Ég heyrði fyrst um þessa sveit(sem ég held reyndar að sé sólóartisti) fyrir um ári í Sýrðum rjóma að mig minnir og líkaði vel. Núna var ég að lesa dóm um plötu frá Rivulets á www.brainwashed.com og hlusta á hljóðdæmi og get ekki sagt annað en þetta sé mikil snilld. Ég veit bara ekkert hvar ég get nálgast þetta, veit ekki einu sinni á hvaða labeli þetta er. Hefur einhver heyrt um Rivulets, og veit hann hvort það sé til eitthvað til með þeim á Íslandi?? Ég efa það reyndar stórlega.