Olga Færseth í ÍBV! Tekið af http://ibvkvenna.blogspot.com

——–

Wednesday, November 27, 2002
Heimir Þjálfari!!!
Nú hefur komið í ljós að Heimir Hallgríms hefur ákveðið að þjálfa okkur í ár, öllum til mikillar ánægju. Hann tilkynnti okkur stelpunum þetta á æfingu áðan. Hann sagði okkur hins vegar að það væri ekki enn komin stjórn, því hvetjum við alla sem hafa augastað á einhverjum í stjórn eða bara einfaldlega með tillögu, að koma því áleiðis til Heimis eða aðalstjórnar. Og um að gera að koma með hugmyndir!!!!!!!!
En það er gott að það er komin einhver mynd á þetta allt saman hjá okkur…. :o)

———–

Saturday, November 30, 2002
Það bætist í hópinn!!
Á morgun munu þær Olga Færseth og Pálína Bragadóttir skrifa undir tveggja ára samning við ÍBV, þetta eru frábærar fréttir og ekki amalegt að styrkja hópinn með aðalmarkaskorara í efstu deildinni seinustu ár. Við bjóðum þær innilega velkomnar til okkar og vonumst til að sjá þær sem allra fyrst í ÍBV-búningum. :o)

———-

Það er greinilegt að ÍBV stefnir bara á Íslandsmeistaratitil á nsæta ári!