Er einhver hérna að æenda í vandræðum með að samræma jólin með maka?
Ég er í þeim sporum akkúrat núna að það vantar bara herslumuninn í blóðugan bardaga milli mín og mannsins míns um hvar við verðum. Eins og hjá eflaust mörgum öðrum þá eru þetta fyrstu jólin okkar saman og þess vegna erfitt að samræma. Og ekki bara hvar við verðum.. hann er vanur að borða Rjúpu með sinni fjölsk. en ég hamborgarahrygg. Mig langar að vita frá ykkur sem eigið fleiri en ein jól að baki og eruð búin með þennan pakka hver varð niðurstaðan?
Og hjá ykkur sem eruð í sömu sporum og ég, hvernig er staðan =)
Gleðilega aðventu öll =)