Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: Creatine

í Heilsa fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Ekki beinlínis neitt um þetta nei, en töflur eru óþarflega dýrt form af kreatíni. Duftið gerir alveg sama gagn og er ódýrara (per skammt). En eins og ég segi, notaðu kreatín seinna þegar þú ert búinn að byggja upp góðan grunn af styrk og massa og finnst þú vera staðnaður. Þá getur það gert mikið gagn. Eins í aðdraganda keppna.

Re: Könnunin

í Heilsa fyrir 19 árum, 4 mánuðum
179cm og 90kg.

Re: Könnunin

í Heilsa fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Það var ekki tekið fram í könnuninni að “vera sterkari en maður lítur út fyrir” þýddi að líta út eins og aumingi. Hvað með að líta út eins og Arnar Grant en geta lyft eins og Benni Magg. Fyrir mitt leyti vil ég gjarnan verða miklu sterkari en vil helst ekki stækka mikið meira. Þetta er þegar farið að verða til óþæginda.

Re: Creatine

í Heilsa fyrir 19 árum, 4 mánuðum
ein lítil skyr dolla inniheldur líka u.þ.b. 20 gr af prótín, Já, eða 1 300mL dolla af skyr.is drykk. Eða 1 pulsa með öllu svosem. Það er af mörgu að taka. KEA skyr er best Ertu Akureyringur. KEA skyr er svosem ágætt. skyr.is er rusl. Hvaða vitleysa. Óþarfi að vera með fordóma.

Re: Creatine

í Heilsa fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Slepptu kreatíni í bili, þú hefur ekkert við það að gera. Prótein getur hjálpað ef mataræðið hjá þér er lélegt og byggist mikið á brauði og kolvetnaríku drasli. En aðalatriðið er samt að losa sig við matvendni og borða mikið og reglulega. Kjöt, fisk, egg eða mjólkurvörur með hverri máltíð. Hnetur eru góðar líka. Reyndu að ná 5-6 máltíðum á dag og alltaf a.m.k. 20g af próteini í hverri. Gróft reiknað þarftu ca 2g á kíló líkamsþyngdar (að frádreginni fitu), svo ef þú ert 70kg og meðalfeitur...

Re: Reykingar

í Heilsa fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Byrjaðu þá að lyfta og nýttu aukamatinn almennilega.

Re: Reykingar

í Heilsa fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Ég reykti í 20 ár og hætti fyrir 6 árum. Það er engin töfraformúla. Ekki svindla þegar þú færð þér í glas og svoleiðis. Það er aðalatriðið. Mér reyndist vel að ég byrjaði að spila á gítar um svipað leyti. Ágætt að fara inn í herbergi og æfa sig í 5 mín í staðinn fyrir sígarettu. Gott að hafa eitthvað hobbý til að grípa í.

Re: Sundfólk, smá spurning

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Sem áhugamaður um lyftingar mundi ég nú ekki kalla neinn sundmann “vangefið massaðan að ofan”, en jú, þeir hafa áberandi meira af vöðvum ofantil. Það er vegna þess að mest álagið í sundi er á efri líkamann sem er að drífa áfram allan líkamsþungann og þarf að stækka til að mæta þeim kröfum.

Re: Sundfólk, smá spurning

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Eins og í öðrum sundaðferðum notar maður mest bakbreiðavöðva (á hliðum frá handarkrika að mitti, latissimus dorsi eða “lats”) og ýmsa axlavöðva við bringusund. Í bringusundi notar maður fæturna meira en í öðrum sundaðferðum. Þó kemur mun minna en helmingur framskriðsins frá þeim. Ég mæli líka með því að læra og nota skriðsund. Til lengri tíma litið fer það betur með líkamann en bringusund. Það veit ég af slæmri reynslu og sundþjálfarar eru sammála.

Re: Fæðubótaefni

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Að byrja á því að velta fyrir sér fæðubótarefnum þegar maður er 14 ára byrjandi í lyftingum er: eins og að byrja á því að raka á sér líkamann þegar maður ætlar að fara að synda og kemst ekki yfir 25m laug án þess að drukkna. Aðalatriðin fyrst, smáatriðin seinna.

Re: betagen

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Nei. Kreatín virkar eitthvað á flesta og einhverjar ábendingar eru um það að glútamín hjálpi til við að jafna sig eftir æfingar, þó sennilega frekar ef menn éta lélegt fæði og svona. HMB veit ég ekkert um en virðist etv gagnast einhverjum: http://en.wikipedia.org/wiki/HMB Annars fylgist ég ekkert með þessu fæðubótarefnadóti og tek engin nema fjölvítamín og lýsisperlur.

Re: Jón Páll Sigmarsson

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Nei. Jón Páll tók aldrei 300 á bekk. Eini Íslendingurinn sem það hefur gert heitir Auðunn Jónsson, á Íslandsmóti í kraftlyftingum 2005. Hins vegar tel ég líklegt að Jón Páll hefði náð því ef hann hefði lifað og haldið áfram í kraftlyftingum. Hann tók mest 235kg slopplaust á ferlinum, 24 ára, en kraftlyftingamenn toppa oft ekki fyrr en 35 ára eða svo.

