Sæll Starboy, Að sjálfsögðu hefur þú allan rétt til að lýsa þínu áliti á köttum og öllu almennt. Það sem við hér á hugi.is/kettir erum mjög svo langþreytt á er dónaskapurinn, ljótu orðin og viðbjóðurinn sem sumir láta út úr sér hér. Ég myndi vilja að fólk sem eiga í “stríði” við kettina í nágrenni sínu spyrðu um ráð gegn þeim. T.d. að halda þeim útúr garðinum, hvernig verja skal sandkassa gegn þeim og þess háttar. IceCat