Jamm Tom Bombadil er mjög áhugaverður. En það verður að hafa efitrfarandi í huga. Tom hefur engan kraft fyrir utan gamla skóginn en í honum er hann nær almáttugur(Nazgularnir þorðu ekki þangað inn). Tom er heldur ekki hægt að skilgreina sem neinn ákevðinn kynþátt(álf, dverg, mann, maia eða vala). Það væri frekar að líta á hann sem einhvers konar anda sem er bundinn við ákveðinn stað og síðan öfugt. Annars virðist Tolkien hafa sótt minnið um Tom Bombadil í goðsögn frá heimaslóðum sínum.