Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: SPURNING HÉRNA

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
GH er skammstöfun fyrir “Growth Hormone” eða vaxtarhormón. GH stjórnar vexti fólks. Skortur á því veldur einni gerð dvergvextar og offramleiðsla veldur acromegalíu eða risavexti. Oftast nær er skammstöfunin HGH notuð af fæðubótaefnasölum og stendur þá fyrir “Human Growth Hormón” eða vaxtarhormón manna. Nú til dags er nánast allt GH framleitt með líftæknilegum aðferðum (ræktað í bakteríum), ekki unnið úr heiladingli eins og áður var. Nánar: http://en.wikipedia.org/wiki/Growth_hormone

Re: Scott Mendelson

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
457kg reyndar. En hann keppir í ólyfjaprófuðu sambandi og reglur eru mun rýmri en hjá IPF hvað varðar stopp á bringu, útbúnað og fleira. Heimsmetið hjá IPF er um 350kg og þar eru strangari reglur.

Re: Scott Mendelson

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Venjulega veit maður ekkert um það hverjir eru að nota ólögleg efni og hverjir ekki nema þeir viðurkenni það eða séu nappaðir í lyfjaprófi. Það er miklu auðveldara fyrir létta menn að taka tvöfalda líkamsþyngd á bekk. Styrkur vex ekki línulega mep þyngd. Það er mýgrútur 75kg manna sem taka 150kg á bekk, en fáir 125kg menn sem taka 250.

Re: Spurning

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það er ekkert mál að geyma blandaðan próteindrykk í smá tíma. Hins vegar, eins og með alla næringarríka vökva, þá skemmast þeir fljótlega við lengri geymslu, einkum án kælingar. Ímyndaðu þér mjólkurfernu eftir 3 daga í íþróttatösku.

Re: Brennsla hlaup vs ganga ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Þetta er þvæla. Gúgglaðu “fat burning zone myth”.

Re: hversu massaður ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Þessi gaur, Skip La Cour, Lee Haney og Arnold voru í kringum 100 kílóin helskornir fyrir keppni og þó að Arnold hafi náttúrulega verið á sterum þá eru það sennilega efri mörk þess sem meðalhár maður (um 1.80) getur orðið án stera. En toppatvinnumennirnir í dag, Coleman, Cutler og Cormier og þessir kallar eru kringum 130 kíló skornir! Mikill munur.

Re: SPURNING HÉRNA

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
búinn að missa mjög mikið og ertu að meina að halda því áfram? Akkúrat.

Re: hversu massaður ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Alla vega svona massaður: http://www.schwarzenegger.it/mro/grimek.html http://www.classicbodybuilders.com/johngrimek.html John Grimek var upp á sitt besta áður en sterar komu til sögunnar.

Re: SPURNING HÉRNA

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Sagðistu ekki vera 14? Ég var alltaf pínulítill. Stækkaði um 20cm á 17. ári og náði meðalhæð þó ég verði aldrei eftirsóttur í körfuna.

Re: SPURNING HÉRNA

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég er eiginlega sammála. Offita er vissulega hræðilegt og vaxandi vandamál, en margir hafa óeðlilegar og óraunhæfar væntingar vegna áreitis frá fjölmiðlum. Meira að segja vaxtarræktarmenn og fitness-keppendur eru sjaldnast með sixpakk nema rétt yfir keppnistímabilið.

Re: SPURNING HÉRNA

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Flestir strákar hætta að stækka milli 18 og 20. Einstaka eitthvað seinna. Algengast er að menn taki mikinn kipp í svona 2 ár, einhvern tímann frá 13-19 ára. Og getur maður þess vegna stækkað allt í einu kringum tvítugt ?Ég hygg að það sé sjaldgæft.

Re: SPURNING HÉRNA

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Fitufellingin fer þegar þú stækkar og þroskast. Þú ert 14 ára, ekki satt? Þetta er hvolpafita sem fer ef þú heldur áfram að stunda heilbrigða hreyfingu. Að sjálfsögðu er gott fyrir þig (eins og alla) að takmarka hvað þú lætur ofan í þig af næringarsnauðu sykur og feitijukki, gosi, sælgæti, kexi, snakki o.þh. Burtséð frá aukakílóunum. Nei, það er alveg óhætt fyrir þig að lyfta ef þú vilt. Það er þjóðsaga að það sé eitthvað óhollt fyrir krakka. En auðvitað er hægt að skaða sig með röngum...

Re: SPURNING HÉRNA

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég er með svolitla “bumbu” sem að mig langar til að losna við, er búinn að missa þónokkuð allstaðar og er bara eina ráðið að hlaupa bara áfram? Ja, grennast allavega. Til þess eru mörg önnur ráð en að hlaupa. Hlaup eru ekki sérlega góð aðferð til að grennast. Lyftingar og aðrar styrktaræfingar koma í veg fyrir vöðvamissi þegar maður er að grennast. Ég er ennþá frekar smár og er 14 ára ef það skiptir einhverju.. Hugsaðu þá meira um styrk, þol og þrek en einhverja smáfitufellingu sem engu máli...

Re: Brennsla hlaup vs ganga ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Hallinn breytir talsvert miklu. Mun meira en hraðinn. Það er nú basic eðlisfræði og ekkert skiptar skoðanir um það.

Re: Benedikt Magnússon

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Þetta er líklega hnébeygjuvélinn (mjög grunn hnébeygja) úr keppninni um sterkasta mann Íslands 2004, en Benni tók 502kg í þeirri grein og varð fjórði á eftir Auðunni, Boris og Magnúsi Ver. Hann varð svo 2. í heildarkeppninni á eftir Verinu.

Re: Varðandi prótein...

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Nei, þau eru alveg jafn próteinrík. Hins vegar má svosem vera að “biological availability” lækki eitthvað örlítið, en þar sem eggjaprótein hefur hæsta BA allra matvara fyrir þá er það varla til mikils skaða. Þegar eggjaofnæmi og (fjarlægur) möguleiki á Salmonellu eða Campylobacter sýkingu er tekinn inní er ekki spurning að það er best að elda egg áður en þau eru étin.

Re: SPURNING HÉRNA

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
og sama hvað eg geri margar magaæfingar þá sjást þeir ekki fyrr en þetta er farið 1) Magaæfingar hafa engin áhrif á magafituna og … 2) til að stækka og styrkja magavöðvana þurfa þeir sömu meðferð og aðrir vöðvar, meiri þyngd og færri reps, ekki endalausan fjölda. 3) Við magafitunni er ekkert að gera nema annað hvort að missa meiri fitu almennt (éta minna en þú brennir) eða fitusog. Fitan fer síðast þar sem hún kom fyrst (oftast á maganum). 4) Að lokum, í guðanna bænum vertu ekki að hafa...

Re: Varðandi prótein...

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það er ekkert að því að steikja hann. Eðlissvipting verður jú við hátt hitastig en hefur engin neikvæð áhrif á næringargildi próteina.

Re: Brennsla hlaup vs ganga ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Nú ert þú að rugla saman. hvort þú ert að rölta fimm kílómetra eða labba rösklega fimm kílómetra eða hvort þú sért að skokka hægt fimm kílómetra eða skokka rösklega Fimm kílómetrar brenna ca jafn miklu, hver sem hraðinn er, ganga, skokk eða hlaup. Þó bætist við örlítill viðgerðakostnaður eftir því sem hraðinn er meiri og örlítill kostnaður vegna þess að líkaminn fer meira upp og niður á hlaupum. Fitubrennsla virðist vera enn meiri við mikinn hraða (yfir eróbiskum mörkum), en ekki er vitað...

Re: Sólarvörn

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Nei, alls ekki. Í gulrótum er mikið af appelsínugulu litarefni sem heitir beta-karótín. Þessu litarefni getur líkaminn breytt í A vítamín ef hann þarf á því að halda. Ef þú étur (mjög) mikið af gulrótum dreifist ónotaða beta-karótínið um allan líkamann, m.a. húðina og hún dekkist (gulnar). Hér áður fyrr voru á markaði töflur sem hétu Orobronze sem fólk át til að verða brúnt án sólar. Þær töpuðu vinsældum af því að liturinn var ansi skringilegur og ólíkur alvöru sólbrúnku og auk þess vegna...

Re: Grunnlyftingaáætlun

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég ætla svo sem ekki að rífast um hver notaði stera og hver ekki, þeir neita því flestallir. Ég nefndi bara þessa þrjá því það er óumdeilt að menn höfðu ekki aðgang að sterum á þeim tíma sem þeir voru upp á sitt besta. Auk þess hef ég engan áhuga á vaxtarrækt sem slíkri, lít bara á það sem aukaverkun þjálfunar. Eflaust geta einhverjir náð árangri með því að æfa hvern líkamshluta 1 sinni í viku. Ég er samt klár á því að þorri fólks getur það ekki og að slíkar æfingaáætlanir eru aðalástæðan...

Re: er þetta hollt?

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Svona um 225kg án slopps.

Re: Grunnlyftingaáætlun

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Æji, mér finnst alltaf jafn leiðinlegt að lesa e-ð svona þar sem menn tala um það að það sé ekki hægt að ná góðum árangri í lyftingum nema með sterum. Það er alveg hægt. Sjáðu Reeves, Sandow, Grimek og þessa kalla áður en búið var að finna upp sterana. Hvernig æfðu þeir? Þrisvar í viku allan líkamann. Hver og einn einasti! Að taka einn vöðvahóp einu sinni í viku er aftur á mót mjög gott Engan veginn nóg fyrir flesta. Mig langar líka að spyrja þig hvort þú hafi prófað að taka svona...

Re: Ykkar reynsla af HGH sterum

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Nei, ég held satt að segja ekki. Ég var heppinn að detta snemma ofan í kraftlyftingar sem grunn en ekki vaxtarrækt.

Re: nauh..

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það er rangt að konur geti ekki stækkað vöðva án stera. Þær geta það vissulega. Ekki eins mikið og karlar og sjálfsagt ekki eins mikið og konan á myndinni, en talsvert samt.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok