Nú las ég það í einu blaði að Jennifer Aniston væri búin að staðfesta það að hún og Brad Pitt eiga von á barni. Það á að skrifa óléttuna einhvernveginn inn í handrit Friends þáttanna. (væntanlega þá í næstu seríu). Greinarhöfundurinn sem sagði frá þessu sagði “Líklegt þykir að hinum samkynhneigða föður Chandlers verði eignað barnið”… hvað er verið að meina með því??? Er Rachel komin í einhvern pakka með pabba hans Chandlers í næstu seríu ???

Hver fyndist ykkur annars að ætti að vera pabbinn… eiga Ross og Rachel að enda saman að lokum eða ekki ???