The Matrix er hasarmynd og að mínu mati mjög góð sem slík. Þú verður að hafa það í huga að þegar verið er að skrifa vísindaskáldsögu eða gera kvikmynd, þá taka þeir, sem að verkefninu standa, sér skáldaleyfi fyrir hinu og þessu. Þannig fría sig ábyrgð til að færa rök fyrir hinu og þessu. Besta leiðin til að eyðileggja góða hasarmynd er að koma með of mikið af útskýringum eða fara að pæla of djúpt í henni, eins og þú hefur greinilega gert. Mitt mat: ****/***** Bestu kveðjur, Kjartan