AF GRAS.IS: Lee Sharpe, fyrrum leikmaður Man. Utd., kemur til landsins næsta föstudag til þess skoða aðstæður hjá Grindavík. Að sögn Jónasar Þórhallssonar, formanns knattspyrnudeildar Grindavíkur, vilja menn þar á bæ skoða Lee Sharpe og sjá í hvernig æfingu hann er áður en gengið verður til samninga. Að sögn Jónasar eru það bakhjarlar Grindavíkurliðsins sem standa að komu Sharpe til Grinavíkur en ekki knattspyrnudeildin sjálf. Ef samningar takast er Sharpe ætlað að taka stöðu Scott Ramsey...