Það er nú komið á hreint að Darcy er ekki bara skíthæll og undirförull þegar kemur að samböndum heldur einnig í viðskiptum, skiptir þá engu hverjir verða þar fyrir barðinu á honum, ættingjar eða aðrir, manninum er ekkert heilagt og enginn virðist sjá í gegnum hann. Undanfarna daga hefur hann dregið Tess á asnaeyrunum og segist alltaf vera á leiðinni að segja Dee upp en hann kemur sér engan veginn til þess. Núna síðast sendi Tess Dee einfaldlega bréf þar sem hún skýrði frá öllu saman en Darcy nappaði því og sagði Tess síðan að Dee hefði fengið bréfið og boltinn væri núna hjá henni…

Síðan er það það nýjasta en Darcy hefur verið að ýta á Karl um að stækka stofuna og uppfæra og gera sig jafnframt að meðeiganda. Það virtist nú allt vera gott og blessað en í dag kom í ljós að svo er sko öldungis ekki. Karl ákvað að fara á ráðstefnu um nýjungar í lækningum og eftir að hann fór heim hringdi Darcy í vin sinn og sagði að Karl hefði bitið á agnið og jafnframt að hann væri á leiðinni í fyrstu milljónina sína…

Ég held að það sé nokkuð ljóst að Darcy er ekki með hreint mjöl í pokahorninu og gaman að sjá hvernig þetta fer allt saman hjá honum, persónulega held ég að þetta springi allt framan í hann, en við skulum bíða og sjá!
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _