Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þannig að það er réttlætanlegt í þínum huga að ráðast inní lönd þar sem yfirvöld “eru með kjaft”?

Re: Hjálp: Pissar á gólfið

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég veit um konu sem á kött sem fær stundum nýrnasteina og þegar kisan er kvalin af þessu, þá pissar hún í rúmið hennar til að láta vita.

Re: Íraksstríðið – Lygar Bandaríkjastjórnar!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Moose: Ég held ekki að Írak hafi verið ógnun við eitt eða neitt. Ég held að Bush hafi bara valið þá til að valta yfir til að sýna enn einu sinni hvernig fer fyrir “óvinum Bandaríkjanna”. Hugsanlega hafa verið fleiri ástæður en ég er handviss um að öryggi Vesturlanda var ekki ein af þeim. Í sambandi við gjöreyðingarvopn, þá er víst ekki búið að finna þau ennþá en nú vilja Bandaríkjamenn meina að þeim hafi verið smyglað til Sýrlands. Næsta stríð í uppsiglingu. Annars yrði ég heldur ekki hissa...

Re: Stela...AaaAA

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Af hverju ekki krökkum? Mér finnst einmitt endilega krökkum. Þá gætu allar gömlu frænkurnar vitað að þeir voru að stela og hætt við að gefa þeim þúsundkall þegar þær kæmu í heimsókn. Myndi virka rosalega vel held ég :)

Re: Kosningaaldurinn........

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ef þú vinnur á 2 stöðum geturðu látið skipta skattkortinu og þannig kannski fengið meira í vasann eða notað námsmannaskattkortið á einum staðnum og venjulega á hinum. Hins vegar ef þú fullnýttir allt námsmannakortið (uppsafnaður persónuafsláttur frá janúar til maí) og líka venjulega fyrir þá mánuði sem þú varst að vinna, þá áttu samt persónuafslátt fram í tímann fyrir sept. til des. og ef þú vinnur ekki þá mánuði, þá færðu það endurgreitt árið eftir.

Re: Fegurðarsamleppnir í grunnskólum

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ef þetta væri einhver almenn hæfileikakeppni þá væri það kannski annað mál. Einhver mætir og sýnir dans og einhver syngur og annar spilar á fiðlu eða eitthvað. Hins vegar held ég ekki að fólk sem er mjög feimið og getur ekki stigið á svið myndi yfirleitt taka þátt í svona keppni. Það myndi láta hina um það sem eru hvort sem er athyglissjúkir og alltaf að sýna sig :)

Re: Um tölvubransann og jafnréttismál

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þau 5 ár sem ég var að vinna við forritun þá fannst mér ég verða var við það hjá þeim sem ég vann hjá og öðrum sem þeir voru að tala við, t.d. kúnnum, að þeir vildu helst ráða tölvunarfræðinga úr HÍ án tillits til reynslu og ég heyrði talað um að þeir sem væru úr öðrum skólum litu oft of stórt á sig miðað við hvað þeir kynnu lítið. Þegar þú ræður tölvunarfræðing, svo framarlega sem þú hefur ráðið tölvunarfræðing áður, þá veistu ca. hvað hann kann og hvernig vinnubrögð honum hafa verið kennd....

Re: Stela...AaaAA

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Mér finnst að ef þú næst fyrir að stela, þá á að smella mynd af þér og birta hana í blöðunum undir nafni ásamt því hvað þú varst tekin fyrir að stela og hversu oft þú hefur verið tekin. Ef þetta væri gert, þá myndu búðareigendur þekkja verstu þjófana strax því það hefðu svo oft komið myndir af þeim.

Re: Fegurðarsamleppnir í grunnskólum

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég býst við að hugsunin á bak við þetta sé að grunnskólakrakkar eru alveg nógu uppteknir af útlitinu án þess að það sé verið að verðlauna það eitthvað sérstaklega. Svo vilja svona keppnir í skólum oft verða meira einhverjar vinsældakeppnir þar sem vinsælustu krakkarnir eru bara kosnir.

Re: Loksins eitthvað að gerast !!

í Farsímar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég var með ISDN upphringisamband hjá Símanum en tók 70 tíma tilboði Íslandssíma, þ.e. 70 tímar á mánuði á netinu fyrir fast verð. Ég sparaði helling. Reyndar þurfti ég þá að nota netþjónustu með Íslandssíma númeri en skipti bara yfir í isl.is og lenti aldrei í neinu veseni með neitt þar.

Re: Litli Strákurinn Ali frá Írak

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hann ógnaði þeim ekki einu sinni. Ég held að þetta stríð hafi verið löngu ákveðið. Hvort það hefur eitthvað að gera með olíu, leiða huga Kananna frá Osama sem þeir hafa ekki ennþá fundið, leiða huga þeirra frá slæmum efnahag, styrkja stöðu sína í Mið-Austurlöndum, vernda Ísraela eða sýna hinum arabaþjóðunum hverju þær eiga von á ef þær eru með múður. Eitthvað af þessu held ég. Kannski allt í bland.

Re: Hvað er rasismi?

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Skilgreining á “racism” á dictionary.com: 1. The belief that race accounts for differences in human character or ability and that a particular race is superior to others. 2. Discrimination or prejudice based on race. Þannig gæti maður verið haldinn rasisma gagnvart eigin kynþætti ef hann sýnir öðrum af þeim kynþætti fordóma eða trúir að hans kynþáttur sé óæðri öðrum.

Re: Litli Strákurinn Ali frá Írak

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er alltaf verið að rifja það upp núna þegar Saddam drap 5000 Kúrda með efnavopnum sem vissulega var illvirki. Þetta gerðist hins vegar ekki nýlega heldur 1988 og hvorki Bandaríkjamenn eða Bretar sögðu orð við hann þá. Hann var þá besti vinur þeirra og þeir ypptu bara öxlum og héldu áfram að selja honum vopn.

Re: Píramíðar, verkfæri djöfulsins ?

í Tilveran fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þú ert ekki að stela sælgæti af barni en þú ert að gefa fólki falsvonir og selja því köttinn í sekknum. Þú gætir alveg eins selt vítamín töflur og fullyrt að þær læknuðu krabbamein. Fólk myndi kaupa þær og þá gætir þú bara sagt að það gæti sjálfu sér um kennt að vera svona heimskt. Já, fólk hættir í þessum kerfum vegna þess að það sér að kerfið er mettað og það kemst ekkert áfram. Það gefur aftur pláss til að plata nýja til að borga sig inn sem munu svo aftur hætta af sömu ástæðu o.s.frv.

Re: versla við eBay

í Tilveran fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þú verslar í rauninni ekki við eBay heldur í gegnum eBay. Hins vegar ertu að versla við það fólk sem þú býður í vörur hjá. Ég gæti t.d. verið að selja eitthvað á eBay og ef þú býður í það, þá áttu það við mig hvernig ég sendi það. Ég hef ekki hugmynd um hvað ShopUSA er en ég myndi bara spyrja þá hvað þetta myndi kosta. Ég gæti trúað að það væri ekkert gefins að senda 30 kg pakka.

Re: Litli Strákurinn Ali frá Írak

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég veit ekki hvort þú hefur séð sömu sjónvarpsfrétt og ég en ég sá alla vega að þó foreldrar hans hafi dáið, mamman ólétt meira að segja og bræður hans hafi dáið, þá á hann fullorðna systur á lífi og annað frændfólk sem getur haft hann þegar það er búið að lappa uppá hann. Hann er núna á spítala í Kúvæt og mér skilst að Íslendingar hafi boðist til að redda honum gervilimum. Hann bar sig bara frekar vel þegar fréttamenn töluðu við hann og veifaði með öðrum stúfnum. Hann missti ekki bara...

Re: Hjálp: Pissar á gólfið

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Láttu bara annan kassa þar sem hann pissar :)

Re: Köttur sem vill ekki kattamat

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Kannski verður þú þá bara að gefa honum mannamat. Hins vegar held ég að ég myndi samt reyna að plata hann. Geyma bara kattamatinn í ísskápnum og hafa matartíma. Láta hann hafa kattamatinn í korter, ef hann hendir honum út um allt, taka þá diskinn og matinn. Bjóða honum svo bara meiri kattamat aftur þegar hann vælir eitthvað. Ég er svo heppinn með köttinn minn að hún er svo matvönd að hún étur eiginlega bara kattamat.

Re: Lóðerí allt í kring!!

í Hundar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er nú engin grimmd í því að gelda þá. Það er eiginlega bara betra fyrir þá að kveljast ekki af greddu alla daga. Þeim líður nefnilega ekkert vel. Í fyrsta skipti sem hundurinn minn fann lykt af lóðatík þá hélt ég að hann væri veikur og sárkvalinn. Hann hreinlega grét af því hann langaði svo mikið út að hitta tíkina. Þá vildi ég ekki gelda hann og lenti í því að hann var alltaf strjúkandi, bara heppni að hann lenti aldrei fyrir bíl en hann lenti oft í slagsmálum við aðra hunda og kom...

Re: Lóðerí allt í kring!!

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ef þú treystir ekki hundinum þá er kannski best fyrir þig að tjóðra hann á meðan þær eru lóða. Ef hann freistast til að elta þær eitthvað í burtu gæti hann lent fyrir bíl eða eitthvað. Annars er ekki eins og það sé hægt að krefja þig um eitthvað þó hundurinn þinn geri einhverja tík hvolpafulla. Þetta er bara þeirra eðli og ef fólkið sem á tíkina vill ekki að hún verið hvolpafull, þá verða þau bara að passa hana meðan hún er lóða. Kannski slepptu þau henni bara út vegna þess að þau vilja að...

Re: Pæling um systkini

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég held að þetta fari líka bara mjög mikið eftir persónuleika. Sumir gætu haft öll þessi einkenni og sumir engin.

Re: Píramíðar, verkfæri djöfulsins ?

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Fjölþrepa er bara nákvæmlega sama og pýramídi. Þetta virkar allt þannig að þú átt að græða á þeim sem eru undir þér en það er ekki til endalaust fólk til að hlaðast undir alla þannig að þeir sem koma síðastir inn borga fyrir þig en græða aldrei neitt vegna þess að keðjan er mettuð og allir eru komnir í hana sem hafa áhuga. Ef þú græðir á svona dæmi, þá ertu að græða á því fólki sem kemur inn síðast og tapar. Sama og ef þú stelur 100 kalli frá þúsund manns, þá áttu 100 þús. kall. Ég hef hins...

Re: Rass, rass og aftur rass, Gargggggg

í Heilsa fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Flækist fyrir? Hversu stór er þessi rass eiginlega? :)

Re: Bandaríkin - Ameríka

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Já, ég fatta nú ekki alveg lógíkina hjá Toronto búum að hafa mánaðarkortin svona dýr. Ég var samt búinn að kaupa mér oftar en einu sinni áður en ég fattaði að það borgaði sig engan veginn fyrir mig.

Re: Köttur sem vill ekki kattamat

í Kettir fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Og nokkrum dögum síðar, étur hann þá ekki matinn?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok