Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Frog - Kill Your Idols (2 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 19 árum, 1 mánuði
Þegar ég setti þessa plötu á fóninn vissi ég ekki alveg við hverju ég mátti búast. Ég hafði séð þau spila á Airwaves hátíðinni og fannst þau spila mjög fallega kassagítartónlist og hafði því kanski búist við einhverju álíka, en var fljótt að breytast og það bara strax á fyrsta lagi. Kunnuleg bassamelódía með fallegum kvensöng sem grípur mann strax, ég fór að dilla höfðinu í takt og þegar fór að líða á lagið var ég farinn að syngja með þó ég hafði aldrei heyrt þetta áður, þannig séð. Þegar...

Rokkarinn - Tónleikar (6 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Sælir hugarar. Nú er komið að tónleikum númer 2 hjá þeim sveitum sem hafa verið gestir Rokkarans á Radio Reykjavík Fm 104.5 Að þessu sinni eru það hljómsveitirnar Gay Parad Lada Sport Kanis Ísidor Húsið opnar klukkan 21 og konsertinn byrjar 22 Frítt inn og stúdentaskirteini gilda á barnum. nánar á www.andmenning.com/rokkarinn Síðast var nánast fullt hús, núna á að vera fullt hús. MÆTIÐ!

Rokkarinn kominn með heimasíðu (1 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Rokkarinn er kominn með heimasíðu þar sem hægt verður að fylgjast með hvaða hljómsveitir eru að koma í þáttinn og sjá myndir og fréttir af tónleikum og ýmislegt fleira. síðan er á www.andmenning.com/rokkarinn

Rokkarinn og RadioReykjavík halda tónleika á Gauknum (8 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Sæl, Fyrir þá sem hafa fylgst með rokkaranum á mánudagskvöldum milli 21-23 á radioreykjavík FM104,5 kem ég með stórskemtilega nýjung við þennann þátt. Einu sinni í mánuði verða haldnir tónleikar með þeim hljómsveitum sem hafa komið í þáttinn og er komið að fyrstu tónleikunum núna á miðvikudaginn 27.okt. Þau bönd sem koma fram núna verða Skátar Coral Lokbrá Brúðarbandið Svo verður þetta að mánaðarlegum viðburði og verður haldið vonandi síðasta miðvikudag í hverjum mánuði. Stefnan er að það...

Rokkarinn - vantar hljómsveitir (10 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Yo, Það fer að vanta hljómsveitir til að koma í þáttinn Rokkarann á Radio Reykjavík Fm 104,5 Ef þú ert í bandi og langar að koma í þáttinn sendu þá meil á Rokkarinn@radioreykjavik.is eða hringdu í Stebba í síma 6994750. Þátturinn er 2 tíma langur og fjallar um eina íslenska hljómsveit í hvert sinn, spjallað er um græjur tæki og tól, tónlistina og allt sem við kemur því að vera í hljómsveit. Takk Fyri

Sólstafir í Rokkaranum á Radio Reykjavík FM 104.5 (0 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Sæl, Sólstafir verða næstu gestir rokkarans á mánudagskvöldið 6. Sept milli 21-23. Sólstafir eru án efa ein metnaðarfullasta metal sveitin sem við Íslendingar eigum og hvet ég alla til að hlusta og kynnast mönnunum á bakvið bandið og fá betri innsýn inní þessa þungu og flóknu lagasmíð þeirra. Stillið á Radio Reykjavík FM 104.5 á mánudagskvöldið milli 21-23 og ekkert múður.

Hölt Hóra í Rokkaranum á mánugadskvöld (1 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Sæl, Þar sem ég get ekki lengur sett inn greinar á rokkaratilkynningadæmið þá ætla ég bara að gera það hér. Á mánudaginn 30. Ágúst ætlar Hölt Hóra að mæta í viðtal og spila live nýtt efni í beinni útsendingu. Það á eftir að vera áhugavert að hlusta á þetta hráa pönk stöff í kassagítarsútgáfu og mæli ég með að allir tékki á þessu á milli 21-23. Svo er framundan hjá Rokkaranum 06.sept - Sólstafir 13. sept - Noise 20. sept - Brúðarbandið 27. sept - Mínus Fyrir þá sem vilja fylgjast með hvað er...

Rokkarinn á Radio Reykjavík Fm 104.5 (7 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Á mánudagskvöldum milli 9 og 11 á Radio Reykjavík er á dagskrá þáttur sem ber heitið Rokkarinn. Þema Rokkarans er íslensk tónlist og íslenskar hljómsveitir. Hljómsveitir koma í þáttinn með upptökur af tónleikum, stúdíói og bílskúrsupptökur, spjallað verður um græjur og áhrifavalda, sögu bandsins og ýmislegt í þeim dúr. Í þættinum í kvöld mun hljómsveitin Dr.Spock koma í þáttinn og spjalla um bransann, ásamt því að koma með upptökur af nýrri tónlist sem þeir hafa verið að taka upp sem og líka...

Súpergrúppa verður til (15 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ég hafði hugsað mér að skrifa grein um uppáhalds íslensku hljómsveitina mína en þegar ég var að browsa netið í leit að upplýsingum og ýmsu öðru þá rakst ég á þessu meiriháttar vel skrifuðu grein eftir hann Þorstein Eggertsson og ákvað í staðinn að taka mér bessaleyfi og birta hana hér. Ég vona að þið fyrirgefið mér það. Breytingar í tónlistarheiminum - súpergrúppa verður til Árið 1969 voru Hljómar og Flowers vinsælustu hljómsveitir landsins og Björgvin Halldórsson var kosinn poppstjarna...

Megadeth - Risk (20 álit)

í Metall fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þrátt fyrir að Megadeth hafi aldrei náð neinni sérstakri spilun í útvarpi eða Mtv þá reyndu þeir samt að halda í þá stefnu. Enda voru Metallica búnir að sanna það að gamlar underground Thrash hljómsveitir gætu alveg fengið spilun þar. Sumir voru sáttari en aðrir, Nick Menza var það allavega ekki og tók hest sinn og hnakk og yfirgaf samkvæmið, mikill missir þar. Jimmy DeGrasso, gamall bumbubani hjá Alice Cooper tók hans stað. Þrusu trommari þar á ferð en á engann hátt sambærilegur við Menza....

Megadeth - Cryptic Writings (14 álit)

í Metall fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Eftir 3 ár og enga sérstaka spilun í útvarpi né Mtv og enga sérstaka umfjöllun í fjölmiðlum þá þurftu þeir félagar að taka sig saman í andlitinu og gera eitthvað mergjað. Mustaine settist niður og spáði mikið í spilin hvað væri hægt að gera til að auka frægðarljóma Megadeth og fékk þá hugmynd að gera lögin bara ennþá meira útvarpsvænni og þægilegri, bæta smá synthum inní myndina og *voila* þá ætti þetta að koma sko…. Útkoman varð “Cryptic Writings” sem kom út árið 1997 Track Listi: 1. Trust...

Gítarinn - Hljóðfæraverslun (37 álit)

í Hljóðfæri fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Halló, Ég hef tekið eftir því að umræðan um Gítarinn er alltaf mjög slæm. Fólk er ekki ánægt með þjónustuna hjá þeim og segja að þeir selji rusl hljóðfæri og ýmislegt fleira í þeim dúr, sem er nú svo sem alveg rétt því mestmegnis af því sem þeir selja er fjöldaframleitt crap. En hins vegar þá er þarna inn á milli gæða græjur eins og td Crafter kassagítarar, sem eru tiltölulega vandaðir. Mxr effectar, sem eru nú bara með þeim betri í bransanum og meira segja er Gítarinn með þá á mjög góðu...

Megadeth - Youthanasia (21 álit)

í Metall fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Jæja, þá er best að klára Megadeth. Enda ekki litlir snillingar þar á ferð. 2 árum eftir “Countdown to Extinction” þá var heldur farið að halla undir fæti hjá Megadeth. Vinsældir Metallica gerði það að verkum að gömlu thrash böndin á borð við Megadeth, Slayer og Sepultura urðu aftarlega á merini í kapphlaupinu um frægð og frama. Ákveðið var að reyna að gera útvarpsvæna plötu sem gæti skákað við vinsældum Metallica og sett Megadeth aftur á kortið og græða smá aur. Útkoman varð “Youthanasia”...

Hnakkar (80 álit)

í Djammið fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Hó, Ég gerðist svo frægur að fara á Dj Sasha í miðvikudaginn, ég fór líka síðast þegar hann kom og skemmti még þokkalega þannig að bjóst við álíka góðu djammi þetta skiptið. En blessaður maðurinn var eitthvað upptekinn og lét ekki sjá sig, súrt en kvöldið var samt nokkuð vel heppnað þar sem að Grétar hélt uppi stuðinu, enda plötusnúður á heimsmælikvarða þar á ferð. En það sem stóð uppúr á þessu kvöldi voru hnakkarnir. Hvurslags djöfulsins rumpulýður og ribbalda ræflar eru þarna á ferð, hvað...

Metallica - St Anger (106 álit)

í Metall fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Eftir 5 ára bið og lagastíflu var kominn tími á nýja plötu hjá okkar mönnum. Jason Newsted ákvað loksins að yfirgefa samkvæmið eftir áralanga niðurlægingu og einelti frá þeim strákum og stofnaði sitt eigið band, enda löngu búinn að skapa sér nafn og það eitt ætti að geta haldið hljómsveit uppi. Echo Brain hafa gefið út 2 plötur ásamt því að Newsted vann með Gov´t Mule sem inniheldur ekki minni menn en Les Claypool og fleiri. James fór í meðferð eftir áratuga baráttu við bakkus, gott hjá...

Metallica - S&M (51 álit)

í Metall fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Eftir að hafa verið komnir í þrot með nýtt efni en samt sem áður búnir að skapa sér nafn sem brautryðjendur í bæði Thrash, speed og modern good´ol boy metal var kominn tími til að gera eitthvað nýtt. Þeir settust niður og veltu því fyrir sér hvað hægt væri að gera skemtilegt með þetta dót sitt allt saman og ákveðið var að spjalla við Michael Kamen. Kamen þessi var nú enginn nýgræðingur, frægur fyrir að hafa stofnað “The New York Rock & Roll Ensemble” sem blandaði saman pop tónlist og fusion...

Metallica - Garage inc. (25 álit)

í Metall fyrir 19 árum, 12 mánuðum
Í mörg ár var “Garage day´s re- revisited” smáskífan sem kom út 1987, ein vinsælasta bootleg útgáfa þeirra kappa. Öll þessi cover lög voru eitt vinsælasta efnið þeirra í þessum “underground” tölvuheimi (napster ofl) enda ekki skrýtið þar sem að flestir þeirra aðdáendur voru komnir með hálfgert ógeð á þessu nýja rokk dóti sem þeir voru búnir að gera á “Load” og “Re - Load” og sóttust því í þetta gamla góða hráa stöff sem þeir höfðu áður gert. Í staðinn fyrir að reyna að berjast í hinni...

Metallica - Re - load (20 álit)

í Metall fyrir 19 árum, 12 mánuðum
Ári eftir “Load” þá gáfu þeir félagar út “Re - Load”, ástæðan fyrir því var sú að eftir 5 ára hlé þá áttu þeir svo mikið efni til, að þeir þurftu að skilja mikið eftir, annars hefðu þeir misst af útgáfudeginum sem þeir var gefinn (record companies at it again). “Re - Load”, er eins og nafnið gefur til kynna er hún hálfgert framhald af “Load” plötunni sem kom út 1996. Sami fílingurinn liggur yfir henni, sklijanlega þar sem flest efnið var tekið upp á svipuðum tíma eða þá á meðan að þeir voru...

Metallica - Load (40 álit)

í Metall fyrir 20 árum
Til að byrja með langar mig að biðja admina hér afsökunar á því að hafa sagt að þetta sé verst stjórnaða áhugamál á huga og jafnframt því biðja alla þá sem stunda þetta áhugamál vinsamlegast að leyfa mér að klára þessa seríu áður en þeir fara að skrifa greinar um Metallica. Að því loknu…. 5 árum eftir “Black Album” gerðu þeir félagar tilraun til að viðhalda vinsældum sínum og útkoman var “Load”. Þegar bönd eru kominn á sama stall og Metallica þá er nánast sama hvað þau gera, það verður...

Metallica - Metallica (89 álit)

í Metall fyrir 20 árum
Ekkert heyrðist í Metallica í nokkur ár eftir “…And Justice For All” fyrir utan “The Good The Bad And The Live” tónleika stöffið. Margir voru farnir að velta því fyrir sér hvað væri í gangi og sögusagnir um eitthvað nýtt og ofsalega spennandi gerði biðina að nýju plötunni óendanlega langa. Ég var einn af þeim sem beið óþreyjufullur og með ákafa. Loksins, um haustið 1991 kom þessi blessaða plata í plötuverslanir. Biðraðir mynduðust og allt varð vitlaust, allir vildu næla sér í eintak af þessu...

Metallica - ....And Justice For All (38 álit)

í Metall fyrir 20 árum
Sá ótrúlega sorglegi atburður átti sér stað að þegar bandið var að túra um evrópu þá lentu þeir í rútuslysi sem varð til þess að Cliff Burton dó. Ef ekki hefði verið fyrir strákana í Anthrax þá væri James sennilega dauður líka, því þeir studdu við bakið á þeim í gegnum þessar sorgarstundir. Framtíð Metallica var tvísín um stund, þeir voru að velta því fyrir sér hvort að þeir gætu haldið áfram án þess að hafa Cliff með, en eftir töluverða íhugun komust þeir að þeirri niðurstöðu að Cliff hefði...

Metallica - Master Of Puppets (54 álit)

í Metall fyrir 20 árum
Þá er komið árið 1986, strákarnir okkar eru búnir að þroskast töluvert og að öllum líkindum farnir að fikta með hjálpartæki djammlífsins. Master Of Puppets kom út 1986 og það er greinilegt að þeir hafa haldið sig við þessa uppröðun sem þeir voru búnir að finna. Það er hægt að bera saman “Ride the…..” og “Master Of….” saman lag fyrir lag, plöturnar eru alveg eins settar upp, nema að instrumental lagið er síðasta lagið á “Ride the….” en næst síðasta á “Master Of….” Ekkert að því, bara gott...

Metallica - Ride The Lightning (35 álit)

í Metall fyrir 20 árum
Ári eftir Kill´em All settust strákarnir niður og tóku upp nýja plötu. “Ride The Lightning” kom út árið 1984, og það var greinilegt að þeir voru búnir að pæla mikið í tónlstinni sinni og ætluðu sér stóra hluti með henni. Á þessari plötu kom upp þessi klassíska Metallica uppsetning í fyrsta sinn, þaes fyrsta lagið mjög hratt, annað lagið titillagið, 3 lagið svona hægt og þrungið, fjórða lagið ballaða og svo eitt instrumental lag osfvr. Track Listi: 1. Fight Fire with Fire...

Metallica - Kill´em All (40 álit)

í Metall fyrir 20 árum
Þeir sem stunda þetta áhugamál hafa eflaust orðið varir við greinar mínar þar sem ég tek fyrir eina hljómsveit og skrifa um allar plötur þeirra. Þar sem þeim hefur öllum verið vel tekið og einnig vegna þess að í kvöld (mánudaginn 19.04.2004) mun ég vera með 2 tíma langann þátt á Radio Reykjavík um Metallica hef ég ákveðið að stíga þau djörfu spor að skrifa greinar um plötur þeirra manna. Ég geri mér grein fyrir þessu þvílíka áhættu skrefi sem ég er að taka því jú, það hafa nú verið skrifaðar...

Lögreglan ryðst inn í Kristjaníu (48 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 1 mánuði
Ég las á www.mbl.is að lögreglan hafi ráðist inn í Kristjaníu og handtekið þar 69 manns vegna sölu og dreifingu á hassi. \“Árið 1987 var viðurkennt formlega að Kristjanía væri „félagsleg tilraun\” og tveimur árum síðar veitti danska þingið íbúunum leyfi til að nýta landið\" stendur á www.mbl.is og ekki veit ég betur en að þessi tilraun hafi hreinlega gengið bara vonum framar. Langflestir sem ferðast til Danmörku gera sér leið í Kristjaníu, kanski ekki til að kaupa sér hass, en allavega til...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok