Ég ljóstra því hér með upp að ég er hvorki né hef ég nokkurn tíman verið mikill hægrimaður né kommúnisti!

Ég ljóstra því hér með upp að ég tilheyri tegund í útrýmingarhættu, tegund sem verður fyrir stanslausu háði og spotti og hatri, með öðrum orðum : Ég er miðjumaðurinn ógurlegi!

Á Íslandi er því miður enginn almennilegur miðjuflokkur, Framsókn er of hægrisinnuð og að einhverju leyti skipuð fólki með tengls við kvótaeigendur, Samfylkingin er of vinstrisinnuð og að miklu leyti skipuð fyrrverandi kommum, Ingibjörg Sólrún var til dæmis í Alþýðufylkingunni og Össur er líka gamall kommi.

Það er sorglegt að vita til þess að stjórnmálamenn Íslands eru flestir öfgamenn, en ég hef sýnt ykkur með skrifum mínum hversu fáránlegir öfgamenn eru.

Það er engin tilviljun að talað er um “hinn gullna meðalveg”, afþví bæði vegur hægri og vinstri eru vegir fátæktar og eymdar, en miðjan er vegur gullsins, hinn gullni meðalvegur.

Við verðum að sýna stillingu, skynsemi og gera göfugar málamiðlanir í stað þess að láta eins og óþroskaðar gelgjur.

Nú er Framsókn auðvitað öfgaflokkur eins og allir aðrir stjórnmálaflokkar Íslands, og margir öfgamenn þar, en hún er samt skásti stjórnmálaflokkurinn.

Hversu oft höfum við ekki öll séð Halldór Ásgrímsson svara öskrum og ópum brjálæðinga til hægri og vinstri af fullkominni stillingu, yfirvegun og fágun?

Viljum við láta geðsjúklinga stjórna landinu?
Nei, þá viljum við heldur Halldór!

Ég vona að dag einn muni alvöru miðjuflokkur verða til á Íslandi og dagar komma og fasista þeirra sem fylla nú hvern flokka verði á enda!

Fylgdu hinum gullna meðalvegi,
gakk þú í hinni gullnu sól sem skín á veg miðjumannsins sanna!

En öfgar eru leið til dauða og fátæktar.

Þökkum fyrir að miðjumenn hafa notað áhrif sín og forðað Íslandi frá að verða fasistum og kommúnistum sem kalla sig hægrimenn og vinstrimenn að bráð!

Gakk þú á gullnum meðalveginum og njóttu því það er norrænt velferðar OG frjálshyggju sumar, miðvolgt og hvorki né með stöðugri velferð!

Höldum því þannig og gerum það enn betra, stofnum ALVÖRU miðjuflokk og komum öfgamönnunum frá völdum!

Indælustu miðjusinnuðustu kakó kveðjur,

nafnið sem er grín og ádeila á heimsku og öfgar landans, eins og xS kynslóðin væri auðvitað líka!