Nú nenni ég ekki að taka þátt í neinu skítkasti, það eru ekki allir til í það að ræða málin á skynsamlegan hátt. Ég skil það vel að það fari í taugarnar á fólki sem er ekki kattavinir að kettir séu á sveimi hér í borg, sjálf er ég á þeirri skoðun að kettir eigi ekki að fá að ganga lausir í borg. Það er ekki málið. Þó að allir kattaeigendur tækju sig saman í dag og ákvæðu að halda köttunum sínum inni eða, eins og gera á við hunda, inni í afgirtum görðum, væri málið ekki leyst. Kettir eru...