Hnakkar Hó,

Ég gerðist svo frægur að fara á Dj Sasha í miðvikudaginn, ég fór líka síðast þegar hann kom og skemmti még þokkalega þannig að bjóst við álíka góðu djammi þetta skiptið. En blessaður maðurinn var eitthvað upptekinn og lét ekki sjá sig, súrt en kvöldið var samt nokkuð vel heppnað þar sem að Grétar hélt uppi stuðinu, enda plötusnúður á heimsmælikvarða þar á ferð.

En það sem stóð uppúr á þessu kvöldi voru hnakkarnir.

Hvurslags djöfulsins rumpulýður og ribbalda ræflar eru þarna á ferð, hvað er það sem fær stráka til að vilja líta svona út, taka svona mikið kók í nefið, vera með þetta attitude og pikka fight við bara einhvern út af engu???

Það var svoleiðis krökkt af þessum bjánum þarna, allir með hvítann Magnús og allir með djöfuls derring, tala hátt um hluti sem eru svoooo ómerkilegir eins og BMW´inn þeirra og slagsmálin sem hann var í síðustu helgi þar sem hann dúndraði í smettið á fokking ræflinum sem rakst utan í hann….fokking fávitinn á bara að læra að labba sko….??!?!??!!

Þegar búið var að loka staðnum og verið að smala liðinu út, þá var ég beðinn um að ná í einn af þeim sem var með okkur þarna í hóp og ég gerði það, ekki málið. En þegar ég snéri mér við til að fara labba út þá einmitt rakst ég aðeins utan í Hnakka Einarsson sem gerði sér lítið fyrir og fleygði mér nokkra metra afturábak (enda er ég líka frekar smár maður) á meðan hann gargaði “Hvað er málið!!” á eftir mér. Ég baðst mannin bara afsökunar á þessu en hann var sko ekki til í það, og áður en ég vissi af þá voru komnir svona 6 hnakkar fyrir framan okkur og ætluðu heldur betur að láta okkur finna fyrir því. Dyraverðir náu að koma þeim í burt, en aðeins eftir að búið var að kýla eina stelpu, einn strák og mikil rifrildi búin að eiga sér stað (á milli hverja veit ég ekki eða um hvað). Ég sá nú fram á að þetta væri nú búið en nei, þá stekkur einn fram og lemur vin minn í hausinn með flösku!!!! og annar stekkur fram og sveiflar hendinni með þvílíkri sveiflu að Muhammed Ali hefði roðnað, ég tók eitt skref afturábak og lenti á þröskuld og datt afturfyrir mig þannig að ég slapp, en 4 aðilar sem stóðu í kringum mig fengu allir einn á smettið….af einu höggi!! Og allir sem voru þarna voru jafn hissa á því hvað var að gerast. Það virtist ekki skipta neinu máli hvort einhver hafði gert einhverjum eitthvað eða ekki, einhver skyldi laminn….og skipti engu máli hvort að það var stelpa eða strákur.

Ég hef nú lent í ýmsu á mínum 10 ára djammferli en aldrei í öðru eins. Hvað er að þessum mönnum? Nota bene, þeir eru flestir á aldur við mig eða eldri. Maður hefði nú kanski búist við einhverju svona af krökkum en ekki fullorðnum mönnum.

Hnakkar! Takið minna í nefið og slappið af!!

Ps

Myndin tengist greininni ekki á nokkurn hátt…..
ibbets úber alles!!!