Ég var e-ð að flakka á milli stöðva í gær þegar Jay Leno var á Skjá Einum og akkúrat var Mel Gibson gestur þar og verið var að sýna úr nýjustu mynd hans, Edge Of Darkness. Og hvern sá ég annan en Frank Grillo, sá sem leikur Hart í Leiðarljósi? :) Ég googlaði svo myndina og komst að því að ásamt honum leikur líka Peter Hermann í henni, en hann lék Dr.Michael Burke í Leiðarljósi sem dó ekki fyrir löngu síðan í sprengingu! Mér fannst bara svo fyndið að þeir leika báðir í mynd með Mel Gibson að ég varð bara að setja þetta hérna ;)

Hér eru nokkur video úr myndinni til gamans:

http://www.youtube.com/watch?v=bsDMwsK1bBM - Frank Grillo og Mel Gibson saman í einu atriði hér :)

http://www.youtube.com/watch?v=JYjXGUB3JjE - Peter Hermann og Mel Gibson hér saman í atriði :)

Svo hér er trailerinn, þeir koma báðir pínu fram í honum :D
http://www.youtube.com/watch?v=BQNC5bAjT38