Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: Undirbúningur fyrir Kraftlyftingarmót

í Heilsa fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ja, það er nú umdeilanlegt hvort það er hægt að kalla þetta bekkpressu eins og útbúnaðurinn og frjálslegur lyftingastíllinn er orðinn, en já, það eru nokkrir, Gene Rychlak og Scott Mendelson amk sem hafa tekið 1000 pund (~454kg) í bekkpressu (í fjórföldum bekkpressuslopp). Scott Mendelson hefur tekið 715 pund (324kg) á kjötinu, þeas án slopps, þannig að bekkpressubolurinn virðist gefa honum ca 120kg. Heimsmetið í IPF, heimskraftlyftingasambandinu, er 351kg, en í IPF (og kraft.is) eru aðeins...

Re: Upphífistöng

í Heilsa fyrir 19 árum, 1 mánuði
Þessir selja nokkrar gerðir: http://www.easychin.com/ceilingmount.lasso Þeir eru með svo mörg lén að það er erfitt að finna nokkurn annan söluaðila, en þú getur reynt að gúggla eftir: "chin up bar" AND ceiling

Re: Protein

í Heilsa fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég held að þú hafir misskilið þetta aðeins. Segjum að maður sé 100kg (góð slétt tala). Þá þarf hann sirka 200g af próteini sem eru 800 hitaeiningar. Segjum að þessi maður sé í uppbyggingarfasa. Þá er hann að borða t.d. 5000 hitaeiningar á dag. Próteinið er þá 16% af neyslu dagsins og afar lítið mál að fá nóg af því. Gefum okkur á hinn bóginn að sami maður sé að reyna að skera sig niður. Þá er hann að borða 2500 hitaeiningar á dag og próteinið um 32% (800/2500). Fáar fæðutegundir eru 32%...

Re: Protein

í Heilsa fyrir 19 árum, 1 mánuði
Já, það gæti alveg verið vit í því þegar maður er að skera sig niður, mun meira en þegar byggt er upp. Próteinduft er óþarft þegar maður er að byggja upp því það er svo auðvelt að fá nóg prótein þegar maður borðar mikið. Þegar maður borðar lítið hins vegar, getur verið erfitt að fá nægilegt prótein úr venjulegu fæði. Auk þess dregur prótein meir úr matarlyst en hin fæðuefnin, kolvetni og fita. Rannsóknir hafa sýnt að það er ástæða þess að Atkins kúrinn virkar, ekki af því að fituríkt fæði...

Re: Magavöðvar?

í Heilsa fyrir 19 árum, 1 mánuði
25-50 reps er alltof mikið (þeas of létt). Finndu leið til að þyngja.

Re: Insulin

í Heilsa fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég veit ekki og hef hvorki kynnt mér hvernig insúlín er misnotað í vaxtarrækt né hversu útbreidd slík misnotkun er. En hættulegt er það.

Re: Insulin

í Heilsa fyrir 19 árum, 1 mánuði
Rétt kannski að minna á það að inntaka insúlíns er miklu, miklu hættulegri en flestra annarra svona efna, m.a. stera og enginn vandi að drepa sig á því ef eitthvað bregður út af.

Re: bræddur ostur

í Heilsa fyrir 19 árum, 1 mánuði
Það er misskilningur. Vissulega voru fréttir af þessu á Rúv og í blöðum nýlega en það var af því að einhverjir vitleysingar voru að grafa upp eldgömul tíðindi. Þessar rússnesku rannsóknir voru í fyrsta lagi eldgamlar og auk þess alrangar.

Re: bræddur ostur

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Hið fyrra skiptir engu máli, við notum ekki ensím úr fæðunni (sem betur fer, það væri stórhættulegt). Öll utanaðkomandi ensím í fæðu eru vandlega brotin niður af magasýrum og meltingarensímum og fara aldrei heil út úr meltingarveginum. Hið síðara er bull og gerðist aldrei. Eintómur uppspuni. Sagan er frá áttunda áratugnum en er svo síendurtekin af nýaldarliðinu.

Re: bræddur ostur

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Öll hitameðferð hefur óæskileg áhrif á næringarinnihald. Nú? Hvar heyrðirðu það? Hjá einhverjum hráfæðisdúllum? Sum vítamín og fitur geta skemmst við mikinn hita. Vítamínin og fiturnar sem eru í osti eru ekki meðal þeirra.

Re: bræddur ostur

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Furðulegar spurningar hérna. Að sjálfsögðu er ostur jafn hollur (eða óhollur) bræddur eða óbræddur. Hvað annað? Ostur inniheldur mikið af næringarefnum, en jafnframt innihalda flestar gerðar talsverða fitu sem getur verið óæskilegt fyrir þá sem eru að reyna að léttast.

Re: Helvítis mataræði

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Þyngd miðað við hæð er í rauninni ekki góður mælikvarði á heilbrigða samsetningu líkamans. Ég er alltof þungur miðað við hæð en er í góðum málum vegna þess að aukaþyngdin er í formi vöðva. Þú ert alltof léttur vegna þess að þú hefur litla sem enga vöðva, en slagar upp í eðlilega þyngd vegna aukafitu. Ekki gott. Vissulega gætirðu grennst með því að drekka vatn í stað kóks og með því að éta gulrætur eða eitthvað í stað skyndibita. En þú mundir missa vöðvamassa í leiðinni og enda grindhoraður...

Re: Vaxtarhormón?

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Þú átt eftir að vaxa í 4-6 ár í viðbót. Þú verður alveg nógu stór.

Re: Undirbúningur fyrir Kraftlyftingarmót

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Mér finnst þetta furðulegt sjónarmið. Ekki ætlast fólk til þess að hver einasti keppandi í Reykjavíkurmaraþoni hlaupi maraþon á 3:10 eða hvað? Af hverju ættu menn sem æfa kraftlyftingar ekki að keppa öðru hverju, alveg sama hvaða sæti þeir lenda í?

Re: lágmarksaldur fyrir stera

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Vefaukandi sterar eru ólöglegir nema gegn læknisráði og þá við ákveðnum sjúkdómum, alveg sama á hvaða aldri þú ert. Reyndu að æfa og éta almennilega áður en þú ferð að ánetjast einhverju sterarugli. 2 ár? Þú ert nýbyrjaður, drengur.

Re: Creatin

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Það er hættulaust, virkar vel fyrir flesta og engar aukaverkanir af gagni hafa fundist í rannsóknum. Einstaka maður eins og Mode1 telja sig finna fyrir aukaverkunum en þá er auðvelt að hætta notkun þess. Ég er hins vegar algerlega áhugalaus um fæðubótarefni og set þau mjög neðarlega á forgangslista þeirra sem hafa áhuga á bættri heilsu, útliti, styrk og atgerfi. Ég nota engin nema fjölvítamín og lýsisperlur.

Re: Sigrar ellina

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Nei, það er enginn vandi. Ef maðurinn er í meðalhæð (180cm) þá samsvarar þessi breyting á BMI því að hann grennist úr 82.5kg í 73.5kg eða missi 9kg. Það eru rétt rúmlega 2 kíló á ári sem er hægðarleikur. Hann hefur þó væntanlega bætt á sig einhverjum vöðvum á móti því fáir sextugir eru svona stæltir.

Re: Lýsi+múltímínus

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Það er ekkert meira af járni í spínati en öðru grænmeti. Þetta er gömul goðsögn sem stafar af prentvillu (komma á vitlausum staf) í gamalli mælingu á næringarinnihaldi sem hélst áratugum saman í bókum. Þetta leiddi af sér alls konar vitleysu til að hvetja til meiri spínatneyslu, m.a. teiknimyndapersónuna Stjána bláa (Popeye) og að allar kokkabækur fyrir grænmetisætur eru fullar af spínatuppskriftum þó að þessu lífseiga villa hafi löngu verið leiðrétt. Annars er spínat allhollt, en ekki útaf...

Re: Réttstaða og hnébeygja

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Já, það er prýðisskema líka. Bætt við 5. janúar 2007 - 15:56 Einn galli við að taka beygjur bara einu sinni í viku er að harðsperrurnar á miðvd. vilja vera hroðalegar eftir að beygja þungt á mánudegi. Mér finnst því gott að taka nokkur létt beygjusett sem upphitun fyrir réttstöðulyftuna á föstudögum eða á undan bekk á miðvikudögum. Það virðist draga úr harðsperrunum.

Re: Réttstaða og hnébeygja

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Satt að segja má setja þessar fínu æfingar inn á mörgum stöðum. Hér eru nokkrar aðferðir: 1 - Hnébeygja fyrst og réttstöðulyfta svo á hverri æfingu. Beygjan er þá upphitun fyrir deddið. Ekki mörg sett né mörg reps af deddi. (Þetta gerði ég lengi vel 3svar í viku og fór mjög hratt fram, 3 sett af hvoru.) 2 - Beygja fyrst, dedda svo einn daginn, dedda fyrst og beygja á eftir hinn. Fyrri æfingin er þá upphitun, léttara og fleiri reps. Seinni þyngri og fá reps. (Þetta gerði ég í 2 ár eftir að ég...

Re: Undirbúningur fyrir Kraftlyftingarmót

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Það er rosalega misjafnt. Sumir fá ekkert út úr bolnum, lyfta jafnvel minna en á kjötinu, en það er sjaldgæft. Einstaka vanir menn virðast vera að fá allt að 50kg (~25%) út úr þeim bolum sem hér eru leyfður (í Kraft.is og IPF). Það eru þá menn sem taka yfir 200kg slopplaust. Annars virðist algengast að bolurinn bæti við 10-20kg. Svo eru náttúrulega Amerísku (WPO,WPC,APF osfrv) bolirnir sér kapítuli út af fyrir sig en þeir eru margfalt þykkari og stífari en IPF bolir og úr mörgum lögum. Þeir...

Re: Undirbúningur fyrir Kraftlyftingarmót

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Gangi þér vel, nafni.

Re: Undirbúningur fyrir Kraftlyftingarmót

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Lágmarkið í 75kg flokki er 450kg samanlagt. Þú getur séð öll lágmörkin hér: http://kraft.is/um_kraft/lagmork.asp

Re: Fæðubóta efni

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Nei, fæðubótarefni eru ekkert “möst”. Ég er búinn að lyfta í rúm 3 ár og hef bætt á mig meira en 15 kílóum af vöðvum og misst 5-10 kíló af fitu án nokkurra fæðubótarefna (nema einstaka fjölvítamín og lýsistöflur). Þó þau geti hjálpað undir vissum kringumstæðum er best að venja sig fyrst á holla fæðuhætti og æfingar.

Re: ÉG þarf hjálp

í Heilsa fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Auk þess má benda á að engum hefur tekist að verða Ronnie Coleman massaður nema hann sjálfur (og kannski Jay Cutler). Og það þótt þessir kallar éti lyf fyrir milljón á mánuði. Nei, það gerist ekki svona óvart.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok