Prótein er vinsælt í fitubrennslu. Kannski ekki allar týpur af próteini. Ummm, sko ah ummm …. Hvað á ég að segja? Hvað er vinsælt og ekki vinsælt kemur ekki málinu við. Prótein hefur ekkert með fitubrennslu að gera. Jú, prótein er saðsamt og próteinríkt mataræði hjálpar til við að grennast með því að minnka heildarhitaeiningainntöku. En við vorum að tala um próteindrykki strax eftir æfingu, er það ekki? Gagnsemi þeirra liggur í því í vöðvauppbyggingu og vöðvaviðhaldi, ekki fitubrennslu. Fjúff.