Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hress
hress Notandi frá fornöld Karlmaður
5.602 stig

Héðan og þaðan (Ársþing KSÍ, leikmannakaup o.fl.) (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Indriði Sigurðsson hefur hafnað tilboði Lilleström í Noregi um nýjan samning. Hann ætlar heim til Íslands í nám ef ekkert spennandi tilboð kemur frá erlendu félagi. Indriði er aðeins 21 árs, hann lék 22 af 26 leikjum Lilleström í fyrra. Líklegt er að hann fari aftur til KR ef hann flytur heim. ____________________________ Þann 8.Febrúar næstkomandi fer 57. ársþing Knattspyrnusambandsins fram. Nokkrar athyglisverðar tillögur um breytingar hafa verið settar fram. KR og Fram koma með þá tillögu...

Mikil markvarða-samkeppni hjá ÍA (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Orðið er ljóst að Þórður Þórðarsson markvörður muni spila með ÍA á ný í sumar. Þórður spilaði með KA í fyrra og þar áður með Val, á báðum stöðum er Þórður ekki sá vinsælasti meðal stuðningsmanna. Hann á að baki 86 leiki í efstu deild með ÍA og er fæddur og uppalinn á Skaganum. Seint á seinasta ári skrifaði Stefán, yngri bróðir Þórðar, undir samning við ÍA. Kaupin á Þórði koma nokkuð á óvart í ljósi þess að ekki voru Skagamenn illa staddir í markmannsmálunum. Fyrir eru hjá félaginu þeir...

Héðan og þaðan (Fifa listinn, KA, Jói Kalli o.fl.) (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Maðurinn á myndinni hér til hægri heitir Steinar Tenden og er Norskur. Hann er fæddur 1978 og er hávaxinn framherji. Seinustu ár hefur hann spilað í norsku 3.deildinni með liði Stryn. Hann ku vera mikill markaskorari og hefur skorað 60 mörk fyrir liðið í 58 leikjum sem er ótrúlegur árangur. Þar af gerði hann 32 mörk á einu tímabili. Þessi maður er á leiðinni til landsins þar sem hann verður til reynslu hjá KA í 10 daga en eftir það verður framhaldið ákveðið. Akureyringarnir Júlíus Tryggvason...

Marel Jóhann seldur til Lokeren (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Marel Jóhann Baldvinsson var óvænt seldur frá Stabæk til belgíska liðsins Lokeren í morgun. Marel er 22.ára gamall og spilaði á sínum tíma með Breiðablik í Símadeildinni. Kaupverðið á Marel voru 24 milljónir íslenskra króna. Auk þess var samið um að Stabæk fær hluta af næstu sölu hans. Búið var að ákveða að Marel yrði lánaður frá Noregi til Belgíu en Lokeren ákvað að nýta sér strax eina grein lánssamningsins og kaupa Marel þar sem Stabæk gat selt hann til annars liðs á lánstímanum. Þar með...

Víkingur og ÍR að styrkja sig (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Reykjavíkurmótið í knattspyrnu hefst í kvöld með leik Léttis og KR í Egilshöll kl.19:00. Strax að þeim leik loknum, eða um 21, mætast í hinum riðlinum lið ÍR og Víkings en bæði lið hafa verið að styrkja sig uppá síðkastið með nýjum leikmönnum. ÍR-ingar sem féllu úr 1.deildinni seinasta sumar stefna að sjálfsögðu á það að vinna sér inn sæti í deildinni á ný í sumar. Ellefu leikmenn hafa skipt yfir í ÍR og verða löglegir með liðinu á Reykjavíkurmótinu sem hefst í kvöld. Engin stór nöfn eru þar...

Leiftur/Dalvík að missa marga menn (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Tveir af lykilmönnum 1.deildarliðs Leifturs/Dalvíkur gengu í gær til liðs við úrvalsdeildarlið KA sem verða að öllum líkindum feyknarsterkir í sumar. Mennirnir sem hér um ræðir eru þeir Örvar Eiríksson og Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson (á mynd). Örvar er þrítugur sóknarmaður og var fyrirliði Leifturs/Dalvíkur og annar markahæsti leikmaður liðsins. Hann er bæði leikja- og markahæsti leikmaður þeirra í deildakeppninni frá upphafi. Þorvaldur er 24 ára varnarmaður og lék með Leiftri fram að...

Íslenski boltinn: Áramótaannáll 2002 (11 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Alveg eins og í fyrra tók ég saman hápunktana í íslenskri knattspyrnu á árinu með hjálp bókarinnar Íslensk knattspyrna 2002. Vel getur verið að ég hafi gleymt einhverju og þá verður það bara að vera svo. Ég vil nota tækifærið og óska ykkur gleðilegs árs! (Ég er ekki að ætlast til þess að þið lesið þetta allt, heldur er hér aðeins stiklað á stóru á árinu.) ____________________ JANÚAR - Jón Skaftason, 18 ára KR-ingur, hafnaði tilboði frá Lyn. - Framherjinn Veigar Páll Gunnarsson gekk til liðs...

Guðni Bergs og Eiður Smári meðal tíu bestu (13 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Í gær voru opinberuð nöfn þeirra tíu íþróttamanna sem urðu efstir í kjöri á Íþróttamanni ársins 2002. Kjörið verður í beinni útsendingu á Stöð 2 frá Grand hóteli Reykjavík á fimmtudaginn. Verður það í 47. sinn sem Samtök íþróttafréttamanna standa að kjörinu síðan þau voru stofnuð 1956. Knattspyrnumennirnir Eiður Smári Guðjohnsen úr Chelsea og Guðni Bergsson úr Bolton eru báðir í hópi tíu efstu eins og í fyrra en þá hlaut sundgarpurinn Örn Arnarsson titilinn. Einnig kemur knattspyrnukonan...

Gleðileg jól! (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég vil misnota aðstöðu mína og óska ykkur öllum gleðilegra jóla og vona að þið farið varlega í jólasteikina í kvöld. Ég læt hér fylgja nokkra fréttamola úr íslenska fótboltanum í jólagjöf ;) ____________ Fjögurra liða æfingamótinu sem að fór fram í Egilshöll lauk á laugardaginn. Í leiknum um þriðja sætið mættust Grindavík og Fram og unnu Framarar 3-1 sigur og unnu þar með bronsið. Fylkir byrjaði mun betur í úrslitaleiknum gegn ÍA. Grétar Rafn Steinsson þurfti að fara af velli strax á...

Þórður og Stefán Þórðarssynir til ÍA (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Bræðurnir Þórður Þórðarsson og Þórðarsson munu spila með ÍA í Símadeildinni á næstu leiktíð. Nánast er búið að ganga frá þessu. Stefán er miðjumaður og er laus allra mála hjá Stoke City en hann hefur átt við erfið meiðsli að stríða að undanförnu. Þórður er markvörður og spilaði með KA í sumar en hefur tilkynnt það að hann leiki ekki með þeim á næstu leiktíð. Báðir hafa þeir spilað áður með ÍA þar sem þeir eru reyndar uppaldir. Þórður mun ekki ganga inn í lið ÍA því þeir eru með hinn stórgóða...

Héðan og þaðan (FH að styrkja sig o.fl) (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Vefsíðan Gras.is þykist hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því að landsliðsmaðurinn Auðun Helgason sé á heimleið heim frá Lokeren í Belgíu. Samningi Auðuns við Lokeren var sagt upp og hefur Auðun skv. heimildum í hyggju að stofna fyrirtæki hér á landi með umboð fyrir frönsk eðalvín. Talið er að Auðun muni skrifa undir hjá FH öðrum hvorum megin við áramót og er ljóst að Hafnarfjarðarliðið er hér að fá gríðarlegan styrk fyrir komandi átök en FH missti einmitt varnarmanninn Hilmar Björnsson til...

Teitur Þórðarson á lausu (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Teitur Þórðarsson sem náði að bjarga Brann frá falli í haust mun hætta störfum hjá félaginu um áramótin en þessa ákvörðun tók hann í gær. Þetta kemur ekki mikið á óvart en hann var ekki sáttur við ýmislegt hjá félaginu enda er liðið í miklum fjárhagskröggum. Teitur á þó væntanlega ekki eftir að vera atvinnulaus lengi því hann er mjög fær þjálfari. Teitur Þórðarson er nú sterklega orðaður við norska liðið Lyn og sænska liðið AIK. Teitur þjálfaði Lyn á árunum 1991 og 92. Helgi Sigursson og...

Lee Sharpe til Grindavíkur?! (10 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Víkurfréttir hafa óstaðfestar heimildir fyrir því Grindvíkingar eigi í viðræðum við Lee Sharpe um að leika með liðinu í Símadeildinni næsta sumar. Sharpe spilar þessa stundina með Exeter City í ensku 3. deildinni en spilaði áður m.a. með Manchester United. Viðræðurnar hafa staðið yfir í þó nokkurn tíma og er talið að Sharpe muni koma hingað til lands á allra næstu dögum til að skoða aðstæður. Sharpe er 31 árs og lék með enska landsliðinu í valdatíð Grahams Taylor. Hann hefur eins og áður...

Héðan og þaðan (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Guðmundur V. Mete hefur skrifað undir þriggja ára samning við sænska félagið Norrköping sem féll úr úrvalsdeildinni á dögunum. Norrköping er á meðal sigursælustu liða landsins og hefur tekið Svíþjóðartitilinn 12 sinnum. Stefnt er á að komast aftur í hóp þeirra bestu. Guðmundur hefur leikið með Malmö í þrjú ár en hann spilaði 14 leiki með liðinu í sænsku úrvalsdeildinni í sumar. _____________________ Lúkas Kostic hefur verið ráðinn þjálfari U17 landsliðs karla og tekur hann við af Magnúsi...

Gummi Ben og Tryggvi hættir hjá KR (7 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum sem fylgist með fótbolta að KR hefur sagt upp samningi sínum við Guðmund Benediktsson en hann átti að renna út eftir eitt ár. Samningar náðust ekki um að Gummi myndi taka á sig launalækkun og því fór sem fór. Gummi sem hefur verið á mála hjá KR síðan 1995 fór á föstudag í enn eina aðgerðina en hann hefur lengstum átt við þrálát hnémeiðsli að stríða. Málinu er ekki lokið hér með því Guðmundur leitar nú réttar síns og finnst illa að sér veigið....

Olga Færseth í ÍBV! (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Tekið af http://ibvkvenna.blogspot.com ——– Wednesday, November 27, 2002 Heimir Þjálfari!!! Nú hefur komið í ljós að Heimir Hallgríms hefur ákveðið að þjálfa okkur í ár, öllum til mikillar ánægju. Hann tilkynnti okkur stelpunum þetta á æfingu áðan. Hann sagði okkur hins vegar að það væri ekki enn komin stjórn, því hvetjum við alla sem hafa augastað á einhverjum í stjórn eða bara einfaldlega með tillögu, að koma því áleiðis til Heimis eða aðalstjórnar. Og um að gera að koma með...

Slúður af Leikmannamarkaðinum (7 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 4 mánuðum
TÓMAS INGI Í FH? Stöð 2 greindi frá því að FH ætti í viðræðum við Eyjamanninn Tómas Inga Tómasson um að hann leiki með félaginu í Símadeildinni næsta sumar. ÍBV sagði upp samningum við Tómas fyrir skömmu og stóðu viðræður yfir milli aðilanna í gærkvöld. HERMANN ALBERTSSON Í FH? Hermann Albertsson leikmaður Leifturs/Dalvík mun líklega leika með FH á næstu leiktíð. Hermann var til reynslu um helgina er FH-ingar léku æfingaleik við HK í fífunni. Hermann er aðeins 19 ára gamall. LÚÐVÍK...

Keflavík Íslandsmeistari innanhúss (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Nú fyrir stuttu lauk Íslandsmótinu í innanhússknattspyrnu. Mótið hefur undanfarin ár farið fram í Janúar en nú er knattspyrnan að verða heilsársíþrótt og miklar breytingar í gangi. Leikið var í íþróttahúsinu í Smáranum í Kópavogi og fór riðlakeppnin fram í gær. Þau lið sem féllu niður í 2.deild voru: Grindavík, Stjarnan, Sindri og Tindastóll. Í dag, sunnudag, fór síðan úrslitakeppnin fram. 8 liða úrslit: KR - Völsungur 4-1 Keflavík - ÍBV 5-1 Þróttur R. - Fylkir 3-0 Fram - Valur 2-4...

Grindvíkingar fá Óla Gott (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Grindvíkingum hefur borist gríðarlega góður liðsstyrkur fyrir næsta keppnistímabil. Ólafur Gottskálksson markvörður og atvinnumaður í knattspyrnu til margra ára hefur ákveðið að ganga til liðs við Grindvíkinga. Ólafur er margreyndur landsliðsmaður í knattspyrnu og atvinnumaður með liðum eins og Hibernian í Skotlandi og Brentford á Englandi. Áður en hann fór erlendis spilaði hann með Keflavík. Það er engin vafi á að Ólafur mun styrkja lið Grindvíkinga í baráttunni sem framundan er. Mörg lið...

Ísland án Arnars og Arnars (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Okkar ástkæra knattspyrnusamband hefur orðið við beiðni Lokeren um að félagarnir Arnar Grétarsson og Arnar Þór Viðarsson fái frí frá landsleiknum gegn Eistlandi miðvikudaginn 20. nóvember en Lokeren á mikilvægan leik gegn Anderlecht í belgísku deildinni föstudaginn 22.Nóv. Landsliðið verður þó ekki Arnars-laust því Arnar Gunnlaugsson er í hópnum. Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari, hefur valið Helga Kolviðsson og Atla Svein Þórarinsson í hópinn í stað lokeren-félagana. Landsliðið heldur utan...

Landsliðshópurinn gegn Eistum (14 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Atli Eðvaldsson hefur tilkynnt leikmannahópinn fyrir vináttualandsleikinn gegn Eistlandi í Tallin 20. nóvember. Atli hefur kallað á Þórð Guðjónsson, Tryggva Guðmunds, Pétur Marteins og Arnar Grétarsason aftir í hópinn eftir nokkra fjarveru. Þá vekur athygli að Arnar Gunnlaugsson hefur verið valinn í hópinn en hann hefur lítið sem ekkert fengið að spila með Dundee í skoska boltanum en sagði þó í síðustu viku að hann hefði akki verið í betra formi síðan hann var hjá Bolton. Einnig vekur...

Héðan og þaðan (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Bjarnólfur Lárusson mun leika áfram með ÍBV en hann gekk um helgina frá nýjum tveggja ára samningi við Eyjamenn. Að sögn forráðamanna ÍBV eru samningamál leikmanna vel á veg komin og allt útlit er fyrir að flestir leikmenn, sem léku með liðinu í sumar, verði með á næstu leiktíð en þó er vitað að Hlynur Stefánsson hefur lagt skóna á hilluna og líklega einnig Ingi Sigurðsson. Þá hefur ÍBV verið í viðræðum við KR-inginn Tryggva Bjarnason sem er efnilegur varnarjaxl. – Marel Baldvinsson,...

Kristinn Tómasson í Fram (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Sóknarmaðurinn Kristinn Tómasson úr Fylki hefur skrifað undir samning við Fram og bætist í leikmannahóp Safamýrarpilta. Kristinn er 30 ára gamall og lék aðeins 11 leiki fyrir Fylkisliðið í sumar og var að vonum óhress með fá tækifæri, þrátt fyrir góða frammistöðu. Kristinn er uppalinn hjá Fylki og er eftirminnilegt mark sem hann skoraði gegn FH í lokaumferðinni 1989 og tryggði Fylki sigur á FH. Fylkismenn voru fallni fyrir leikinn en FH sat í efsta sætinu. Þetta mark hans gerði vonir FH um...

Magnús Gylfason næsti þjálfari ÍBV (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 5 mánuðum
ÍBV gekk í gær frá munnlegu samkomulagi við Magnús Gylfason um að hann tæki að sér þjálfun ÍBV næstu 2 árin hið minnsta. Magnús lék á árum áður m.a. með KR, Stjörnunni og Víking Ólafsvík en af þjálfaraferli hefur pilturinn þjálfað U-17 ára landslið Íslands í nokkurn tíma með góðum árangri og einnig hefur hann verið aðstoðarmaður Ólafs Þórðarsonar með U-21 ára liðs Íslands. Auk þessa þjálfaði Magnús 2. flokk KR í 3 tímabili og urðu þeir Íslandsmeistarar tvisvar á þeim tíma. Það er mikill...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok