Mín datt þegar hún var að hlaupa á eftir strætó í fyrra (þá 8 ára). Stokkbólgin vör, rispað nef og önnur fullorðinsframtönnin brotnaði í tvennt. Glæsilegur árangur í einu falli. Auminginn litli, henni varð svo mikið um að missa fullorðinstönn að hún minntist ekkert á verk í handlegg fyrr en við vorum að yfirgefa slysó, við myndatöku kom í ljós að hún var handleggsbrotin í þokkabót! Æmti hvorki né skræmti, þessir krakkar eru þvílíkar hetjur.