Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

kamalflos
kamalflos Notandi frá fornöld 39 ára karlmaður
1.170 stig
Áhugamál: Hip hop, Stjórnmál

Fíflið skiptir um nafn! (13 álit)

í Hip hop fyrir 23 árum
Mesta plágan sem hefur komið á Hip-Hop, Puff Daddy, ákvað að skipta um nafn, til þess að geta “byrjað upp á nýtt”. Hann hefur verið kærður fyrir ólöglega byssueign og fleira síður skemmtilegt, og hefur ákveðið að breyta nafni sínu. Nýja nafnið mun vera P.Diddy, sem er engu skárra en það gamla. Það er vonandi að hann finni sér nýja tónlist með þessu nýja nafni!

Kvöldið í Norðurkjallaranum.. (8 álit)

í Hip hop fyrir 23 árum
Kvöldið var dálítið lengi að byrja, en það er svona það eina sem hægt var að setja út á kvöldið, fyrir utan kannski hljóðgæðin á Sage. Allt fór frábærlega fram. Eftir frábæra upphitun frá Deejayum hússins, stigu Opee og Tiny á stokk. Báðir rappa á ensku, og var allt mjög flott. Reyndar var Opee svo óheppinn að geislaspilarinn sem takturinn hans var í fór í fokk og hann týndi taktinum í smá tíma en gerði gott úr öllu. Tiny kom svo með fínt lag og var gaman af þeim báðum. Svo kom ákaflega...

Biggie Vs. Tupac (0 álit)

í Hip hop fyrir 23 árum

Besti Rappari fyrr og síðar.. (23 álit)

í Hip hop fyrir 23 árum
Ef maður ætti að velja einn rappara sem væri bestur, fyrr og síðar yrði maður að skoða málið mjög vel. Það er auðvitað hægt að velja þann besta eftir því hvernig hip-hoppið er í dag. Þá myndi maður sjálfsagt velja Talib Kweli. Hann er snillingur með pennan og rímur hans flæða með svo miklu sjálfstrausti að það verður vart mælt með orðum. Auðvitað hefur hann fengið frábæra pródúseringu frá Hi-Tek og Solquariums. Svo ef maður lítur á hvernig Hip-Hop hefur þróast og hvernig menn hafa tileinkað...

Stjarnan og Breiðablik upp í Epson deild! (1 álit)

í Körfubolti fyrir 23 árum, 1 mánuði
Liðum á höfuðborgarsvæðinu mun fjölga í úrvalsdeild, því Breiðablik og Stjarnan voru rétt í þessu að tryggja sér þáttökurétt í Epson deildinni í körfubolta á næsta leiktímabili. Lið Blika, sem endaði í 2.sæti í deildar keppninni, fékk 3. sætis lið Selfoss, sem var meiðslum hrjáð og réð því sterk liðsheild blika nokkuð auðveldlega við Selfyssinga. Lið Stjörnunnar, sem endaði í 1. sæti deildarkeppninnar, mætti Þór frá Þorlákshöfn, sem var eitt af tveimur liðum sem tókst að sigra Stjörnunna í...

Besta tvíeykið..svar við skoðunarkönnun... (9 álit)

í Körfubolti fyrir 23 árum, 1 mánuði
Vissulega er þetta ágætis skoðunarkönnun, en þetta er alls ekki djúpt í árina tekið. Að nefna aðeins þessa leikmenn, ætti spurningin frekar að vera hvert var besta tvíeyki 10. áratugarins, eða eitthvað í þá áttina, því þetta er fáránlegt. Shaq og Penny voru góðir saman, en að segja að þeir séu eitt af bestu tvíeykum allra tíma og nefna ekki Bird og Mchale er alveg fáranlegt. Þeir höluðu inn sigrum, og unnu titla fyrir Celtics, en Shaq og Penny komu Magic í úrslit en töpuðu 4-0 gegn Rockets....

Eitt á ensku..um kvennfólkið.. (4 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 1 mánuði
When i first saw you me feet were knocked off the type of feeling - when you flirt and don't need to back off All further Search was cancelled - I found the right one when i'm with you, you make a fight wrong - let's get the night on Only god could have made such a perfect art Like the way you look, the way you talk, the way you talk took my heart, pulled it apart - And then put it back together Looking till the infinite, hoping we be us two alone forever But then things change, things are...

Blood Sweat and Tears (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ok..ég varð að sýna ykkur þennan texta..gerði hann ekki sjálfur..en þetta er mesta snilld sem ég veit um. Tveir gaurar frá Brooklyn, Þvíklíkt hardcore..kalla sig M.O.P. En þeir geta slakað á og leyft fólki að heyra og sjá snilldar texta tilfinningalega séð.. check this out.. It took me 24 years to figure out what makes this world go round It's not man holding ground with dope sound We gots to ask Why do you feel that a meal can make you ill When you know that Broke Bill can still See right...

Hverjir Verða íslandsmeistarar? (0 álit)

í Körfubolti fyrir 23 árum, 1 mánuði

Sýn og Stöð 2 (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Eftir að íslenska útvarpsfélagið fékk rétt á að sýna leiki í enska boltanum hefur áhorfið aukist, að manni finnst. Umfjöllunin er mikil og oft meiri en um innlendar íþróttir, en það er allt gott um það að segja því enska deildin er sú skemmtilegasta í heiminum. Þó finnst mér eitt ábótavant, það eru lýsarnir, margir hverjir fara svo verulega í taugarnar á mér að það er ekki venjulegt. Ég þakkaði nú mínu sæla þegar Guðjón “nefbítari-og-karatesparkari” Þórðarsson flutti út og hætti að lýsa...

Línur teknar að skýrast. (5 álit)

í Körfubolti fyrir 23 árum, 1 mánuði
Eftir nánast hreinan úrslitaleik um 8. sætið í úrslitakeppnina í gær, hafa línur í Epson deildinni tekið að skýrast. Borgnesingar sigruðu nýbakaða bikarmeistara frá Breiðholti í spennuleik. Hið blandaða lið Borgnesinga tók kipp á lokasprettinum, þar sem Warren Peebles fór fyrir sínum mönnum, með brilliant gabbhreyfingum og skemmtilegum sendingum. Borganes er nú með 18 stig í 8. sæti, en ÍR er í 9. með 16 stig. ÍR eiga útileik gegn föllnum Ísfirðingum og svo heimaleik gegn liði Hauka, sem...

Hvað er Larry Brown að hugsa? (7 álit)

í Körfubolti fyrir 23 árum, 1 mánuði
Lið Philadelphia 76ers hefur komið mörgun á óvart í deildinni í vetur og þar það margt frammistöðu Theo Ratliff að þakka. Toni Kukoc hefur einnig verið ákaflega mikilvægur, er mjög hæfileikaríkur leikmaður, með gott skot þrátt fyrir að vera 6"11. En þessum tveimur mönnum var skipt til Atlanta fyrir Dekembe Mutumbo, að mínu mati eru þetta fáránleg skipti, skipta tveimur frábærum leikmönnum út, en auðvitað verða þeir að hafa sterkan leikmann eins og Mutumbo ætli þeir sér að ráða við styrk...

Á hvaða tungumáli á að syngja Eurovision lagið? (0 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum

Kúkar þú í skólanum? (0 álit)

í Skóli fyrir 23 árum, 2 mánuðum

Njarðvíkingar sigla ótrauðir áfram (4 álit)

í Körfubolti fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Lið Njarðvíkur í Epson-Deildinni er ákaflega óáreinilegt um þessar mundir. Það er ekki nóg með að þeir hafi einn besta útlending sem hefur leikið hérna á fróni frá upphafi, og svo sterkan Dana sem hefur fínustu hreyfingar, ofan á gömlu jaxlanna, heldur hafa þeir einnig fengið Friðrik Stefánsson tilbaka, kom rétt fyrir jól. Nú síðast sigrðu Njarðvíkingar Hamarsmenn næsta auðveldlega, og var það fyrsti tapleikur Hamars á heimavelli í Epson Deild. Njarðvík trónir á toppi deildarinnar með 24...

FH-ingar sterkir (10 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hið litlausa og leiðinlega lið FH hefur fengið liðsstyrk. Höddi Magg er hættur, finnst mörgum FH-ingum það frábærar fréttir. Logi hefur verið að fá einhverja gamla gauka, Sigga jóns og Hilmar Björns og er allt gott með það. Fannst mér þó fyndið að þegar ég skipti á Heklusport í gær var troðið einum stráknum þangað inn. Davíð “títtnefndur” Viðarson. Honum er allstaðar troðið inn þegar FH á í hlut. Hann er jú sonur Viðars Halldórssonar, sem er einn af styrktaraðilinum KSÍ og annálaður...

Sama gamla skoðunarkönnunin! (8 álit)

í Körfubolti fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það er greinilegt að þeir sem samþykja skoðunarkannanir eru ákaflega fljótir að gleyma, því hefur verið áður! Að bera saman Kobe og Jordan er eitthvað sem margir hafa verið að leika sér að, en það er regin munur á þeim ; Kobe er leiðinlegur montrass, Jordan var að sjálfsögðu líka hrokafullur, en hann talaði ekki illa um félaga sína opinberlega! Ein er nú sagan sögð af Jordan. Það var þegar Steve Kerr tryggði þeim sigur í úrslitum hérna um árið. Það var þannig að það var tekið leikhlé og...

Andy Cole íhugar að hætta! (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Andy Cole, hinn frábæri framherji Manchester United hefur sagt í fréttaviðtölum að hann íhugi að hætta að leika með enska Landsliðinu í knattspyrnu. Hann sagði: “Erikson hugsar til framtíðarinnar, og því veit ég að mínir möguleikar minnka. Á mínum aldri verður maður að gefa þessum ungu strákum möguleika. Ég veit af áformum Eriksons og ætla ekki að láta það trufla mig verði ég ekki í hópnum.” Andy Cole er allur að koma til eftir að hafa verið hátt í tvo mánuði frá. Hann hefur verið fyrsti...

Jólin eru misskilin... (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 3 mánuðum
þetta er ekki hefbundið ljóð, heldur með rappstíl :) vonbrigði, því lífið gefur ekki alltaf það sem við viljum sorg, því þetta líf er flókið, eitthvað sem við aldrei skiljum Þunglyndi, því það geðræna og sálræna er alltof lítils virði þú ert talin heilbrigður ef þú andar, þó að enginn á þig yrði enn sannleikurinn er að öll þjóðin er geðveik, eða flestir Boðskapurinn týndur, allir vilja vera mikill,meiri mestir Magnað, hvernig fólk hugsar, hvernig fólk framkvæmir sama hvað þið segið, hah, þið...

Hverjir verða Íslandsmeistarar? (0 álit)

í Körfubolti fyrir 23 árum, 3 mánuðum

Á Ísland að Sækja um aðild að Evrópusambandinu? (0 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum

Málið með Ísrael og Palestínu (36 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Eftir seinni heimstyrjöld herjaði eilítið “vandamál” á stærstu ríkin í Evrópu ; flótti gyðinga. Því sáu sigurvegarar stríðsins sér ekki annað fært enn að endurreisa ríkið Ísrael(sem öllum að óvörum reis upp frá “dauðum”, enn allt var þetta samkvæmt spádómum biblíunnar). Ísraelsmenn fengu hluta af landi Palestínumanna, sem voru örugglega ekkert mjög sáttir með þetta enn engu að síður ákváðu þeir að beygja sig undir stóru ríkin. Rétt eftir að Ísraels menn voru komnir þangað fór baráttan að...

Fréttir handan Hafsins (8 álit)

í Körfubolti fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Seattle “Super”Sonics hafa ekki spilað vel uppá síðkastið, og er það vægt til orða tekið. Eftir frábær byrjun hjá Nate McMillan sem þjálfara, hefur liðið dalað gífurlega. Þeir töpuðu fjórum leikjum í röð í síðustu viku og nú bíður maður eftir því að hinn kjaftfori fyrirliði þeirra, Gary Payton, fari að tala um að hann vilji vera í liði sem á möguleika á titli. Liðið er samansett úr ágætis mönnum, Payton á að leiða liðið, Vin Baker á að vera staðgengill Kemps, enn er svo hryllilega latur að...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok