Jæja, nú var John loksins hent burt. Hann fór mest í taugarnar á mér af öllum karakterunum. Hann fékk alla til að svíkja Rob og Sean. Rob hefði unnið þetta hefði hann ekki alltaf beðið um sannleikann. Maður gæti sagt, he talked too much. Ef einhver ætti að vinna sem er eftir þá er það Sean en mér finnst hann eiga frekar litla möguleika. Neleh og Paschal gengu í lið við Kathy, Sean og V um að kjósa John og halda Sean áfram. Nú er þetta Rotu bandalag ekki ráðandi.

Þátturinn verður meira spennandi og spennandi því lengra sem líður á dvölina. Það verður fyndið að sjá þegar Sean verður rekinn burt vegna hrokans sem var á milli hans og Johns. Þá á kannski eftir að myndast einhver usli á meðal kviðdómsins.

Kv,
TS