Svifflugið er rekið á félagslegum grunni. Þú þarft aðeins að læra svifflug, borga 9000 kr félagsgjald og þá hefur þú aðgang að tug milljóna eignum. Svifflugfélagið á flugskýlin, félagsaðstöðu, 6 flughæfar svifflugvélar, spil, dráttarflugvél og margt fleira. Svo er Svifflugfélagið skemmtilegur félagsskapur, gaman að vera upp á Sandskeiði, fljúga ef manni langar til eða bara að spjalla við hina vitringana. Allir velkomnir þegar flugveður er.