Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

isar
isar Notandi frá fornöld 50 ára karlmaður
420 stig

Ambient hljóðbútur við Blade Runner! (17 álit)

í Danstónlist fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Leitin að hinni fullkomnu lúppu (2 ). Næsta lúppukeppni: Ambient hljóðbútur við Blade Runner! Í síðustu keppni var allt opið og fólk mátti gera hvað sem því sýndist. Þess vegna voru lúppurnar mjög svo ólíkar og sýndu mikla breidd. Sú tilraun tókst vel og 45 lúppur komu inn. Og þar sem lúppukeppnin á að vera áhugaverð og spennandi þá getum við ekki farið að endurtaka okkur, við verðum að gera eitthvað nýtt… Í næstu keppni ætlum við að setja þessu mun meiri skorður og setja ykkur verðugt...

45 lúppur komu inn í lúppukeppnina! (8 álit)

í Raftónlist fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Það er á hreinu að mikið er af raftónlistarsnillingum sem leynast undir steinum hér og þar í borginni. Nokkrir eru líklega að senda frá sér sitt fyrsta efni og er bara líklegt að flestir eða allir munu halda áfram að semja tónlist. Við settum okkur takmark að fá inn a.m.k. 25 lúppur, en fengum 45. Ekki slæmt það. Tilveruguðirnir eru nú búnir að liggja yfir þessum lúppum og gefa þeim einukunnir frá 1 - 5 af 5 mögulegum. Það eru sex lúppur sem fá 5/5 mögulegum, en það getur þó allt breyst fram...

Leitin að hinni fullkomnu lúppu ( loop ). (16 álit)

í Raftónlist fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Leitin að hinni fullkomnu lúppu ( loop ). Gaman væri að prófa nýjan hlut fyrir þá sem eru á fullu í því að semja raftónlist/ danstónlist. Verkefnið snýst um það að búa til hina fullkomnu elektrónísku lúppu fyrir dansgólfið eða heilabörkin. Það er gríðalega mikið af hæfileikaríkum tónlistarmönnum hér inni á Hugi.is og það verður mjög spennandi að heyra lúppur frá ykkur. 1. Lúppan má vera 16 bars ( 16 x 4slög - ca. 30 sek) 2. Tónlistin má vera að hvaða formi sem er, úr hvaða tónlistarstefnu...

Besta tónlistin árið 2001! (2 álit)

í Danstónlist fyrir 22 árum, 1 mánuði
ÞÁ ER komið að því að gera upp síðasta ár. Pennar Undirtóna hafa verið á kafi í tónlist allt síðastliðið ár. Við höfum nú gert upp hug okkar hvað bestu innlendu og erlendu plöturnar varðar og það er komið að því að þið látið skoðanir ykkar í ljós! Það verða ýmsar leiðir í boði hvað varðar skil á kosningu ykkar og það sem skiptir mestu máli er að sem flestir verði með. Hægt er að taka þátt í valinu á vef Undirtóna. Nánari upplýsingar um þessa kosningu eru kynntar á vef okkar,...

Taktu þátt í árslistauppgjöri Undirtóna! (1 álit)

í Músík almennt fyrir 22 árum, 1 mánuði
ÞÁ ER komið að því að gera upp síðasta ár. Pennar Undirtóna hafa verið á kafi í tónlist allt síðastliðið ár. Við höfum nú gert upp hug okkar hvað bestu innlendu og erlendu plöturnar varðar og það er komið að því að þið látið skoðanir ykkar í ljós! Það verða ýmsar leiðir í boði hvað varðar skil á kosningu ykkar og það sem skiptir mestu máli er að sem flestir verði með. Hægt verður að rífa þessa síðu úr blaðinu og senda með pósti, senda okkur e-póst með kosningu ykkar eða taka þátt í vali á...

Nýtt tölublað Undirtóna (#52) er komið út á göturn (11 álit)

í Danstónlist fyrir 22 árum, 1 mánuði
Nýjir tímar… - Síðasta ár er gott dæmi um óhefðbundið ár. Yfir heiminn dundu ógnvænlegir atburðir með árásunum á Bandaríkin 11.september, efnahagsmálin tóku ágætis dýfu og uppsagnir urðu að næstum daglegum hlut í stórum sem smáum fyrirtækjum og stofnunum. Með þess-konar áföll í heimsmálum virðist eitt listform hafa sloppið mjög vel úr kreppunni; tónlistin. Sama hvað á dynur, keppast menn um að koma sér og sínum á framfæri, alveg sama þótt litlir séu hæfileikarnir. Í mörgum tilfell-um þó er á...

Leitum að frambærilegri raftónlist! (5 álit)

í Raftónlist fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hugarar, Við hjá Undirtónum // Stefnumót Records erum að leita að frambærilegri raftónlist. Það var ansi mikið um góða tónlist að finna í raftónlistarkeppni Huga.is í fyrra og þar á meðal voru nokkrir sem áttu mjög góð lög. Einnig vitum við að ný tækni, þar á meðal Reason, Reaktor og fleiri forrit gefa mörgum tækifæri til þess að semja mikið af tónlist heima hjá sér. Nú eru þegar útkomnir 5 CD diskar í útgáfuseríu Undirtóna og Verði Ljós og eru 6 aðrir á leiðinni fyrir jól. Við viljum...

Jakob Frímann "stuðmaður! á Stefnumóti! (0 álit)

í Músík almennt fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þriðjudaginn 9.október á Gauk á Stöng! UM ER að ræða síðbúna tónleika þar sem Kobbi leikur efni af plötu sinni sem út kom á árinu og heitir Made In Reykjavik. Þetta verða vafalaust frábærir tónleikar og eitt það merkilegasta við þetta allt saman er sú staðreynd að Jakob hefur ekki haldið sólótónleika í fjöldamörg ár, þannig að þetta er mikill viðburður. Jakob hefur verið með okkar helstu drifkröftum í að kynna íslenska tónlist erlendis, og frægt er nú orðið þegar hann varð...

Stefnumót 25.sept. Sólstafir og Sagtmóðigur! (1 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Stefnumót 25.september! Stefnumót Undirtóna á Gauk á stöng Þriðjudags kvöldið 25 sept. Það verður brjáluð “METAL VEISLA” á Gauknum þri.25 sept. en þar koma fram : Sólstafir Sagtmóðigur Þeir sem þekkja einhvað til í melat geiranum ættu að þekkja þessi bönd vel en fyrir þá sem þekkja ekki til þeirra þá spila Sagtmóðingur melódískt keyrslu pönk af bestu gerð. Sagtmóðigur eru búnir að vera partur af Metal senunni frá byrjun eða frá því í kringum 90. Sólstafir spila eðal rokk, Þar sem fara saman...

Eðalbreakbeat á Astró í kvöld í boði Virkni! (3 álit)

í Músík almennt fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Breakbeat.is-Virkni / Iceland Airwaves / Knowledge Magazine og Spegils kynna… DIGITAL (Metalheadz/Reinforced/Phantom Audio) + DJ Reynir, DJ Kristinn og Tommi White (efri hæð) >>> Fimmtudagskvöldið 20. september á Astró (Austurstræti 22) >>> Miðaverð er 500 krónur / Húsið opnar klukkan 21:00 Breakbeat.is tekur þjófstart á Iceland Airwaves tónlistarhátíðina fimmtudagskvöldið 20. September, undir merkjum Breakbeat.is-Virkni, í samvinnu við aðstandendur Iceland Airwaves, breska...

Stefnumót 11. september - Rokk&ról frá Suð og Fuga (0 álit)

í Músík almennt fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Það verður rokk og ról á Gauknum þri 11. september en þar koma fram : Suð Fuga Báðar þessar sveitir spila eðal post-rokk. Suð hafa verið starfandi í nokkur ár og hafa alltaf haldið sér í flokki jaðarsveita. Fuga eru nýrri af nálinni og hafa verið starfandi í eitt ár. Þeir félagar hyggjast fara í eitt af betri stúdíóum bæjarinns og taka upp plötu á næstunni. Þess má geta að helmingur Fuga skipa einnig Porno Popp, sem er einnig að vinna að nýrri plötu. Spennandi Stefnumót framundan næstkomandi...

Stefnumót 21.ágúst! - Frank Murder & Prince Valium (11 álit)

í Raftónlist fyrir 22 árum, 7 mánuðum
- þriðjudagskvöld frá kl. 21:00 -00:00 á Gauk á Stöng // 500 kr. inn - 18 ára aldurstakmark! Frank Murder / elektró / ambient Prince Valíum / ambient / elektró Þetta ágæta kvöld svífur andi ambient tónlistar á Stefnumóti. Fram koma raftónlistarmennirnir Frank Murder, Prince Valium ásamt góðum gestum. Auk þess mun raftónlistarmaðurinn Biogen sýna videoverk. Allir þessir tónlistarmenn eiga það sameiginlegt að vera leiðandi afl í raftónlist hérlendis auk þess sem þeir eru nú í ágúst og...

ERU ALLIR AÐ VERÐA BRJÁLAÐIR! (33 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Vegna fréttar sem birtist í Ríkisútvarpinu - RÁS1 og RÁS2 í dag! “14.08.2001 12:32 VÍSAÐ Á GRÓFT KLÁM Í UNDIRTÓNUM Í nýjasta hefti tónlistar- og menningarblaðsins Undirtóna er mælt með vefsíðu þar sem getur að líta mjög grófar klámmyndir og myndbandsupptökur af grófum líkamsmeiðingum. Í blaðinu er mælt með ýmsum heimasíðum á netinu og um þessa tilteknu síður segir, að það sé nokkuð öruggt að þarna finni flestir eitthvað ”sjokkerandi“. Um er að ræða er tenglasafn þar sem tekið hefur verið...

BRAVÓ, 9.ágúst! - Inspector Freeze og Ivar Örn! (2 álit)

í Danstónlist fyrir 22 árum, 7 mánuðum
BRAVÓ, BRAVÓ, BRAVÓ…. Öll fimmtudagskvöld á Café Thomsen. Fastaplötusnúðar kvöldanna eru Exos og Árni Valur. Visjúalar eru í höndum Biogen. Gestir þann 9. ágúst verða Einar Snorri(Inspector Freeze) og Ivar Örn. Báðir eru þeir búnir að vera staðsettir í NY í nokkurn tíma og eru með eiturferskt electró í töskunum. Ivar Örn hefur spilað áður á BRAVÓ, og á Stefnumóti. Hann hefur á mjög stuttum tíma stimplað sig inn með skemmtilegri “live” elektróník. Ekki láta þig vanta, fimmtudagskvöldin eru...

31.07.2001 - Stefnumót á Gauk á Stöng í kvöld! (1 álit)

í Raftónlist fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það verður “rafræn veisla” næstkomandi þriðjudagskvöld á Gaknum en þar koma fram: Ampop Plastik Stafrænn Hákon Ampop eru nú á leiðinni með breiðskífu og er það plata númer tvö. Fyrsta plata þeirra “Nature Is Not a Virgin” var mjög góð og er því spennandi að heyra nýja stöffið þeirra. Þau nýju lög sem ég hef heyrt á tónleikum hjá þeim drengjum lofa mjög góðu. Fyrir þá sem ekki vita spila Ampop mjög melódíska raftónlist í með söng og hinum og þessum live hljóðfærum. Plastik hefur verið rólegur...

Raftónlist á BRAVÓ í kvöld, 26.07.2001! (1 álit)

í Raftónlist fyrir 22 árum, 8 mánuðum
- Enginn þarf að vera heima að horfa á sjónvarpið á fimmtudögum! BRAVO , klikkað djamm - ALLTAF á fimmtudögum! - fimmtudagskvöld frá kl. 22:00 -02:00 á Kaffi Thomsen - 18 ára aldurstakmark! NICOLETTE_sérstakur útlenskur gestur, ATINGERE_sérstakur íslenskur gestur, EXOS_Bravo DJ, ÁRNI VALUR_ Bravo DJ, BIOGEN_videólist! - Meira um Nocolette frá Reykjavik.com Breska söngkonan og plötusnúðurinn Nicolette skrapar plötur á næsta Bravo kvöldi. Meðal þess sem hún hefur unnið sér til frægðar er að...

Nýr vefur opnaður á mbl.is - Tilraunaverkefni! (9 álit)

í Skóli fyrir 23 árum, 1 mánuði
Í dag var var opnaður af menntamálaráðherra, Birni Bjarnasyni með hátíðlegri athöfn vefurinn www.mbl.is/utskolar. Á vefnum má finna fréttir frá þróunarskólunum sex, Árbæjarskóla, Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri, Varmalandsskóla í Borgarfirði, Fjölbrautarskólanum Ármúla, Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi og Menntaskólanum á Akureyri. Athöfnin fór fram í Árbæjarskóla að viðstöddum menntamálaráðherra, fulltrúum frá menntamálaráðuneytinu og Morgunblaðinu og gestum frá hinum...

Skólablað MA á netið 19.02.2001 (1 álit)

í Skóli fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nú eru nemendur við MA að vinna hörðum höndum við uppsetningu á nýjum fréttavef, sem ber heitið muninn.is. Vefurinn er fréttavefur Skólablaðs MA og er að öllu leyti unnin innan MA. Á vefnum verður að finna fjölbreytilegt efni sem kemur skólanum og nemendum við á einhvern hátt. “Ætlunin er að Muninn verði sílifandi fjölmiðill nemenda og félagslífs MA, úrval af því sem þar birtist verði síðan ásamt öðru efni gefið út á prentuðum Munin einu sinni til tvisvar á vetri. Ritstjóri Munins er Ólafur...

Leikritið Drekinn í umsjón Leikfélags MH! (7 álit)

í Skóli fyrir 23 árum, 1 mánuði
Leikfélag Menntaskólans í Hamrahlíð setur upp leikritið “Drekinn” í Tjarnabíó þessa dagana í leikstjórn Friðriks Friðrikssonar. Það var frumsýnt föstudaginn 9. febrúar og verður sýnt sem hér segir: Fimmtudaginn 15. feb kl.20:00 Föstudaginn 16. feb kl.20:00 Föstudaginn 16. feb kl.23:30 Laugardaginn 17. feb kl.20:00 - Lokasýning Miðaverð er 650 kr. fyrir meðlimi NFMH en 1.000 kr. fyrir alla aðra. Miðapantanir eru í síma 561 0280. nánari upplýsingar eru á netinu: www.nfmh.is/drekinn [Frétt...

Listavika í MS (0 álit)

í Skóli fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nú stendur yfir listavika í hinum annálaða skóla Menntaskólanum við Sund, þar sem nemendur skólans fá að viðra sína listrænu skoðanir upp um alla veggi skólans. Þetta er orðinn árlegur viðburður hjá MS-ingum og undarlegt að ekki skuli vera listnámsbraut í þessum skóla þar sem nemendurnir eru svona duglegir við að tjá sig á Skólafélagsins og heitir hún www.belja.is , kíkið á'ana. Einnig er komin dagsetning á "85 ballið og verður það haldið á Broadway 1.mars næstkomandi en meira um það...

Skemmtikvöld FG á Cafe Gróf! (0 álit)

í Skóli fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nú er kominn tími til að lyfta sér aðeins upp, líta af bókunum og kíkja út á lífið. Í kvöld verður skemmtikvöld FG haldið á Café Gróf. 18 ára aldurstakmark er við hurðina, enda er ætlunin að skemmtasér aðeins yfir glasi. Eru ekki allir á því að skemmta sér aðeins í kvöld! [Tekið af www.idan.is]

Eightísball á Selfossi! (3 álit)

í Skóli fyrir 23 árum, 1 mánuði
Föstudaginn 16. febrúar verður haldinn stórdansleikur í Hótel Selfoss í anda '80s fílingsins, þannig að dragið fram Wham og Vanilla Ice búningana og æfið moonwalk dansinn. Fram koma Elín Helena og Skítamórall í allra allra allra síðasta skipti. Sætaferðir frá öllum helstu stöðum. Forsala verður í Barón Fimmtudag 13:00-18:00 Föstudag 12:00-19:00 Sætaferðir Hvolsvöllur: 22:20 Hella: 22:30 Flúðir: 22:20 Hveragerði: 22:50 Stokkseyri: 22:45 Eyrarbakki: 22:50 Þorlákshöfn: 22:30 Verð Félagar í...

Hiphop-djamm í MH (0 álit)

í Skóli fyrir 23 árum, 1 mánuði
Áhugamálavefurinn TFA sem er tileinkaður áhugamönnum um hiphop tónlistina og lífstílinn, ætlar að halda djamm í MH á föstudaginn 16. feb. Þar munu koma fram Forgotten, Lores, M.A.T og Total Kayos. Verðið verður aðeins 500 kr og hefjast ósköpin upp úr klukkan 20:30. Fyrir þá sem vilja sækja sér nákvæmari upplýsingar, bendum við á heimasíðuna tfa.is!

Kvennó heldur Grímuball á Astró! (0 álit)

í Skóli fyrir 23 árum, 1 mánuði
Kvennó heldur Grímuball þriðjudaginn 13.febrúar .Það verður haldið á Astró frá 22:00 - miðnættis[?]. Menn í svörtum sjá um tónlistina og eru þeir víst þekktir einhverstaðar fyrir að vera skemmtilegt band! Dj Exos mun einnig með hjálp góðra vina halda uppi technóstuði fyrir þá sem eru ekki í svörtum fötum. Hvað finnst fólki í Kvennó um þennan viðburð, eru Menn í Svörtum Fötum og DJ Exos, alveg málið?

Nemendamót VÍ og sýningin "Wake Me Up" (14 álit)

í Skóli fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nemendamót Verzlunarskóla Íslands verður haldið á Broadway þann 8. febrúar og byrjar ballið klukkan ellefu um kvöldið, Stefán Hilmars, Egill Ólafs og Raggi Bjarna sjá um að halda verzlingum og öðrum gestum í góðum gír allt kvöldið og fyrir þá sem ekki kunna að meta þá undurfögru tóna sem þessir tónlistar menn framkalla þá verða að sjálfsögðu “standard issue” Dj-ar á þriðju hæðinni. Fyrir ballið er að sjálfsögðu árshátíðarsýningin alræmda (hver man ekki eftir Thriller) og að þessu sinni taka...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok