Það er samt mjög algengt að konur taki höfuðábyrgð á heimilinu og börnunum. Alla vega á þeim stöðum sem ég hef verið að vinna, þá virðast það mun frekar vera konurnar sem eru að hringja í kennarann, íþróttaþjálfarann, tónlistarkennarann o.s.frv. Frekar þær sem börnin hringja í í vinnuna ef þau vantar eitthvað. Frekar þær sem er hringt í ef eitthvað kemur uppá í skólanum, t.d. barn veikist. Frekar þær sem taka frí þegar börnin veikjast. Frekar þær sem þurfa að hlaupa heim á slaginu til að...