Þessi grein er dissgrein á sumt fólk sem er hér inni á Rokkinu á huga. Það er alveg óendanlegt hvað allir vita meira en næsti maður við hliðina. Ég ætla alls ekki að nefna nein nöfn en það eru allir að reyna að vera eitthvað svo underground og eru sumir að nefna hljómsveitir sem einginn hefur heyrt um bara til að nefna þær. Dæmi um þetta eru á korknum þar sem fólk montar sig á því að það hafi uppgötvað einhverja hljómsveit á undan öðrum.

Dæmi um þetta er líka er Linkin Park, fyrst þegar Hybrid Theory kom út var hún svaka töff því þá höfðu ekki margir heyrt um hana, en um leið og allir byrjuðu að fíla hana voru þeir að skemma rokkið.

Mitt álit á Linkin Park: Það hefur komið fram að LP hafa verið að blanda metal við boyband rokk, og mér finnst það alveg vera að virka, þetta band verður seint talið snillingar en það er fínt að hlusta á þetta stundum og finnst mér þeir engann veginn eiga skilið þá gagnrýni sem þeir hafa verið að fá hér á huga. Þetta er bara eitt dæmið af fjölmörgum.

Semsagt mér er drullusama þótt þið séuð að hlusta á plone, gorilla biscuits eða eitthvað sem maður heyrir ekki mikið um þannig að það er frekar tilgangslaust að vera monta sig á því nema maður vilji fá fólk á móti sér …. hættið því þessu ég er svo töff attitúdi og verum vinir..

PS takið þetta til ykkar sem eiga þetta

kv
sup
_____________________________