Jæja loksins er gripurinn kominn. Hún kom með Cargo vél Fugleiða til Keflavíkur á miðvikdagskvöld. Daginn eftir, skírdag, fengum við hana tollafgreidda og flugum henni síðdegis þann dag frá Keflavík á Tungubakka, en þar í nýja flugskýlinu hans Orra, verður hún skoðuð og skráð. Skráningamerki hennar verður TF-SAA. Nokkur töf varð á komu vélarinnar m.a. vegna þess að seljandin skilaði sér ekki til JFK flugvallar í New York á tilsettum tíma og tollararnir þar tóku viku í að vinna sína litlu...