Jæja þá eru jólin bara að koma á morgun og auðvitað fær hann Kittó minn jólapakka eins og allir aðrir.
Ég keyfti handa honum svona Stól sem er svefnsófi.. Rosalega lítill og sætur. Ég reyndar leyfði honum að fá hann núna í kvöld þar sem það yrði svo erfitt að pakka honum inn og hagkaupspoki tekur sig ekki vel út undir jólatrénu. Hann er búin að vera límdur við hann síðan :)
Algjört rassgat í þessum stól.
Keyfti hann í Lukkudýr á 2990 kr. Sendi mynd af honum á morgun eða hinn :)
svo fær hann auðvitað lítin pakka með á morgun. Fær 2 svona litlar loðnar mýs, 2 nammi og svo svona mús með víbrara með spotta í rassinum sem mar tosar í og hún fer á fleygiferð. Hann á eftir að tapa sér þegar hann fær hana :)
Annars er hann nokkuð ánægður með að fá bara krullurnar af hinum pökkunum ;)