ég ekkert um aðstæður hjá þessu fólki sem átti hundinn sem var ráðist á og...

Re: Flosi Ófeigsson

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Af hverju hringir þú ekki bara heim til hans?

Re: Svefngenglar

í Dulspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það er ákveðin heilastöð sem á að lama fólk meðan það sefur svo það hlaupi ekki út um allt og fari sér að voða en þegar þessi heilastöð er ekki alveg að virka, þá getur fólk gengið í svefni. Það hlýtur líka að vera eitthvað meira vegna þess að fólk getur komist um og séð hvert það er að fara án þess að vera alveg á staðnum. Ég þekki til dæmis einn sem dreymdi að hann var að labba á einhverjum skrítnum gangi og lesa á skilti á hurðum og svo sá hann eina hurðina og las nafnið sitt en þá...

Re: Andaglas...langar að prófa!!

í Dulspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Og hvernig vissu þau að andinn hefði drepið litlu systur? Það er fullt af börnum sem deyja vöggudauða án þess að andar drepi þau.

Re: Þjóðverjar,....afskiptalausir, ....huglausir???

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þýskaland er nú ekkert einsdæmi að fullt af fólki horfi upp á einhvern barinn án þess að gera rassgat. Ég veit um íslenskan mann sem var laminn í hakk í Kaupmannahöfn og tókst að flýja hálfur inní pylsuvagn og pylsusalinn henti honum bara út aftur og hélt áfram að horfa á. Það eru líka nokkur ár síðan að það var einhver kona á Íslandi sem var verið að nauðga og var að reyna að flýja frá manninum og að reyna að stoppa bíla en það stoppaði enginn fyrir henni. Það eru líka þó nokkuð mörg ár...

Re: Írak og farsímastaðlastríðið

í Farsímar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Eða kannski SonyEricsson sem er nú varla alveg sænskt lengur :) Eru Finnar og Svíar annars með eða móti stríðinu?

Re: Grein úr DV . Var nær dauða en lífi.

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þessi grein er líka á hvuttar.net á http://www.hvuttar.net/naer-dauda.htm og það er mynd af svona hundi þar. Veit ekki hvort það sé hundurinn sem var sparkað í eða ekki en alla vega boxer. Annars trúi ég því að hvað sem maður gerir öðrum komi til baka aftur þannig að sá sem framdi þetta níðingsverk á eftir að fá það launað á einhvern hátt.

Re: Mun fólk kjósa rétt ?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þú getur séð þennan lista á http://hdr.undp.org/reports/global/2002/en/pdf/backone. pdf Þeir taka með í reikninginn menntakerfi, heilbrigðiskerfi, fátækt og ýmislegt annað og reikna skv. því.

Re: HJÁLP !!!

í Kettir fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ætli það sé ekki best að reyna að halda frænkunni frá kettinum og öfugt :)

Re: Arrggg

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Prófaðu að henda handklæði yfir hana um leið og þú skrúfar fyrir vatnið. Þá nær hún ekki að hrista sig. Virkaði alla vega á hundinn minn.

Re: Aðeins um þessa

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Slappaðu af. Ég var ekki að segja neitt um þig eða vinnuslys heldur um íþróttamenn. Það er nefnilega gert upp á milli þess hvað fólk er að gera þegar það slasast. Ef þú slasast þar sem þú ert að labba útí búð að kaupa mjólk, þá færðu enga slysadagpeninga en ef þú slasast við að spila fótbolta, þá færðu bætur. Hvort er nú mikilvægari iðja að kaupa mjólk eða spila fótbolta? Af hverju ættu þeir ekki báðir að eiga rétt á bótum? Eða þá sá sem var að kaupa mjólk frekar en hinn sem viljandi spilar...

Re: Dresden 2003

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þeir munu líklega sitja um borgina og reyna að fá njósnir af því hvar Saddam er og reyna að sprengja hann eða það herlið sem hann á þá eftir. Líklega verður þá slatta mannfall óbreyttra borgara en ég held að þeir muni alla vega reyna að sneiða hjá þeim.

Re: Aðeins um þessa

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Af hverju ætti kerfið að tryggja íþróttamenn eitthvað sérstaklega? Þeir eru sjálfir að leggja sig í hættu. Mér finnst að það ætti þá miklu frekar að hafa slysadagpeninga fyrir fólk sem dettur á hálku því það getur alla vega ekki gert að því.

Re: Írak og farsímastaðlastríðið

í Farsímar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Mér finnst nú gáfulegast að setja upp sama kerfi og er í nágrannalöndum þeirra svo þeir geti notað símana þegar þeir bregða sér af bæ. Hins vegar er það líka spurning að ef Bandaríkjamenn ætla að borga fyrir nýja kerfið, er þá ekki eðlilegt að þeir vilji styrkja fyrirtæki í eigin landi frekar en að nota peninginn til að kaupa það frá Evrópu? Hér er hægt að sjá fréttir um þetta: http://siliconvalley.internet.com/news/article.php/2171 271 http://www.itworld.com/Net/3029/030327iraqgsm/

Re: Dresden 2003

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Kallinn heitir nú Saddam en ekki Satan og ég myndi heldur ekki líkja þessu við Dresden. Þegar loftárásirnar á Dresden voru gerðar voru þar engin hernaðarleg skotmörk. Það var bara verið að sprengja almenna borgara og verra vegna þess að borgin var full af flóttafólki. US og UK eru hér alla vega að reyna að sprengja sem fæsta almenna borgara og sem mest af hernaðarlegum skotmörkum þó það takist væntanlega ekki alltaf hjá þeim.

Re: Aðeins um þessa

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Betri ólögleg leið en engin leið. Af hverju gerir hún ekki bara það sem starfsmaðurinn sagði?

Re: einelti...hvað gerir kennarinn? Ekkert !

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
“Afhverju er ekki gert meira af því að reka krakka úr skóla á Ísland!” Ég held nú aðallega vegna þess að krakkarnir eru skólaskyldir og þurfa að fá sína menntun einhvers staðar og hins vegar vegna þess að foreldrarnir brjálast og trúa engu uppá litla engilinn sinn. Mér finndist það hins vegar fín hugmynd ef það virkar ekkert annað að reka versta eða verstu gerendurna úr skóla og þeir þurfa þá bara að skipta um skóla. Það ætti líka að mæla fyrir að ef þeir eru fleiri en einn reknir, þá fái...

Re: American Idol - Wannabe Rokkari

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Mér finnst langbest þegar þeir eru að fara um og taka fólk í fyrstu prufurnar. Það er svo mikið af fólki sem heldur að það geti sungið en er alveg ömurlegt. Annars er hægt að sjá spoiler á http://www.idolonfox.com/contestants/ hverjir komust áfram í efstu 12 og hverja er búið að kjósa út.

Re: Er einhver von?

í Rómantík fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það gæti verið að þú sért bara ekki tilbúinn fyrir annað samband. Annars verður þú bara að finna það sjálfur hvað er rétt fyrir þig. Það getur enginn annar ákveðið það fyrir þig.

Re: Spurning aldarinnar

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það væri náttúrulega fínt að skíra þá alla sama nafninu þar sem þá þyrfti maður aldrei að þekkja þá í sundur, sérstaklega ef þeir væru eineggja. Þeir gætu t.d. heitið Jón. Ef þeir væru ekki eineggja, þá væri fínt að þeir hétu Gísli, Eiríkur og Helgi ef það eru strákar en Ása, Signý og Helga ef það væru stelpur.

Re: einelti...hvað gerir kennarinn? Ekkert !

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það er ekki heragi sem er málið heldur að láta krakkana setja sig í spor þess sem lendir í eineltinu. Krakkar hugsa bara oft ekkert út í það hvernig þeim líður sem er verið að hrekkja. Þeir halda því bara áfram vegna þess að þeim finnst það gaman.

Re: KLÁM Á POPPTV !!!

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ef foreldrar vilja ekki að börnin þeirra sjái brjóst, þá geta þeir bara skipt um rás þegar þau sjást eða tekið fyrir augun á börnunum. Hins vegar krefst þetta þess að foreldrar noti ekki sjónvarpið sem barnapíu heldur horfi á það með börnunum sem er kannski of erfitt fyrir suma. Alla vega, þá er heimurinn ekki barnheldur þannig að ég sé ekki af hverju sjónvarpið ætti að vera það :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok