Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: Hvar er hægt að æfa kraftlyftingar

í Heilsa fyrir 15 árum, 11 mánuðum
Ég var fyrst og fremst að árétta að þetta er sitt hvor íþróttagreinin, mismunandi fólk sem æfir, ekki samtímis, ekki á sama stað og á mismunandi hátt. Já, hnébeygjan er miklvægur hluti af æfingum Ólympískra lyftingamanna rétt eins og hún er, eða ætti að vera, mikilvægur hluti af æfingum frjálsíþróttamanna, hand-, fót- og körfuboltamanna, skíðamanna, sundmanna, húsmæðra, húsasmiða osfrv. Einstaka Ólympískir lyftingamenn taka bekkpressu og/eða réttstöðulyftu sem hluta af sínu prógrammi, en...

Re: Hvar er hægt að æfa kraftlyftingar

í Heilsa fyrir 15 árum, 11 mánuðum
Ólympískar lyftingar og kraftlyftingar eru gerólíkar og aðskildar greinar og ekki æfðar saman. Æfingar í Ólympískum lyftingum fara fram hjá Lyftingadeild Ármanns. Kraftlyftingar eru m.a. æfðar hjá Ármanni (engin aðstaða ennþá), Breiðabliki og fleirum. Breiðablik er líklega með skástu aðstöðuna á stór-Reykjavíkursvæðinu. http://kraft.is/um_kraft/felog.asp

Re: Kreatín

í Heilsa fyrir 16 árum, 4 mánuðum
http://en.wikipedia.org/wiki/Creatine_supplements Tekur 1 (~5g) teskeið á dag. Skiptir engu máli hvenær. Skiptir engu máli hvernig. S kiptir engu hvort það er kreatín mónóhýdrat (þetta venjulega) eða creatín etyl ester (þetta dýra). Byrjar að virka eftir sirka 2 vikur. Drekktu meira en venjulega. Eykur skammtímaþol lítillega (td 4 reps í stað 3, 10 í stað 8) og styrk eitthvað í framhaldi af því, samt lítið. Þyngir þig líklega um nokkur hundruð grömm, kannski kíló, því kreatín bindur vatn í líkamanum.

Re: Kolvetni ?!

í Heilsa fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Hehe, 3 ár síðan ég skrifaði þetta. Jæja, sjáum til. Í fyrsta lagi er það alls ekki svo einfalt að einföld kolvetni eða kolvetni yfirleitt séu “óholl”. Við ættum vissulega að stilla í hóf neyslu á innantómum kolvetnum sem innihalda litla sem enga næringu. Þar á meðal er sykur og sælgæti, hvítt hveiti og pasta oþh. “Stilla í hóf” sagði ég, ekki forðast alfarið þó það sé góð hugmynd fyrir þá sem eru að reyna að grennast. Það er afar auðvelt að gúffa í sig mjög mörgum innantómum hitaeiningum ef...

Re: vöðvar

í Heilsa fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Já það er í fínu lagi. 48 tíma hvíld er feykinóg undir eðlilegum kringumstæðum.

Re: bill kazmaier

í Heilsa fyrir 17 árum
Kazmaier beygði aldrei 420. Hann átti best 400. Reyndar án stálbrókar.

Re: stelpur og lyftingar :O

í Heilsa fyrir 17 árum
2x80kg í hnébeygju 80kg í réttstöðulyftu 50kg í bekk Þetta eru mjög fínar tölur hjá þér og ég hvet þig eindregið til að keppa ef þig langar. En ef þú ert að taka meira í beygju en í réttstöðu þá ertu að beygja of grunnt, það er 100% öruggt ;-)

Re: Vantar singlet og fl.

í Heilsa fyrir 17 árum
Það tók ekki svo langan tíma, kannski 2 vikur. Ja sko, götuskór eða spariskór geta alveg verið nothæfir í hnébeygjuna og eru alveg löglegir. Þeir henta yfirleitt ekki í réttstöðu. Þar þarf alveg flata.

Re: Vantar singlet og fl.

í Heilsa fyrir 17 árum
Medico í Kópavogi selur ýmsar kraftlyftingavörur en ég veit ekki hvað er til hjá þeim í augnablikinu. Þeir eiga amk kraftlyftingabelti, hnévafninga og úlnliðsvafninga og stundum bekkpressusloppa og stálbrækur. Veit ekki með singlet. Vaxtarvörur selja líka alls konar lyftingavörur. Singlet tókst mér ekki að finna hér á landi, en keypti að lokum frá http://sports-shoes.net/. Ég veit ekki til þess að hægt sé að kaupa góða hnébeygju eða lyftingaskó hér á landi, tala nú ekki um í þessari...

Re: ræktar plan ..

í Heilsa fyrir 17 árum
Það má vel vera að þú “getir” það. Að það skili meiri árangri en að lyfta 2-3svar er fráleitt. Það þarf ekkiað æfa vöðvana í drasl eins og vaxtarræktarmenn gera til að styrkjast.

