Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Megadeth - Countdown To Extinction (10 álit)

í Metall fyrir 20 árum, 1 mánuði
Árið 1992 kom svo þessi plata út hjá þeim Megadeth mönnum, maður hefði haldið að R.I.P væri það góð plata að engin hljómsveit myndi þora að reyna að halda í við hana, hvað þá toppa hana. Með svipaðar pælingar og Metallica, gengu þeir Megadeth menn inní stúdíó og gerðu þessa plötu. Sennilega eini munurinn er sá að Megadeth hélt sig við ræturnar og gerði metalplötu en Metallica menn fengu pródúserinn hjá Bon Jovi (??!!?!??!) til þess að gera “meistarastykki” fyrir þá (think we can all agree to...

Megadeth - Rust in Peace (25 álit)

í Metall fyrir 20 árum, 1 mánuði
Jæja, Árið 1990 var greinilega gott ár hjá Mustaine. Hann gerði sér lítið fyrir og varð edrú og rétti úr sínu lífi, fékk til sín alvöru gítarleikara og trommara sem seldi víst sál sína á krossgötum. Marty Friedman sem var í gítarhetju bandinu Cacophny ásamt ofurgítarhetjunni Jason Becker (sem greindist svo með ALS lömunarsjúkdóm aka Lou Gehrig's sjúkdómur) þar sem þeir sýndu ótrúlega symphóníska getar takta, og er það greinilegt að Mustaine hefur ákveðið að þetta væri málið. Nick Menza hafði...

Megadeth - So far so good......So what? (19 álit)

í Metall fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ég ætla nú ekki að rita langa grein um þessa hálfmisheppnuðu tilraun þeirra Megadeth manna til að viðhalda snillinni sem “peace sell´s” var og er. Þegar hér er komið við sögu er kominn nýr gítarleikari að nafni Jeff Young. Ekki veit ég hvað stóð til, en sá gaur hefur ekkert að gera með þetta band. Hann skilur ekkert eftir sig og gefur ekkert frá sér. Track Listi: 1. Into the Lungs of Hell [instrumental] (Mustaine) 2. Set the World Afire (Mustaine) 3. Anarchy in the U.K....

Megadeth - Peace Sells......But Who´s Buying (18 álit)

í Metall fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Eftir að hafa staðið í smá múnderingum þá gaf Megadeth út Plötuna Peace Sells….But Who´s buying árið 1986. Þessi plata markaði nú tímamót í Trash Metalnum einfaldlega vegna þess að hún er svo frábær. Miklar tónlistarpælingar áttu sér stað hjá Dave enda sjaldan verið sagt að dóp skemmi fyrir sköpunargleði manna hvað tónlist varðar og var hann kominn gersamlega á kaf í heróín á þessum tíma. Track Listi: 1. Wake up Dead (Mustaine) - 3:40 2. The Conjuring (Mustaine) - 5:04 3. Peace Sells...

Megadeth - Killing is my Buisness............ (34 álit)

í Metall fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Eftir að hafa verið rekinn úr Metallica árið 1983 stofnaði Dave Mustaine Quartetinn Megadeth. Ég er viss um að einhverjir hugarar þarna úti vilja bæta við þessa sögu einhverum svaka fullyrðingum og staðreyndum en það er ekki tilgangur minn að fara nánar útí Mustaine/Metallica tímabilið en þetta. Aðalmunurinn sem Dave setti sér var að gera tónlistina hraðari og einbeita sér betur að vönduðum hljóðfæraleik. Með því að gera þetta vildi hann gera Thrash Metalinn harðari og meira ógnandi og...

Guðlegar Leiðbeiningar (4 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hérna á eftir koma guðlegar leiðbeiningar um hvernig refsa skal börnum sínum á sannkristinn hátt. Eflaust útskýrir þetta margt um hvernig geðsjúkt fólk hagar sér í dag, en þetta er tekið af hinni ótrúlega mögnuðu síðu www.landoverbaptist.org en þar er td að finna link á fjárveitingu sem Bush Jr hefur gefið þessum söfnuði og er hann á www.whitehouse.com þannig að maður verður að velta fyrir sér hvað ætli sé að þessu fólki!!!! En allavega, njótið vel og ég vona að þetta gagnist ykkur í að ala...

Death - Sound of Perseverance (26 álit)

í Metall fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það er alltaf sorglegt þegar góðir listamenn falla frá. Sérstaklega þegar í mörgum tilfellum er þeirra minnst fyrir þeirra síðasta verk. Til dæmis er mjög sorglegt að hinn ágæti leikari Raul Julia skyldi hafa leikið í “Street Fighter” sem sinni síðustu mynd *hrollur*. Þessvegna er ég guðslofandi fegin að Chuck skyldi hafa gefið okkur þetta stórkostlega symphóniska meistaraverk sem “Sound of Perseverance” er. Platan er mjög þung, og tók það mig marga daga með samfelldri hlustun að komast inn...

Death - Symbolic (6 álit)

í Metall fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Árið 1995 gaf Death út plötuna “Symbolic”. Það er alltaf leiðinlegt þegar hljómsveitir sem hafa gert margar stórgóðar plötur, fara að sigla einhvern meðalveg. Sem dæmi má nefna massana í Metallica, með svörtu plötu sinni höfðu þeir greinilega gefið skít í alla hugsjón sem hafði legið að baki og farnir að einbeita sér að því að verða gamlir. Svipað má segja með “Symbolic”. Það mætti halda að það hefði eitthvað gengið á hjá Chuck því það virðist sem hann hafi ekki haft mikinn metnað í sér eins...

Fyrsta Súpergrúppan (33 álit)

í Gullöldin fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þessi grein er löng en ég held að allir unnendur gullaldartónlistar eigi eftir að hafa gaman af henni og hvet ég alla til að lesa hana. Árið 1968 var Eric nokkur Clapton í frekar erfiðari stöðu. Hljómsveit hans Cream var mjög vinsæl og hafði selt milljónir platna um allan heim og var sett á sama stall og Bítlarnir og Rolling Stones. En Ginger Baker trommari sveitarinnar og Jack Bruce bassaleikari þoldu ekki hvorn annan og lenti Clapton mikið í miðjunni á þeim deilum. Clapton var orðinn...

Death - Individual Thought Patterns (22 álit)

í Metall fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Árið 1993 þá kom út platan “Individual Thought Patterns”. Á þessum tíma var ég persónulega lítið að hlusta á dauðarokk, farinn að velta mér uppúr öðruvísi tónlist, enda var ég með á hreinu að ekkert gæti skákað við “Human” so why bother. Eitthvað hefur Chuck verið ósáttur við “Human” því hér er hann aftur búinn að skipta um menn í öllum hlutverkum nema á bassanum. Credit Listi: Scott Burns - Producer, Engineer Chuck Schuldiner - Guitar, Vocals, Producer Gene Hoglan - Drums Andy LaRocque -...

Death - Human (21 álit)

í Metall fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég gleymi því seint þegar ég sat heima hjá mér með gítarinn og hamraði á hann brútal þungarokk í takt við tónlistina í græjunum, að vinur minn hringir í mig og segir mér að við séum að fara í leiðangur, til að kaupa nýju Death plötuna. Árið 1991 hjá Death markaði greinilega einhver tómamót hjá þeim. Þarna var Chuck búinn að splitta bandinu gersamlega upp, kominn með nýja menn í öll hlutverk og það enga smákrakka heldur. Cradit Listi: Scott Burns - Producer, Engineer, Mixing Mike Fuller -...

Death - Spiritual Healing (6 álit)

í Metall fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Með tilkomu “Spiritual Healing” árið 1990 þá var greinilegt að Chuck Shuldiner meinti það sem hann var að gera. Þarna var hann farinn að xperimenta allrækilega og kanski fullmikið ef út í það er farið. Öll platan er flókin, hvort sem er hljóðfæraleikur eða textasmíði, kanski fullflókin, því hún nær aldrei að hitta naglann á höfuðið ef svo má að orði komast. Þarna var hann búin að skipta Rick Ross út fyrir James Murphy á gítarinn. James þessi Murphy hefur unnið með ekki minni mönnum en...

Death - Leprosy (10 álit)

í Metall fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Jæja halda nú áfram skrif mín um goðin og frumkvöðlana í Death. Ári eftir að þeir gáfu út “Scream Bloody Gore” gáfu þeir út plötuna “Leprosy”. Þegar hér er komið við sögu er meistari Chuck búinn að fá til sín töluvert þéttari og betri mannskap á hljóðfærin. credit listi Bill Andrews - Drums Scott Burns - Engineer Terry Butler - Bass Mike Fuller - Mastering Danny Johnson - Producer Chuck Schuldiner - Guitar, Vocals David Bett - Art Direction Frank White - Photography Edward Repka - Artwork...

Death - Scream Bloody Gore (13 álit)

í Metall fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þar sem ég hef ekki rekist á eina einustu grein um death metal goðin Death, hef ég ákveðið að rita hér nokkrar greinar um plötur þeirra pilta. Fáar sveitir hafa reyndar skipt jafn oft um meðlimi og Death þannig að maður ætti eiginlega að segja um plötur hans Chuck Shuldiner og félaga. Chuck Shuldiner er án efa sá maður sem (ef það ætti að gefa einhverjum einum credit fyrir það) gæti verið faðir Death Metal stefnunar og nánast allra hennar greinar. Hans nafn verður ávalt minnst þegar talað...

Mogwai - Ten Rapid (11 álit)

í Rokk fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þetta er frumraun mín í gagnrýnisskrifun þannig að take it easy on me. Hljómsveitin Mogwai var stofnuð árið 1996 af þeim Stuart Braithwaite (gítar/söngur), Dominic Aitchison (gítar)og Martin Bulloch (trommur). Markmið þeirra stráka var að búa til vandaða gítartónlist og til að nálgast það markmið betur þá bættu þeir við sig gítarleikaranum John Cummings og gáfu út singulinn “Tuner” árið 1996. Sá diskur er mjög íllfáanlegur útaf furðulegum söng og ýmislegt í þeim dúr sem menn voru víst ekki...

Þroskahefti kötturinn (36 álit)

í Kettir fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Þegar ég bjó í Þorlákshöfn árið 2000 bjó ég einn í lítilli kjallaraíbúð, og var hálf einmana þar sem ég þekkti nú ekki marga þar. Einn daginn þá frétti ég það að fólk sem bjó í næstu götu voru að eignast kettlinga þannig að ég dreif mig á staðinn og ákvað að kíkja á krílin. Jújú þeir voru allir mjög sætir og pínulitlir (þið vitið nú hvernig þeir eru). Ég tala við þann sem átti íbúðina og bjó fyrir ofan mig en hann var nú allskostar ekki hrifinn af því að ég myndi fá mér kisu þangað niður,...

Reimleikar (52 álit)

í Dulspeki fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Sæl veriði, Með þessari grein langar mig að lýsa fyrir ykkur hvernig ég hugsa um og lít á reimleika, líf eftir dauðann, fylgjur, árur og Davíð má vita hvað þetta kallast allt saman. Þar sem ég er efasemdarmaður mikill, ekki vegna þess að ég vil vera það heldur er ég það bara, hef ég mikinn áhuga á öllu sem tengist óútskýranlegum atburðum. En af einhverjum ástæðum að þegar einhver segir mér sögu eða eitthvað sem átti að hafa gerst, þá er dettur mér alltaf strax eitthvað í hug sem svar, og mér...

Thursa unreal!!2 (37 álit)

í Unreal fyrir 22 árum, 1 mánuði
Spurningin er að hafa þetta um páskahelgina ef Lansetursmenn samþykkja það……hvernig hljómar það í ykkar eyrum? ibbets og ZaPpY

Thursa unreal!! (18 álit)

í Unreal fyrir 22 árum, 1 mánuði
Þeir bræður hjá Lansetrinu voru að velta fyrir sér hvort þeir ættu að vera með thursa mót í unreal. Þá yrði það þannig að það myndi kosta 2000 kall inn á mótið og 1000 kall af því myndi leggjast í sjóð sem yrði síðan verðlaun. Ef við myndum ná 30 manns þá yrði það 30,000 kall sem myndi vera í verðlaun. Gætum haft það 10,000 kall fyrir Dm og kannski 5,000 kall á haus í ctf. Meira um málið síðar. Og hananú ibbets

Ég er eyturlyfjasjúklingur! (189 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það er föstudagskvöld, ég er kominn heim úr vinnuni (þaðan sem ég borga skattana mína) og konan mín er búin að elda ágætis mat(fyrir launin mín sem ég vinn mér inn fyrir) og krakkarnir eru komnir í rúmið. Ég fæ þá brjáluðu hugmynd að fara og taka vídeóspólu og myndin Lost Higway verður fyrir valinu(eins og ég hafi ekki séð hana 50 sinnum), Gunni og Gunna vinafólk okkar koma í heimsókn og við setjumst niður og förum að spjalla. Á meðan að við spjöllum rúllar Gunni eina jónu eins og honum er...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok