Það er ótrúlegt hvernig er farið með dýr !

Ég á kanínu sem var hennt út í Kjarnaskóg, þar sem hún hafði sennilega fæðst í dýrabúð og aldrei séð snjó. Svo átti hún bara að bjarga sér og lifa þetta af.
Ég fann hana þarna þar sem hún var að krókna í hel og drepast úr hungri. Það var ekkert mál að ná henni því hún nennti varla að hreyfa sig fyrir kulda.
Núna er ég búin að eiga þessa kanínu í 2 ár og hún er sem beturfer en á lífi.

Eins og ég sagði þá fann ég þessa kanínu í Kjarnaskógi, þar voru líka fullt af öðrum kanínum en þær höfðu sennilega fæðst í skóginum. Alltaf þegar ég fór í Kjarna þá sá ég kanínur og stundum sömu kanínurnar aftur og aftur.
Svo kom þessi ljóti karl og fór að veiða allar kanínurnar sem gátu bjargað sér sjálfar !
Núna er ég næstum hætt að fara í Kjarna að gefa kanínunum út af því að þær eru svo sjald séðnar. Karlin tók barasta allar kanínurnar og hann hefur POTTÞÉTT ekki verið að gefa dýrabúðinni þær. Nei, nei, hann hefur örugglega lóað þeim, nema að hann hafi aðstöðu til að eiga 20 kanínur !