Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: ps

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Því eldri sem hundar eru þegar þeir eru geldir, því minna breytist. Ef þeir eru orðnir vanir því að strjúka, þá halda þeir oft áfram. Hins vegar virðist líka hafa verið eitthvað meira að hjá þínum heldur en bara kynhvötin ef hann vildi ekki láta ná sér. Ég var með hund sem var ekki geldur og alltaf að strjúka en hann var alltaf mjög glaður að sjá okkur og kom hlaupandi þegar við fundum hann, jafnvel þó það væri lóðatík þarna sem hann var að reyna að ná í.

Re: mickael jackson

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hvernig getur þú fullyrt að hann hafi bara farið í tvær nefaðgerðir? Ég sá í tveimur mismunandi fréttaþáttum talað við tvo mismunandi lýtalækna sem sitt í hvoru lagi giskuðu á það eftir myndum að hann hefði farið í svona 50 aðgerðir. Annar þeirra vann meira að segja á sömu stofu og lýtalæknir MJ og hann sagðist hafa séð hann koma þarna inn á 6-8 vikna fresti þau 3 ár sem hann vann þarna. Hann sagðist hafa talað við lýtalækni MJ um að hann þyrfti að fara að hætta þessu áður en það væri ekkert...

Re: vangavelta..

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Gæti alveg gerst ef nágrannanum er illa við þig eða gæti líka gerst þannig að hann kvartar við hundaeftirlitsmanninn að hundurinn sé alltaf geltandi og þeir fletta þér upp. Ég er með kött og ég þarf meira að segja leyfi fyrir henni. Leyfisgjaldið er ekki nema 500 kall á ári en sektin er sama og fyrir hundana ef maður sleppir því.

Re: úbbs

í Heilsa fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hvað ertu að spyrja okkur? Spyrðu lækni. Eftir því sem ég hef heyrt, ef þú missir úr eina pillu, þá ertu ekki seif næstu 2 vikur. Sama ef þú færð gubbupest, niðurgang eða ferð á fúkkalyf. Hvernig heldurðu annars að öll þessi pilluslys verði? Pillan er 99.7% örugg en bara ef hún er notuð rétt.

Re: Páskafrí

í Skóli fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Síðasta prófið hjá mér er 25. apríl. Það er samt ennþá verið að kenna. Maður losnar bara við þau fög sem er búið að prófa í.

Re: vangavelta..

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hér er sektin 10 þús. kall ef hundurinn týnist en það er frítt ef það gerist sjaldnar en einu sinni á ári, ef hann er sóttur strax. Hins vegar þó þú eigir hund sem sleppur aldrei út, ef nágranninn klagar að þú sért ekki með leyfi, þá er það 25 þús. kall + leyfisgjald.

Re: sumarvinna

í Hugi fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Best að mæta á staðinn, nr. 2 að hringja. Það er miklu erfiðara að segja nei við mann sem mætir heldur en í email.

Re: Búið að frysta stigin?

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það er búið að afnema innskrá stigin. Ég held að það sé orðið bara hægt að fá stig fyrir að skrifa inn greinar og senda inn myndir. Mér finnst bara að það eigi að afnema þessi stig alveg. Þá kannski losnar maður við þessa stigasafnara sem eru að senda inn einhverjar myglaðar greinar eða copy/paste út um allt. Eða þeir geta haft stigakerfi ef þeir endilega vilja til að sjá hver er virkur hvar ef einhver fer að væla um admin stöðu eða eitthvað en hafa það þá þannig að maður sjái ekki stigin...

Re: Dularfull minning

í Dulspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Mér er sagt að ég hafi einhvern tímann klippt gat á kodda og látið snjóa úr honum. Hver veit nema það hafi verið í garðinum þínum :) Hins vegar man ég ekkert eftir þessu en ef það var ekki ég, þá gæti það hafa verið einhver annar krakki.

Re: í hvaða skóla á ég að fara ?!

í Skóli fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Og ég sem hélt að lopapeysulúðarnir væru í MH. Annars þarftu bara að kíkja á þetta þegar það verður skólakynning. Finnst þér skipta máli hvort þú ferð í bekkjarkerfi eða áfanga?

Re: Loksins eitthvað að gerast !!

í Farsímar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég var að lesa það á innherjum á visir.is að þeir ætluðu að fara inní Vodafone keðjuna en það kemur væntanlega í ljós þann 16.

Re: vangavelta..

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það ætti að vera auka sekt fyrir að vera ekki með leyfi. Þar sem ég bý í Kanada er sekt uppá 25 þús. ef þeir komast að því að þú ert með hund eða kött og ekki með leyfi. Hver væri annars hvatinn hjá fólki að fá sér leyfi? Það getur alveg eins bara sleppt því og beðið þangað til það næst.

Re: sumarvinna

í Hugi fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þú munt aldrei vita það nema prófa :) Ég skal segja þér eina sögu. Ég var í Nordjobb einu sinni og þar var íslenskt par þar sem strákurinn hafði ekki fengið vinnu en samt komið með stelpunni uppá von og óvon. Hann fór á Nordjobb skrifstofuna og spurði hvort þau gætu reddað honum vinnu. Þau sögðust gera sitt besta. Síðan kom finnskt par sem var í nákvæmlega sömu aðstöðu. Sá strákur fór á Nordjobb skrifstofuna og spurði hvað hann sjálfur gæti gert til að finna vinnu. Þau létu hann hafa langan...

Re: Páskafrí

í Skóli fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hí á ykkur báða. Skólinn minn er búinn 25. apríl :D

Re: Hvað heitir....

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Sean Maguire sjá <a href="http://epguides.com/OffCentre/">http://epguides.com/OffCentre/</a

Re: Landverndarher Íslands

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Já, bara verst að okkur vantar ca. 300 milljónir íbúa til að geta stofnað her sem ræður við eitthvað að ráði. Við ættum bara kannski öll Íslenska þjóðin að fara og pissa á jöklana til að reyna að halda þeim frá vatninu okkar :)

Re: sumarvinna

í Hugi fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Mættu bara á alla þá staði sem þig langar að vinna á og heimtaðu að fá að tala við starfsmannastjóra. Það er oft metið við þá sem eru duglegir og mæta á staðinn og gefast ekki upp. Hugsanlega virkar þetta ekki en þú getur ekki vitað það nema prófa.

Re: Kg/lbs=?

í Hugi fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þú ferð á <a href="http://www.onlineconversion.com/">http://www.onlineconversion.com/</a> 30kg eru 66 pund 8 oz. geta verið 227 grömm eða 227 ml ef það eru fluid ounces (237 ml ef það eru amerískar fluid ounces). Já, vandlifað í þessum heimi :)

Re: Erum að kaupa...

í Heimilið fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Plastparket rispast líka þannig að það skiptir ekki öllu máli. Ég myndi líklega bara fá ódýrt alvöru parket og þó það rispist, þá má pússa það upp og lakka á svona 5 ára fresti. Ég var líka með hund og það er bara heimilislegra að hafa rispað parket :)

Re: Vissuð þið að Bush er rangkjörinn forseti?

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það sagði mér strákur sem er Amerískur ríkisborgari að þar væru oft settir upp vegatálmar á kosningadag og ákveðnum hverfum hreinlega lokað til að gera íbúum þar erfiðara fyrir að komast á kjörstað. Væntanlega fer það svo eftir því hvaða flokkur fer með stjórn í því fylki nákvæmlega hvaða hverfum er lokað :)

Re: Vírus! Hjálp!

í Hugi fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Gæti það verið þessi? <a href="http://www.europe.f-secure.com/v-descs/klez_e.shtml">http://www.europe.f-secure.com/v-descs/klez_e.shtml</a> Hann sendir sig einmitt í email t.d. með yfirskriftinni “japanese lass' sexy pictures” Annars er besta ráðið gegn vírusum að fá þá ekki. Opna aldrei drasl sem þú færð sent sem þú veist ekki hvað er. Nota ekki Microsoft Outlook eða Outlook Express því þau eru ekki með þeim öruggustu. Líka fínt að nota bara hotmail eða yahoo. Yahoo t.d. býður uppá það að...

Re: Rannsökun a downloadi a internetinu!

í Netið fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ekki ég heldur, líka með IE. Greinilega notar sá sem hannaði þetta bara mozilla :)

Re: Varaþurrkur

í Heilsa fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég hef heyrt að ef þú notar hvaða varasalva sem er í óhófi, þá verðurðu alltaf með varaþurrk vegna þess að líkaminn hættir alveg að sjá um þetta sjálfur.

Re: Ör eftir bólur

í Heilsa fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það fer líklega eftir svona ár eða þú hættir að taka eftir því. Annars ef þú værir með mjög slæm bóluör í öllu andlitinu, þá er hægt að fara til húðsjúkdómalæknis og laga það eitthvað með leysimeðferð eða öðrum ráðum en eitt skitið ör er varla þess virði.

Re: Að Velja/kaupa hund

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þú mátt helst ekki skilja hund eftir einan heima meira en 4 tíma í einu þannig að ef þú ert að vinna allan daginn og getur ekki komist heim í hádeginu, þá er það ekki sérlega góð hugmynd. Þú verður líka að hafa það í huga að ef þú ætlar að vera í leiguhúsnæði, þá eru mjög margir leigusalar sem myndu ekki taka í mál að leigja þér ef þú ert með hund en ef þú kaupir, þá ertu í lagi ef þú ert með sér inngang.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok