Hæhæ, þannig er mál með vexti að ég á 10 ára læðu. Þegar ég var að klappa henni í kvöld fann ég einn stóran hnút, eiginlega bara kúlu á maganum á henni og fór að skoða þetta betur og fann fleiri, bara minni. Gæti verið að hún sé með æxli? Henni virðist ekki finnast þetta neitt vont, ég mátti alveg skoða þetta án mótmæla, hún malaði bara. Vona að einhver geti hjálpað mér…
kv. Ragga