Marel Jóhann seldur til Lokeren Marel Jóhann Baldvinsson var óvænt seldur frá Stabæk til belgíska liðsins Lokeren í morgun. Marel er 22.ára gamall og spilaði á sínum tíma með Breiðablik í Símadeildinni. Kaupverðið á Marel voru 24 milljónir íslenskra króna. Auk þess var samið um að Stabæk fær hluta af næstu sölu hans. Búið var að ákveða að Marel yrði lánaður frá Noregi til Belgíu en Lokeren ákvað að nýta sér strax eina grein lánssamningsins og kaupa Marel þar sem Stabæk gat selt hann til annars liðs á lánstímanum.

Þar með hefur fjórði íslendingurinn hoppað um borð í Lokeren-skútuna því fyrir hjá félaginu eru Arnar Grétarsson, Arnar Þór Viðarsson og Rúnar Kristinsson. Stabæk skuldar ennþá Breiðabliki um 4-5 milljónir króna fyrir kaupin á Marel Jóhanni á sínum tíma og er líklegt að nú fái Breiðablik þennan pening borgaðan. Þess má einnig geta að Breiðablik fær hluta af söluverðinu sem Lokeren greiðir fyrir Marel Jóhann. Samkvæmt reglunum á sú upphæð að vera í kringum 10% af söluverðinu sem er nærri að vera um 2,4 milljónir króna. Marel sagði við Morgunblaðið að gengið yrði frá samningum út þetta tímabil og næstu þrjú til viðbótar. Forseti Lokeren vill að Marel verði tilbúinn um næstu helgi en þá mætir liðið Genk.