Sæl Hildur, ég veit alveg upp á hár hvað þú ert að tala um. Sonur minn varð 2 ára þann 22.júní sl. Hann er mjög erfiður að því leyti að hann vill ekki borða neinn mat(ekkert kjöt, engan fisk eða þess háttar, það eina sem hann vill er jógúrt, sætindi s.s kökur, kex og slíkt og pylsur. Ég má ekki lengur ráða því hvernig hann fer klæddur út, manni er bara hreinlega ýtt frá. Hann er einnig búinn að vera erfiður að fara í rúmið og það sérstaklega ef pabbi hans er ekki heima og ég er ein með hann....