Re: Jón Páll Sigmarsson

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hann tók mest 235kg í keppni að því er best ég veit, á sjónvarpsmóti í desember 1984. Hafðu í huga að bekkpressusloppar voru ekki komnir til sögunnar þá, en þeir virðast gefa þeim bestu 30-50kg. Auk þess hætti hann að keppa í kraftlyftingum um þetta leyti og sneri sér alfarið að aflraunum, en honum fór verulega fram í styrk eftir þetta, þannig að gera má ráð fyrir að hann hefði getað meira ef hann hefði keppt aftur t.d. í kringum 1990. Hann dó árið 1993.

Re: betagen

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Þetta er blanda af kreatíni, glútamíni og HMB (sem ég veit ekkert um).

Re: hallóóó

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Það er ansi lítið. Þú mættir við smávöðvamassa í viðbót.

Re: kreatín hleðsla

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Kreatínhleðsla skiptir engu máli fyrir áhrifin.

Re: Creatin

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég er svosem sammála þér með fæðubótarefnin, þau eru óþörf, en….. ..að nauðga líkamanum í lyftingarsölum… Hvað í ósköpunum fær þig til að láta út úr þér svona vitleysu? Vissulega er hægt að meiðast í lyftingum eins og öllum íþróttum, en almennt eru þær mjög holl og áhrifarík þjálfunaraðferð fyrir alla aldursflokka. Meiðslatíðni er mjög lág miðað við vinsælustu íþróttir og áhrif á heilsu mjög góð. 15 er mjög góður aldur til að byrja að lyfta. Lyftingar eru engin nauðgun á líkamanum, því fer...

Re: hallóóó

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég er 1.79 og 89kg, nokkuð tálgaður. En ég var í kringum 73-75kg mestalla æfina þangað til ég fór að lyfta. Ef þú ert 1.86 ættirðu að vera allavega 80 kíló og mættir vera mun þyngri ef þú heldur fituhlutfallinu lágu (18% eða minna).

Re: brotið rifbein?

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Það er varla brotið en gæti verið brákað. Hvort sem er er í rauninni engin meðferð við því. Læknar teipa það í mesta lagi og segja þér að hvíla. Það gæti verið hættulegt ef brotna rifið setti gat á lungað, en trúðu mér, þú yrðir óþyrmilega vör við það! Svona verkur eftirá er ekkert til að hafa áhyggjur af. Taktu því bara rólega, það jafnar sig af sjálfu sér. Ég brákaði oft rifbein í karate í gamla daga. Það er vont en það venst.

Re: hallóóó

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Það fer eftir hæð og vöðvamassa. Heilbrigð þyngd er mjög fjölbreytileg en það er óhollt að vera mjög feitur. Hins vegar skipta örfá aukakíló engu máli heilsufarslega. Að vera með “sixpack” er bara spurning um hégóma og alveg ónauðsynlegt frá heilsufarssjónarmiði. Aukakíló í formi vöðva eru holl.

Re: Vaxtarbygging.

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Takk fyrir traustið. Ég hef reyndar ekki skrifað neinar greinar, en mörg svör við greinum. Til dæmis hér. .

Re: Ég er að fá skalla!

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Fyrirgefðu, fantasía mín. Ég fletti þessu upp og sé að erfðir skalla eru ekki eins einfaldar og þær voru taldar í denn og að X-tengdir þættir eru líka taldir tengjast erfðum hans. Hef ekki skoðað erfðir skalla síðan í menntaskóla.

Re: Ég er að fá skalla!

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég trúi því ekki að erfðafræðibókin þín hafi sagt þetta. Þetta að ofan var það sem kom fram í erfðafræðibókinni hans Örnólfs Thorlaciusar hér í denn. Kíktu aftur. Varst þú ekki bara að misskilja?

Re: Ég er að fá skalla!

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Nei, skallagenið er ekki á X litningnum. Hins vegar erfist það svipað og ef svo væri því að hormónaumhverfið hefur áhrif á sýnd þess. Genið erfist eins og það sé ríkjandi í körlum, en víkjandi í konum, ekki ósvipað og X-tengd gen. Því er hægt að erfa skalla hvort sem er frá föður eða móður. En konur þurfa að erfa frá báðum til að hann komi fram.

Re: Byggja upp þol.

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Þú ert að tala um “eróbískt” eða loftháð þol eins og skokkarar hafa og vilja. Slíkt er næstum algerlega gagnslaust í boltaíþróttum þar sem þörf er á tiltölulega stuttum sprettum og að vera fljótur að jafna sig á milli. EPO væri algerlega gagnslaust við þessar aðstæður (fyrir utan að vera lífshættulegt og ólöglegt). Sprettæfingar eru mun gagnlegri fyrir boltaíþróttamenn en langhlaup.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok