Er eitthvað verra að hlusta á tónlist sem fáir þekkja? Ég skil ekki þennan pirring. Hefur fólk sem hlustar á Creed, System of a down eða jafnvel Led Zeppelin meiri rétt á að segja skoðun sína en aðrir? Og ég þoli ekki þennan UNDERGROUND merkimiða. Það er ekki hægt að setja alla tónlist sem maður hefur aldrei heyrst minnst á undir einn miða, sem heitir underground. Ég er viss um að það hafa fáir Íslendingar heyrst minnst á Patti Smith, Paula Frazer eða Yann Tiersen, en þetta er síður en svo...