Re: ræktar plan ..

í Heilsa fyrir 17 árum
5 daga í lyftingum með fótbolta og handbolta? Hvaða rugl er nú það? 2-3 dagar í viku er fínt með öðrum íþróttum. Skoðaðu frekar Rippetoe prógramm eða svipuð. Einfalt: Æfing A 3x5 Hnébeygja 3x5 Bekkpressa 1x5 Réttstöðulyfta Æfing B 3x5 Hnébeygja 3x5 Hermannapressa 5x3 Power clean Æfingar A og B til skiptis 3 daga í viku með amk dag á milli æfinga. Punktur og basta. Vaxtarræktar líkamshlutakjaftæðið hentar ekki fyrir íþróttamenn.

Re: Reps

í Heilsa fyrir 17 árum
6-12 reps eru ágætt ef þú ert orðinn sæmilega sterkur (líkamsþyngd í bekk, 1 og hálf í hnébeygju, tvöföld í deddi). Ef þú ert aumari en það, 3-5 reps og mörg sett, 4-8.

Re: Er það bara ég eða er þessi vefur orðinn að algjöru rugli

í Heilsa fyrir 17 árum, 1 mánuði
Er það bara ég eða er þessi vefur orðinn að algjöru rugli? Já.

Re: Smá hjálp

í Heilsa fyrir 17 árum, 1 mánuði
FWIW þá er ég sammála. Ég tek 125 á bekk og finnst ekki tímabært að fá mér slopp ennþá.

Re: Smá hjálp

í Heilsa fyrir 17 árum, 1 mánuði
Það er mjög, mjög misjafnt. Sumir ekkert eða næstum ekkert, sumir þeir sterkustu græða jafnvel 50-70 kíló. Það er ekki nóg að kaupa slopp. Hann þarf að passa rétt og það þarf að læra á hann. Bæði að setja hann rétt á sig og læra að lyfta í honum. Það er samt mjög algengt að byrjendur græði kringum 20%.

Re: samfella (singlet) eða stálbrók

í Heilsa fyrir 17 árum, 1 mánuði
Þó þú sért í “slopp” þarftu líka að vera í singlet. Sloppurinn er svipaður og T-shirt og í bekkpressu og hnébeygju er skylda að vera í hvoru tveggja.

Re: herða hnúana

í Heilsa fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Brine er sterkt saltvatn. Annars er þetta “herða hnúana” dæmi bara bölvuð vitleysa. Hvað ætlarðu að fara að gerast? Berjast berhentur í Kolaportinu?

Re: Hvað er stöngin þung?

í Heilsa fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Rétt stillt Smith vél á að vera 0kg. Ef hún fer upp eða niður er hún rangt stillt. En so what? Algerlega gagnslaust tæki hvort eð er.

Re: Fituprósenta

í Heilsa fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Þú hlýtur að eiga við eitthvað “dútl” þegar þú talar um að lyfta lóðum. Lyftingar auka brennsluna í 34-48 klst á eftir.

Re: Fituprósenta

í Heilsa fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Lyftingar brenna miklu meira en “brennsla”.

Re: Hvað helduru að sé það óhollasta sem þú hefur látið ofan í þig?

í Heilsa fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Jeps. Munar ekki minnstu um það.

Re: Hvað helduru að sé það óhollasta sem þú hefur látið ofan í þig?

í Heilsa fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Án nokkurs vafa þessar sirka 365*20*20-30 (~150-200 þús) sígarettur sem ég reykti áður en ég hætti. Gott að vera laus við þann helvítis viðbjóð.

Re: stórir kálfar-- hjálp?

í Heilsa fyrir 17 árum, 8 mánuðum
….frekari ráð til að grenna kálfana…þeir eru mitt vandamála svæði. :) veit að spot-burn virkar ekki, en það hljóta að vera einhverjar góðar æfingar til? Eh? Nú ertu alveg í bullandi mótsögn við sjálfa þig. Til að hafa þetta einfalt þá er ekki hægt að grennast sérvirkt á ákveðnum stöðum. Þú getur bætt við vöðvum á ákveðnum stöðum (og misst þá) en ekki fitu. Hvar fitan er á skrokknum er að mestu meðfætt og stýrist af hormónum og innri starfsemi. Ef þú fitnar helst á kálfunum þá fer sú fita...

Re: Ein pæling...

í Heilsa fyrir 17 árum, 10 mánuðum
1gr fita = 9 kaloriur 1kg fita = 7500 kaloriur Stemmir ekki alveg…. Nei, en…. 1gr fita = 9 kaloríur 1kg fituvefur = sirka 7500 kaloriur Fituvefur er ekki hrein fita. Eitthvað er vatn og fleira.

Re: Kreatín

í Heilsa fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Það er búið að spyrja þessarar spurningar og svara henni 18,439,435 sinnum hér og því er búið að banna hana framvegis.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok