Ég hef horft á Nágranna í 10 ár,. Þá voru Pam og Doug Willis(sem síðar hélt framhjá) sem bjuggu í Kennedy húsinu þeirra í ferðalagi. Þau áttu hvítan Ford Sierra. Á meðan var sonur þeirra Brad(brimbrettakappi) að halda framhjá kærustu sinni henni Beth(Natalie Imbruglia) sem mér fannst svo sæt og bjó með Lucy, með Lauren dóttur Lou og gerði hana ófrjóa að því virtist á þeim tíma en svo gat hún eignast börn.Willis hjónin áttu líka stelpu Cody sem dó fyrir svona 5-6 árum og ég grét mig í svefn það kvöld.
Alesi- hjónin bjuggu í húsinu hennar Tess. Þau áttu son sem hét Rick og létu hann bera skilaboð á milli sín því þau voru eitthvað reið.
Helen gamla og Jim Robertsson, pabbi Julie bjuggu saman ásamt Philip og krökkunum hans sem gerðu lífið óbærilegt fyrir Julie. Þá var Hannah lítil og leiðinleg og sama fannst mér um Debbie, dóttur Phillips og Michael sonur hans var plága.
Ég var 9 ára snáði þá og núna er ég 19 ára og er mikið hlegið að mér í vinnunni að ég horfi á Nágranna. Það eru ekki bara stelpur og stelpustrákar sem horfa. Nágrannar byrjuðu þá klukkan 16:45 og voru í 45 mínútur. Svo þegar Leiðarljós byrjaði horfði ég líka á það og geri enn. Ég er bara fastur í þessu og líkar vel.
OH.