Persónulega myndi ég ALDREI ganga í pinnahælum nema kannski ef lífið lægi við, en það er bara ég. Þetta getur jú, sosem verið alveg flott svona í hófi, fínt til spari og svona en ég bara skil ekki tilganginn í því að ganga á svona dags daglega. Ég nota skó í þeim tilgangi að það sé þægilegra og betra en að vera berfætt, sem mér finnst annars vera últimat takmarkið, það er bara oftast of kalt og óþægilegt til þess. Ég er nánast alltaf í þunnbotna strigaskóm, allan ársins hring, kaupi mér eina...