Já ég veit ekki alveg hvar þessi spurning á heima en mér fannst þetta besti kosturinn því að gelgjurnar eru í miklum meirihluta á tíska&útlit áhugamálinu.

Málið er að ég er ekkert að fá neina skeggrót sem fer mjög svo í pirrurnar á mér, pabbi minn var löngu kominn með skeggrót en ég er ekki að fara að spyrja hann um þetta því það er very gay :)

En þá spyr ég, hvernig á ég að raka mig, á ég að raka niður með rakvélablaðið, eða upp eða bara til hliðar? Ég er bara að fá einhverja asnalega brodda og líka alveg einstaklega lítið af þeim.

PS: Ég er að nota gillette 3 blaða rakvél, svo einhverja raksápu og after shave krem og ég er alveg að nálgast 19 ára afmælisdaginn minn! Öll hjálpleg svör eru vel þeginn :+

PS2 (ekki leikjatölvan): Eru til karlmenn sem vaxa ekkert skegg á?